Tíu staðreyndir um stóra markaðsmisnotkunarmál Kaupþings

1. Í máli sem kallað hefur verið stóra mark­aðs­mis­notk­un­ar­mál Kaup­þings, og tekið var fyrir í Hæsta­rétti Íslands í morgun, eru níu fyrr­ver­andi starfs­menn Kaup­þings ákærðir. Þau níu sem voru ákærð eru Sig­urður Ein­ars­son, fyrrum starf­andi stjórn­ar­for­maður Kaup­þings, Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings í Lúx­em­borg, Ingólfur Helga­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings á Íslandi, Bjarki Diego, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri útlána, Einar Pálmi Sig­munds­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri eigin við­skipta Kaup­þings, Pétur Freyr Guð­mars­son, fyrr­ver­andi starfs­maður eigin við­skipta, Birnir Sær Björns­son, fyrr­ver­andi starfs­maður eigin við­skipta, og Björk Þór­ar­ins­dótt­ir, sem sæti átti í lána­nefnd Kaup­þings. Björk er ákærð fyrir umboðs­svik í mál­inu, ekki mark­aðs­mis­notkun.

2. Í mál­inu er hinum ákærðu gefið að sök að hafa ýmist komið í veg fyrir eða hægt á lækkun á verði hluta­bréfa í Kaup­þingi, frá hausti 2007 og fram að falli bank­ans haustið 2008, og aukið selj­an­leika þeirra með „kerf­is­bundn­um“ og „stór­felld­um“ kaup­um, eins og segir í ákæru, í krafti fjár­hags­legs styrks bank­ans.

3. Stærð og umfang máls­ins á sér ekki hlið­stæðu hér á landi. Aðal­með­ferð þess í hér­aðs­dómi Reykja­víkur tók 22 daga og yfir 50 manns voru kall­aðir til­ ­sem vitn­i á meðan að hún stóð yfir. Það liðu fimm vikur frá því að aðal­með­ferð­ í mál­inu lauk og þangað til að dómur fékkst.

4. Hér­aðs­dómur komst að þeirri nið­ur­stöðu 26. júní í fyrra að Hreiðar Már, Sigurður, Ingólfur, Einar Pálmi, Birnir Snær, Pétur Kristinn og Bjarki væru sekir í mál­inu. Bjarki var ein­ungis dæmdur vegna ákæru fyrir umboðs­svik. Tveimur liður ákæru á hendur Magnúsi var vísað frá en að öðru leyti var hann sýkn­aður af þeim sökum sem á hann voru born­ar. Björk var sýknuð af ákærðu um umboðs­svik í mál­inu.

5. Við aðal­með­ferð máls­ins fyrir hér­aði fór Björn Þor­valds­son, sak­sókn­ari hjá emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara (nú emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara) sem flutti mál­ið, fram á að refsiramm­inn fyrir mark­aðs­mis­notk­un­ar­brot yrði full­nýttur auk þess sem tekið yrði til­lit til 72. greinar almennra hegn­ing­ar­laga um aukna refs­ingu þegar hér­að­dómur myndi fella dóma yfir Hreið­ari Má, Sig­urði og Ingólfi. Það þýddi að emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara fór fram á að þeir myndu allir fá níu ára fang­els­is­dóma.

6. Ingólfur Helgason hlaut þyngstan dóm í mál­inu, fjög­urra og hálfs árs fang­elsi. Bjarki H. Diego hlaut tveggja og hálfs árs dóm, Einar Pálmi tveggja ára skil­orðs­bund­inn dóm og Birnir Sær og Pétur Krist­inn fengu báðir 18 mán­aða skil­orðs­bund­inn dóm. Hreiðari Má var ekki gerð frek­ari refs­ing í hér­aði í mál­inu, en hann afplánar nún þegar fimm og hálfs árs fang­els­is­dóm vegna Al Thani-máls­ins svo­kall­aða. Sigurður Ein­ars­son fékk eins árs hegn­ing­ar­auka við þann fjög­urra ára dóm sem hann hlaut í Al Thani-mál­inu. Dóm­ur­inn í mál­inu er 96 blað­síður að lengd.

7. Hreiðar Már og Magnús voru, líkt og áður sagði, báðir á meðal þeirra sem hlutu dóm í Hæsta­rétti Al Thani-mál­inu svo­kall­aða. Þeir eru báðir í afplánun á Vernd sem stendur. Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu er nú með það til athug­unar að taka það mál til skoð­unar. Þeir voru einnig dæmdir sekir í hér­aði í svoköll­uðu Marp­le-­máli í októ­ber í fyrra. Hreiðar Már hlaut þá sex mán­aða auka­refs­ingu en Magnús var dæmdur í 18 mán­aða fang­elsi. Skúli Þor­valds­son var einnig dæmdur til sex mán­aða fang­els­is­vistar en Guðný Arna Sveins­dótt­ir, fyrr­ver­andi fjár­mála­stjóri bank­ans, var sýknuð af ákæru í mál­inu. Hreiðar Már og Guðný Arna voru ákærð fyrir fjár­drátt og umboðs­svik. Magnús var ákærður fyrir hlut­deild í fjár­drætti og umboðs­svikum og Skúli var ákærður fyrir hylm­ingu. Málinu var áfrýjað til Hæsta­réttar og bíður fyr­ir­töku þar. Hreiðar Már, Magnús og Sigurður voru hins vegar allir sýkn­aðir í svoköll­uðu CLN-málií Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í jan­úar. Því mli hefur einnig verið áfrýjað til Hæsta­réttar.

8. Greint hefur verið frá því í fjöl­miðlum að fleiri hrun­mál séu í rann­sókn gagn­vart ein­stak­lingum sem þegar hafa hlotið dóma vegna ann­arra hrun­mála. Þar á meðal eru mál sem snúa að Kaup­þingi og hluta þeirra sak­born­inga sem þegar hafa hlotið dóma í Al Than­i-­mál­inu fyrir Hæsta­rétti og stóra mark­aðs­mis­notk­un­ar­mál­inu og Marp­le-­mál­inu í hér­aðs­dómi. Þá eru einnig mál til rann­sóknar sem snúa að stjórn­endum Glitnis og Lands­bank­ans.

9.Verj­endur þriggja sak­born­inga, Hreiðars Más, Sigurðar og Magnúsar, kröfð­ust þess að tveir hæsta­rétt­ar­dóm­arar, Þor­geir Örlygs­son og Ing­veldur Ein­ars­dóttir, vikju sæti í stóra mark­aðs­mis­notk­un­ar­mál­inu þegar það yrði tekið fyrir í Hæsta­rétti. Þor­geir vegna þess að sonur hans væri yfir­lög­fræð­ingur Kaup­þings ehf og hann hefði fjár­hags­lega hags­muni af því að sak­fellt yrði í málum gegn fyrr­ver­andi stjórn­endum og Ing­veldur vegna þess að sonur hennar hafi starfað fyrir emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara á árunum 2011 til 2013. Hæsti­réttur hafn­aði kröfu þeirra á mið­viku­dag.

10. Málið var tekið fyrir í Hæsta­rétti Íslands í morgun og þar end­ur­tók Björn Þor­láks­son sak­sókn­ari þá kröfu sína að refsiramm­inn yrði full­nýttur í mál­inu. Hann sagði, sam­kvæmt end­ur­sögn mbl.is, að sak­born­ingar í mál­inu hefðu haft aug­ljós­an bein­an og óbein­an hag af hátt­sem­inni vegna kaup­rétt­ar þeirra og him­in­hárra bón­us­greiðslna. Það hefði stuðlað að því að þeir voru til­bún­ir að grípa til örþrifa­ráða til að halda uppi verði hluta­bréf­anna. Umboðs­svik­in og mark­aðs­mis­notk­un­in hefðu átt þátt í að leiða bank­ann til glöt­un­ar og gera tjón kröfu­hafa og sam­fé­lags­ins verra. Þá væru brot­in for­dæma­laus hvaða varðar stærð þó dæmt hefði verið fyr­ir svipuð brot áður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

efnahagsbrot

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár