Hæstiréttur segir dómara ekki vanhæfa í markaðsmisnotkunarmáli Kaupþings

Hæsti­réttur Íslands hefur hafnað kröfu verj­enda þriggja sak­born­inga í mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli Kaup­þings um að tveir hæsta­rétt­ar­dóm­arar víki sæti í mál­inu. Mbl.is greinir frá þessu.

Málið verður því tekið fyrir í Hæsta­rétti á föstu­dag­inn.

Verj­endur höfðu kraf­ist þess að Þorgeir Örlygs­son og Ing­veldur Ein­ars­dóttir vikju sæti. Þorgeir vegna þess að sonur hans væri yfir­lög­fræð­ingur Kaup­þings ehf og hann hefði fjár­hags­lega hags­muni af því að sak­fellt yrði í málum gegn fyrr­ver­andi stjórn­endum og Ing­veldur vegna þess að sonur hennar hafi starfað fyrir emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara á árunum 2011 til 2013.

Hæsti­réttur sagði hins vegar að Kaupþing ehf. hafi ekki fjár­hags­lega hags­muni af einka­málum sem rekin séu, þar sem Seðla­banki Íslands hafi gert það að skil­yrði þegar Kaupþing sótti um und­an­þágu frá gjald­eyr­is­höftum. Rétt­ur­inn segir að sonur Ing­veldar hafi ekki sinnt málum sem vörð­uðu Kaupþing í störfum sínum hjá sér­stökum sak­sókn­ara.

Hreiðar Már Sig­urðs­son, Sig­urður Ein­ars­son, Ingólfur Helga­son, Einar Pálmi Sig­munds­son, Birnir Sær Björns­son, Pétur Krist­inn Guð­munds­son og Bjarki H. Diego voru allir dæmdir sekir í stóra mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli Kaup­þings í hér­aðs­dómi Reykja­víkur í júní í fyrra. Tveimur liðum ákæru á hendur Magn­úsi Guð­munds­syni var vísað frá en að öðru leyti var hann sýkn­aður af þeim sökum sem á hann voru born­ar. Björk Þór­ar­ins­dóttir var einnig sýknuð í mál­inu af ákæru fyrir umboðs­svik.

Hreið­ari Má var ekki gerð frek­ari refs­ing, en hann afplánar nú þegar fimm og hálfs árs fang­els­is­dóm vegna Al Than­i-­máls­ins svo­kall­aða. Sig­urður Ein­ars­son fékk eins árs hegn­ing­ar­auka við þann fjög­urra ára dóm sem hann hlaut í Al Thani- mál­inu. Ingólfur Helga­son hlaut þyngsta dóm­inn, fjög­urra og hálfs árs fang­elsi að frá­dregnu gæslu­varð­haldi sem hann sætti á sínum tíma. Bjarki H. Diego hlaut tveggja og hálfs árs dóm, Einar Pálmi tveggja ára skil­orðs­bund­inn dóm og Birnir Sær og Pétur Krist­inn fengu báðir 18 mán­aða skil­orðs­bund­inn dóm.

Farið var fram á að refsirammi yrði full­nýttur

Í mál­inu var hinum ákærðu, sem eru alls níu tals­ins, gefið að sök að hafa ýmist komið í veg fyrir eða hægt á lækkun á verði hluta­bréfa í Kaup­þingi, frá hausti 2007 og fram að falli bank­ans haustið 2008, og aukið selj­an­leika þeirra með „kerf­is­bundn­um“ og „stór­felld­um“ kaup­um, eins og segir í ákæru, í krafti fjár­hags­legs styrks bank­ans. ­Stærð og umfang máls­ins á sér ekki hlið­stæðu hér á landi. Aðal­með­ferð þess tók 22 daga og yfir 50 manns voru kall­aðir til­ ­sem vitn­i á meðan að hún stóð yfir.

Þau níu sem voru ákærð eru Sig­urður Ein­ars­son, fyrrum starf­andi stjórn­ar­for­maður Kaup­þings, Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings í Lúx­em­borg, Ingólfur Helga­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings á Íslandi, Bjarki Diego, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri útlána, Einar Pálmi Sig­munds­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri eigin við­skipta Kaup­þings, Pétur Freyr Guð­mars­son, fyrr­ver­andi starfs­maður eigin við­skipta, Birnir Sær Björns­son, fyrr­ver­andi starfs­maður eigin við­skipta, og Björk Þór­ar­ins­dótt­ir, sem sæti átti í lána­nefnd Kaup­þings.

Við aðal­með­ferð máls­ins fyrir hér­aðs­dómi fór Björn Þor­valds­son, sak­sókn­ari hjá emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara sem flutti mál­ið, fram á að refsiramm­inn fyrir mark­aðs­mis­notk­un­ar­brot yrði full­nýttur auk þess sem tekið yrði til­lit til 72. greinar almennra hegn­ing­ar­laga um aukna refs­ingu þegar hér­að­dómur fellir dóma yfir Hreið­ari Má Sig­urðs­syni, Sig­urði Ein­ars­syni og Ingólfi Helga­syni í stóra mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli Kaup­þings. Það þýðir að emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara fór fram á að þeir myndu allir fá níu ára fang­els­is­dóma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár