Hreiðar Már, Sigurður og Magnús sýknaðir í í CLN-máli Kaupþings

Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi banka­stjóri Kaup­þings, Sigurður Ein­ars­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Kaup­þings, og Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi banka­stjóri Kaup­þings í Lúx­em­borg, voru í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í morgun sýkn­aðir í svoköll­uðu CLN-máli. RÚV greinir frá.

Í mál­inu voru Hreiðar Már og Sigurður ákærðir fyrir fyrir stór­felld umboðs­svik með því að lánað fjórum eign­ar­halds­fé­lögum 260 millj­ónir evra. Félögin fjögur lán­uðu féð áfram til tveggja ann­arra félaga sem not­uðu það til að kaupa láns­hæf­istengd skulda­bréf (Credit Linked Notes, eða CLN) sem tengd voru skulda­trygg­ing­ar­á­lagi Kaup­þings. Þegar þýski bank­inn Deutsche Bank hóf veð­köll vegna máls­ins fengu síð­ari félögin tvö 260 millj­ónir evra til við­bótar lánuð. Samtals nemur láns­upp­hæðin 510 millj­ónum evra, eða um 72 millj­örðum króna á gengi dags­ins í dag. Í ákæru sér­staks sak­sókn­ara kemur fram að talið sé að útlánin séu að öllu leyti töpuð. Þar segir einnig að menn­irnir tveir hafi valdið Kaup­þingi „stór­felldu tjóni“ með hátt­semi sinni.

Magnús var einnig ákærður í mál­inu fyrir hlut­deild í umboðs­svikum.

Allir afplána dóma vegna annarra mála

Allir sak­born­ing­arnir þrír, sem sýkn­aðir voru í morgun, afplána sem stendur dóma á Kvía­bryggju. Þeir hlutu allir dóma í Hæsta­rétti í Al Thani-mál­inu í febr­úar 2015. Þar var Hreiðar Már dæmdur í fimm og hálfs árs fang­elsi, Sigurður í fjög­urra ára fang­elsi og Magnús í fjög­urra og hálfs árs fang­elsi. Ólafur Ólafsson, sem var stór eig­andi í Kaup­þingi fyrir hrun, hlaut einnig fjög­urra ára fang­elsi. Voru fjór­menn­ing­arnir dæmdir fyrir mark­aðs­mis­notkun á grund­velli laga um verð­bréfa­við­skipti og umboðs­svik sam­kvæmt hegn­ing­ar­lögum. Hæsti­réttur kall­aði brot mann­anna alvar­leg­ustu efna­hags­brot sem „nokkur dæmi verða fundin um í íslenskri dóma­fram­kvæmd varð­andi efna­hags­brot[…]Ákærðu[...]eiga sér engar máls­bætur“.

Hreiðar Már, Sigurður og Magnús voru einnig allir ákærðir í stóra mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli Kaup­þings sem hér­aðs­dómur dæmdi í árið 2015. Þar var Hreiðar Már dæmdur sekur en hlaut ekki við­bót­ar­refs­ingu. Sigurður var einnig dæmdur sekur og einu ári var bætt við afplánun hans. Tveimur ákæru­liðum gegn Magnúsi var hins vegar vísað frá og hann sýkn­aður í mál­inu að öðru leyti. Nið­ur­stöð­unni hefur verið áfrýjað til Hæsta­réttar.

Þá voru bæði Hreiðar Már og Magnús dæmdir sekir í hér­aðs­dómi í októ­ber 2015 í svoköll­uðu Marple-máli. Hreiðar Már hlaut þá sex mán­aða auka­refs­ingu en Magnús var dæmdur í 18 mán­aða fang­elsi. Skúli Þor­valds­son var einnig dæmdur til sex mán­aða fang­els­is­vistar en Guðný Arna Sveins­dóttir, fyrr­ver­andi fjár­mála­stjóri bank­ans, var sýknuð af ákæru í mál­inu. Hreiðar Már og Guðný Arna voru ákærð fyrir fjár­drátt og umboðs­svik. Magnús var ákærður fyrir hlut­deild í fjár­drætti og umboðs­svikum og Skúli var ákærður fyrir hylm­ingu.

Auk þess eru fleiri mál á hendur mönn­unum enn í rann­sókn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár