Forstjóri Polar Seafood styður frásögn Gunnþórs

Gunnþór Ingvason, for­stjóri Síld­ar­vinnsl­unnar, segir að aldrei hafi staðið til að blekkja Græn­lend­inga. Snúið hafi verið út úr tölvu­pósti við frétta­flutn­ing þess efnis. Henrik Leth styður þá skýr­ingu Gunnþórs.

Forstjóri Polar Seafood styður frásögn Gunnþórs
Segja engar blekk­ingar hafa staðið til Henrik Leth segir mála­vexti vera eins og Gunnþór hafi útskýrt.

Gunnþór Ingvason, fram­kvæmda­stjóri Síld­ar­vinnsl­unnar í Nes­kaup­stað, neitar því að til hafi staðið að blekkja menn á Græn­landi til að öðl­ast vel­vild þeirra og kom­ast þannig yfir veiði­heim­ildir. Vill Gunnþór meina að snúið hafi verið út úr tölvu­pósti sem hann sendi á starfs­menn Samherja í Namibíu, þar sem hann óskaði eftir punktum um hvernig unnið hefði verið að slíku í Afríku.

„Sælir félagar

Þannig er mál með vexti að vinir okkar í Græn­landi Henrik Leth, var að biðja mig að setja niður fyrir sig hvað þyrfti til í fjár­fest­ingum, veiðum, vinnslu og hafn­ar­mann­virkjum ef menn myndu vera setja upp fiski­mjöls og upp­sjáv­ar­verk­smiðju í Amma­salik aust­ur­strönd Græn­lands.

Hann er ekki að hugsa um að setja neitt upp, heldur eru ein­hverjir heima­menn í Græn­landi með ein­hverja með sér í því að reyna ná kvótum og goodwill af stjórn­völdum með því að þykj­ast vera fara byggja upp á austur græn­landi.

Eigið þið ekki til­búna ein­hverja svona punkta þó svo að þeir eigi við um afr­íku.“

Gunnþór neita ávirðingum

Þannig hljómar umræddur tölvu­póstur sem Gunnþór sendi á Aðal­stein Helgason, sem í upp­hafi var fram­kvæmda­stjóri Namib­íu­út­gerðar Samherja, Jóhannes Stef­áns­son, þáver­andi fram­kvæmda­stjóra Arcticnam Fishing í Namibíu sem síðan hefur ljóstrað upp um fram­ferði Samherja, og til Sigurðar Ólasonar, fram­kvæmda­stjóra við­skipta­þró­unar hjá Samherja. Frétta­blaðið greindi frá þessum tölvu­póst­inum í morgun og sagði hann sýna fram á að blekkja hefði átt græn­lensk stjórn­völd til að útvega kvóta.  

Haft er eftir Gunnþóri á mbl.is að ekki hafi staðið til að blekkja neinn og það hafi ekki verið Síld­ar­vinnslan né Polar Seafood, sem Henrik Leth stýrir, sem hafi haft uppi hug­myndir um að ná kvóta eða vel­vild af stjórn­völdum með því að þykj­ast vera að fara að byggja upp á Austur Græn­landi, heldur væru það heima­menn sem það hefðu ætlað sér.

„Ég þekki allt á Græn­landi, það hefði frekar átt að vera öfugt“

Henrik Leth styður þessa frá­sögn Gunnþórs í sam­tali við Stundina. Hann hafi rætt við Gunnþór árið 2014 um hvort mögu­legt væri að byggja upp land­vinnslu á Austur-Græn­landi, einmitt vegna þess að þeim hafi borist til eyrna að ákveðnir aðilar hefðu lýst áformum um að slíka upp­bygg­ingu. Könnun á fýsi­leika þess hefði leitt til þess, segir Leth, að ekki hefðu verið talið að það væri hag­kvæmt fyrir East Greenland Codfish, græn­lenska sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið sem Síld­ar­vinnslan og Polar Seafood áttu saman á þeim tíma, að byggja slíkt upp.

Leth sagði jafn­framt fjar­stæðu­kennt að hann hefði beðið Gunnþór um ráð til að koma sér vel við Græn­lend­inga. „Ég þekki allt á Græn­landi, það hefði frekar átt að vera öfugt,“ sagði Leth.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár