Namibísku ráðherrarnir segja af sér

Bernhard Esau og Sacky Shang­hala hafa sagt af sér í kjöl­far umfjöll­unar um mútu­greiðslur Samherja til þeirra.

Namibísku ráðherrarnir segja af sér
Ráð­herrar segja af sér Greint var frá mútu­greiðslum Samherja til ráð­herr­anna í Stund­inni og fleiri fjöl­miðlum.

Bernhard Esau, sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namibíu, og Sacky Shang­hala dóms­mála­ráð­herra hafa sagt af sér. Þetta kemur fram í nýrri frétt The Namibian.

Stundin hefur í sam­starfi við Kveik, Wikileaks og Al Jazeera greint frá mútu­greiðslum Samherja til þeirra og James Hatuikulipi, stjórn­ar­for­manns rík­is­fyr­ir­tæk­is­ins Fishcor, til að öðl­ast fisk­veiði­rétt­indi í Namibíu. Tengsl­unum var komið á í gegnum tengda­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­ans, Tamson „Fitty“ Hatuikulipi. Félög í eigu Samherja hafa frá árinu 2012 greitt mörg hund­ruð millj­ónir króna í mútur til ein­stak­linga sem eru tengdir Esau og flokki hans SWAPO.

Áður hafði verið greint frá því að Hage Geingob, for­seti Namibíu hafi talið að ráð­herr­arnir ættu að segja af sér. For­set­inn var upp­lýstur um málið fyrr á þessu ári, meðal ann­ars með skýrslu frá Martha Imalwa, rík­is­sak­sókn­ara Namibíu.

Í gögnum sem Stundin hefur undir höndum um útgerð Samherja í Namibíu koma fram stór­felldar greiðslur, á annan millj­arð króna, til aðila sem taka ákvarð­anir um sjáv­ar­út­vegs­mál fyrir hönd namibíska rík­is­ins. Stundin hefur unnið úr gögn­unum í sam­starfi við Wikileaks, frétta­skýr­inga­þátt­inn Kveik í Rík­is­sjón­varp­inu og katör­sku sjón­varps­stöð­ina Al Jazeera. Auk þess að greiða mútur hefur Samherji komið á fót vef aflands­fyr­ir­tækja þar félagið stundar fjár­magns­flutn­inga með litlu gagn­sæi og óljósum skatt­greiðslum.

Tálbeituaðferð Al Jazeera

Al Jazeera hefur und­an­farið unnið að tál­beitu­að­gerð í Namibíu, þar sem Bernhard Esau sam­þykkti að útvega ódýran sjó­frystikvóta gegn greiðslu og bauð ráð við að kom­ast hjá skatta­greiðslum. Upptakan var fyrst birt í Kveik í gær­kvöldi.

Í tvígang hafn­aði hann beiðni Kveiks um við­brögð, en ræddi við frétta­menn Kveiks á ráð­stefnu í Noregi. Þar hafn­aði hann því alfarið að haft vit­neskju um mútu­greiðslur. „Farið að rann­saka eitt­hvað annað,“ sagði hann. 

Í fyrstu sagð­ist hann ekki þekkja til for­svars­manna Samherja en við­ur­kenndi síðan að hafa átt fund með Þor­steini Má Bald­vins­syni á búgarði í Namibíu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár