Er í grunninn algjör sveitalúði

Tómas Guð­jóns­son finnur að eftir því sem lengra líður á milli þess að hann fari út á land, því meira þarf hann á því að halda til að núll­stilla sig.

Er í grunninn algjör sveitalúði
Fjar­lægist raun­hag­kerfið Tómas segir að hann fjar­lægist raun­hag­kerfið þegar líður langt á milli þess sem hann kemst út á landi. Mynd: Freyr Rögnvaldsson

Í grunn­inn er ég algjör sveitalúði. Ég vann öll sumur í fiski á Vopna­firði og var alltaf í sauð­burði á vorin, alltaf í sveit­inni eitt­hvað að þvæl­ast. Núna er ég samt nán­ast orð­inn ein­hver svona mið­bæj­arp­lebbi, eins og vinir mínir úti á landi og fjöl­skyldan mín myndu skil­greina það. Nú er ég að brasa við að kaupa mér íbúð og hugsa allt út frá því að vera sem næst mið­bænum. Maður sog­ast ein­hvern veg­inn inn í svona búbblu sem gengur út á að allt sem skipti máli sé í mið­borg Reykja­víkur. Þess vegna er mjög gott að eiga rætur ein­hvers staðar ann­ars staðar og fara þangað til að núll­stilla sig. Ég finn það alveg að eftir því sem ég er meira hér í Reykja­vík, eftir því sem það líður lengra milli þess sem ég fer út á land, því meira afteng­ist ég því sem ég var að gera og sem …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár