Fjörutíu sveitarfélög munu þurfa að sameinast öðrum

Fjórtán sveit­ar­fé­lög eru of fámenn sam­kvæmt við­miðum sem inn­leið á fyrir næstu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar 2022. Enn fleiri eru undir við­mið­unum fyrir kosn­ing­arnar 2026 þegar lág­marks­fjöldi íbúa verður 1000 manns í hverju sveit­ar­fé­lagi.

Fjörutíu sveitarfélög munu þurfa að sameinast öðrum
Ísland Sveit­ar­fé­lög á land­inu eru nú 72 tals­ins. Mynd: NASA

Fjörutíu sveit­ar­fé­lög á Íslandi eru of fámenn sam­kvæmt nýjum við­miðum um lág­mark­s­í­búa­fjölda. Er það meira en helm­ingur allra sveit­ar­fé­laga, sem eru í heild­ina 72 tals­ins. Sveit­ar­fé­lög munu fá fjár­hags­legan stuðn­ing til sam­ein­ingar.

Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, hefur birt til­lögu sína til þings­á­lykt­unar um stefnu­mót­andi áætlun rík­is­ins í mál­efnum sveit­ar­fé­laga fyrir árin 2019-2033. Samkvæmt henni verður stefnt að inn­leið­ingu lág­mark­s­í­búa­fjölda sveit­ar­fé­laga á tíma­bil­inu.  Lagt er til að lág­mark­s­í­búa­fjöldi verði 250 frá almennum sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum árið 2022 en 1000 frá kosn­ingum árið 2026.

Samkvæmt mann­fjölda­töl­fræði Hag­stof­unnar eru 14 sveit­ar­fé­lög á Íslandi með færri íbúa en 250 manns. Þar af eru sjö með færri en 100 íbúa. Fámenn­ast er Árnes­hreppur með 40 íbúa, en fjöl­menn­ast í þessum hópi er Ása­hreppur með 248 íbúa. Nái þings­á­lykt­un­ar­til­lagan fram að ganga munu þessi sveit­ar­fé­lög þurfa að sam­ein­ast öðrum eða fjölga íbúum með öðrum hætti fyrir kosn­ingar árið 2022.

Önnur 26 sveit­ar­fé­lög eru með á milli 250 og 1000 íbúa. Meðal þeirra fjöl­menn­ustu eru Vest­ur­byggð, Bol­ung­ar­vík og Blöndu­óss­bær. Munu þessi sveit­ar­fé­lög þurfa að grípa til aðgerða fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar árið 2026.

Samstaða var um það í starfs­hópi ráð­herra að koma á lág­mark­s­í­búa­fjölda. „Það er sam­eig­in­leg nið­ur­staða að til þess að ná því mark­miði að efla sveit­ar­stjórn­ar­stigið og gera sveit­ar­fé­lögin að enn sjálf­bær­ari þjón­ustu- og rekstr­ar­ein­ingum þurfi að fækka þeim,“ segir í grein­ar­gerð með til­lög­unni. „Skiptar skoð­anir voru um það í starfs­hópnum og meðal þeirra sem tóku þátt í sam­ráð­inu hver þessi tala ætti að vera, sjón­ar­mið komu fram um að hún væri allt of lág, en nið­ur­staðan varð sú að þessi ein­staka aðgerð myndi engu að síður hafa mikil áhrif.“

Aðeins 30 sveitarfélög árið 2026

Nái til­lagan fram að ganga verða því aðeins um 30 sveit­ar­fé­lög á land­inu öllu árið 2026. Búist er við tals­verðum hag­rænum áhrifum af sam­ein­ing­unni. Samkvæmt til­lög­unni mun reglum Jöfn­un­ar­sjóðs sveit­ar­fé­laga verða breytt til að tryggja auk­inn stuðn­ing við sam­ein­ingar sveit­ar­fé­laga og heild­ar­end­ur­skoðun á Jöfn­un­ar­sjóði fyrir árið 2022.

„Allt að 15 millj­arðar gætu farið í þennan stuðn­ing á tíma­bil­inu, þ.e. fram til árs­ins 2026 er 1.000 íbúa­markið tekur gildi og í allt að sjö ár eftir það, sem væri end­an­legur útgreiðslu­tími,“ segir í grein­ar­gerð með til­lög­unni. „Nefndin leggur til að sjóð­ur­inn fái heim­ild strax á árinu 2020 til að hefja söfnun í sjóð sem mætir þessum kostn­aði, auk þess sem reglur um fram­kvæmd stuðn­ings yrðu end­ur­skoð­aðar í heild sinni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár