Óboðlegt að hunsa vilja flokksmanna

Jón Kári Jónsson, for­maður Fé­lags sjálf­stæð­is­manna í Hlíða- og Holta­hverfi, er hissa á yfir­lýs­ingum Bjarna Bene­dikts­sonar um að nið­ur­staða í almennri atkvæða­greiðslu meðal sjálf­stæð­is­manna myndi engu breyta um stefnu þing­flokks­ins í orku­pakka­mál­inu.

Óboðlegt að hunsa vilja flokksmanna

Jón Kári Jónsson, for­maður Fé­lags sjálf­stæð­is­manna í Hlíða- og Holta­hverfi, telur ein­sýnt að það hefði alvar­legar afleið­ingar fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn ef nið­ur­staða hugs­an­legrar atkvæða­greiðslu flokks­manna um þriðja orku­pakk­ann yrði hunsuð. 

„Þingmenn er auð­vitað ein­göngu bundnir af sam­visku sinni sé henni til að dreifa á annað borð,“ segir hann í sam­tali við Stundina. „Ef söfn­unin nær til­skildum und­ir­skrifta­fjölda, þá þætti mér þó með miklum ólík­indum ef þing­flokk­ur­inn myndi hunsa nið­ur­stöð­una alger­lega.“

Sam­kvæmt skipu­lags­regl­um Sjálf­stæðis­flokks­ins er mið­stjórn flokks­ins skylt að boða til almennrar atkvæða­greiðslu meðal flokks­manna um til­tek­in mál­efni ef um það berst skrif­leg ósk frá minnst 5 þús­und flokks­bundn­um fé­lög­um, þar af að minnsta kosti 300 flokks­mönnum úr hverju kjör­dæmi lands­ins. 

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, lýsti því yfir í kvöld­fréttum RÚV á laug­ar­dag að ef fram færi atkvæða­greiðsla um þriðja orku­pakk­ann meðal flokks­manna myndi nið­ur­staðan ekki hafa áhrif á stefnu þing­flokks­ins. Þing­flokk­ur­inn hefði þegar tekið þá afstöðu að inn­leiða skuli orku­pakk­ann. 

Jón Kári er hissa á þessu við­horfi. „Ég stend ekki að þess­ari und­ir­skrifta­söfnun til þess að klekkja á for­ystu flokks­ins, síður en svo. Mér finnst ein­fald­lega að stór og opinn flokkur í opnu vest­rænu lýð­ræð­is­ríki hljóti að fagna því ef menn vilja leiða mál til lykta innan flokks­ins á lýð­ræð­is­legan hátt. Er það ekki boð­orð dags­ins? Menn eru með munn­inn full­ann af lýð­ræðist­ali svo út af flóir. Svo þegar á hólm­inn er komið virð­ist það engu skipta nema það gagn­ist manni sjálfum hér og nú. Þetta við­horf er ekki boð­legt í mínum huga.“

Hann seg­ist þekkja marga sem hafi sagt sig úr Sjálf­stæð­is­flokknum vegna máls­ins. „Við sjáum að flokk­ur­inn er á nið­ur­leið í skoð­ana­könn­unum. Svo er rétt að hafa í huga að for­ystan hefur auð­vitað nú þegar gengið gegn lands­fund­ar­sam­þykkt þar sem kom mjög skýrt fram að menn vildu ekki frekara vald­fram­sal í orku­málum. Þá fara menn að snúa út úr og segja að það hafi ekki átt við um orku­pakk­ann. Að sjálf­sögðu vís­aði þetta til orku­pakk­ans. Þú þarft ekk­ert stórt póli­tískt nef til að sjá það.“

„Maður spyr enn og aftur: af hverju
eigum við að gleypa þennan öngul?“

Jón Kári furðar sig á fram­göngu flokks­for­yst­unnar. „Maður spyr enn og aftur: af hverju eigum við að gleypa þennan öngul? Af hverju? Bara vegna þess að við erum í EES? Ég held því miður að þetta mál, sem er rekið áfram í óþökk flokks og þjóðar, kunni að grafa undan EES-samn­ingnum, samn­ingi sem hefur gagn­ast okkur vel og skilað okkur miklu. Maður vill ekki trúa því að þarna búi ein­hverjar ann­ar­legar hvatir að baki. Maður vill ekki trúa sam­sær­is­kenn­ingum, en þær eru auð­vitað settar fram í öllum hornum.“

Hann seg­ist sann­færður um að sumir þeirra þing­manna sem hygg­ist kjósa með inn­leið­ingu þriðja orku­pakk­ans muni gera það með óbragð í munni. „Ég skil ekki hvers vegna er verið að leggja allt þetta vesen á flokk­inn og þjóð­ina. Mér er alveg sama um hags­muni Sjálf­stæð­is­flokks­ins í þessu máli, það eru lang­tíma­hags­munir þjóð­ar­innar sem blífa og ekk­ert annað, bor­inna og óbor­inna. Það er bara ein rétt leið í þessu máli, að senda það aftur til Sam­eig­in­legu EES-nefnd­ar­innar og biðja um var­an­lega und­an­þágu. Það er eina lausnin.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Þriðji orkupakkinn

Frosti: „Hneyksli“ að ECT-samningurinn hafi ekki verið borinn undir Alþingi
FréttirÞriðji orkupakkinn

Frosti: „Hneyksli“ að ECT-samn­ing­ur­inn hafi ekki verið bor­inn undir Alþingi

Frosti Sig­ur­jóns­son, fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og einn af tals­mönnum Orkunnar okkar, telur það stjórn­ar­skrár­brot að Ísland hafi und­ir­geng­ist skuld­bind­ingar ECT-samn­ings­ins án aðkomu Alþingis. Gunnar Bragi Sveins­son stóð að full­gild­ingu samn­ings­ins í rík­is­stjórn­ar­tíð Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar.
Aðstoðarmaður Sigmundar réttlætir fullgildingu ECT-samningsins: „Stundum er hlutum blandað inn í umræðuna“
FréttirÞriðji orkupakkinn

Aðstoð­ar­maður Sig­mundar rétt­lætir full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins: „Stundum er hlutum blandað inn í umræð­una“

Hinn umdeildi samn­ingur um vernd orku­fjár­fest­inga varð ekki bind­andi fyrir Ísland fyrr en rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar full­gilti hann árið 2015. Ólíkt því sem lagt var upp með við und­ir­ritun samn­ings­ins 20 árum áður var full­gild­ingin ekki borin undir Alþingi. Aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs gefur lítið fyrir frétta­flutn­ing af mál­inu, en önnur Evr­ópu­ríki töldu ástæðu til að sam­þykkja sér­staka yfir­lýs­ingu um for­ræði yfir sæstrengjum og olíu­leiðslum. Með und­ir­ritun Gunnars Braga Sveins­sonar og Ólafs Ragnars Gríms­sonar árið 2015 skuld­bundu íslensk stjórn­völd sig til að fram­fylgja samn­ingnum í hví­vetna.
Stjórn Sigmundar fullgilti umdeildan samning um vernd orkufjárfestinga
FréttirÞriðji orkupakkinn

Stjórn Sig­mundar full­gilti umdeildan samn­ing um vernd orku­fjár­fest­inga

Með full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins hafa íslensk stjórn­völd skuld­bundið sig til að liðka fyrir frjálsum við­skiptum með orku­auð­lindir og að beita sér fyrir sam­keppni, mark­aðsvæð­ingu og sam­vinnu á sviði orku­flutn­inga. Reynt gæti á ákvæði samn­ings­ins ef upp koma deilur um lagn­ingu sæstrengs, en fjár­festar hafa meðal ann­ars notað samn­ing­inn sem vopn gegn stjórn­valds­að­gerðum sem er ætlað að halda niðri raf­orku­verði til almenn­ings.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár