Björn sakar Frosta og Sigmund um „dæmalausa tækifærismennsku“

Frosti Sig­ur­jóns­son seg­ist ætíð hafa verið ötull tals­maður gegn þriðja orku­pakk­anum þótt hann hafi sam­þykkt inn­leið­ingu á „mein­litlum“ reglum úr pakk­anum. „Það var Ragn­heiður Elín sem barð­ist fyrir þessu frum­varpi,“ skrifar hann.

Björn sakar Frosta og Sigmund um „dæmalausa tækifærismennsku“

Björn Bjarna­son, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, gagn­rýnir Frosta Sig­ur­jóns­son harð­lega og sakar þá Sigmund Davíð Gunn­laugs­son um póli­tíska tæki­fær­is­mennsku vegna and­stöð­unnar við inn­leið­ingu þriðja orku­pakk­ans. „Þú studdir mik­il­vægt ákvæði í þriðja orku­pakk­anum en fórst leynt með það,“ segir Björn við Frosta í umræðu á Facebook.

Eins og Stundin fjallar um í dag átti rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar frum­kvæði að því árið 2014 að reglur úr þriðja orku­pakk­anum voru inn­leiddar í íslenskan rétt án þess að þær hefðu verið sam­þykktar á vett­vangi sam­eig­in­legu EES-nefnd­ar­innar og teknar upp í EES-samn­ing­inn. 

Frosti, sem á þeim tíma var þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins en er nú tals­maður bar­áttu­hreyf­ingar gegn þriðja orku­pakk­anum, var í hópi þeirra sem greiddu atkvæði með frum­varp­inu. Slíkt hið sama gerðu þrír núver­andi þing­menn Mið­flokks­ins, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, Gunnar Bragi Sveins­son og Þor­steinn Sæmunds­son.

Björn Bjarna­son vekur athygli á umfjöllun Stund­ar­innar á Facebook og skrifar: „Að Sig­mundur Davíð, Frosti Sig­ur­jons­son og Þor­steinn Sæmunds­son komi nú fram og tali eins og þeir gera um inn­leið­ingu þriðja orku­pakk­ans og teng­ingar við önnur raf­orku­kerfi afhjúpar dæma­lausa tæki­fær­is­mennsku eins og þessi frá­sögn sem hér fylgir sýnir. (…) Skyldu þing­menn Mið­flokks­ins og Frosti biðja þá afsök­unar sem þeir hafa blekkt und­an­farnar vikur og mán­uði? Skyldu fram­sókn­ar­menn átta sig á hve vara­samt er að fylgja Frosta á leið hans til Mið­flokks­ins?“

Frosti bregst við og segir að ákvæðin í frum­varpi Ragn­heiðar Elínar Árna­dóttur þáver­andi iðn­að­ar­ráð­herra hafi verið „mein­lítil“ og meðal ann­ars snú­ist um að stuðla að nýt­ingu end­ur­nýj­an­legra orku­gjafa og að „bæta upp­lýs­inga­gjöf og nátt­úru­vernd“. 

Björn bendir hins vegar á að í vikið hafi verið að flutn­ingi raf­orku til útlanda í frum­varp­inu.

„Í flýti­sam­þykkt ykkar SDG fólst stuðn­ingur við þriðja orku­pakk­ann, sumt í honum tölduð þið svo merki­legt að það yrði að flýta afgreiðslu þess, það er að Íslend­ingar gætu lagt sitt af mörkum til lofts­lags­mála með því að fram­leiða umhverf­is­væna orku til útflutn­ings um sæstreng og þess vegna bæri að flýta afgreiðslu þess þáttar hvað sem liði athugun á stjórn­laga­þætt­inum,“ skrifar Björn. „Þetta var einmitt það sem SDG ræddi við David Cameron 28. októ­ber 2015. Nú þegar á að inn­leiða ákvæði úr pakk­anum sem snertir aukið sjálf­stæði Orku­stofn­unar til neyt­enda­verndar rísið þið upp í von um að koma illu af stað innan Fram­sókn­ar­flokks­ins.“

Frosti svarar á þessa leið: „Þessi grein Stund­ar­innar og stagl hér breytir því ekki að - Ég er ekki í Mið­flokknum. - Ég hef aldrei stutt þriðja orku­pakk­ann og mun ekki gera. - Ég hef aldrei stutt lagn­ingu sæstrengs.“

Ragn­heiður Elín Árna­dóttirfyrr­ver­andi iðn­að­ar­ráð­herra

Í grein­ar­gerð frum­varps­ins sem Björn og Frosti ríf­ast um er meg­in­efni laga­breyt­ing­anna lýst með eft­ir­far­andi hætti:

Með frum­varp­inu er lögð til inn­leið­ing á 22. gr. til­skip­unar Evr­ópu­þings­ins og ráðs­ins 2009/72/EB um sam­eig­in­legar reglur fyrir innri markað raf­orku. Í því felst að settar eru sam­eig­in­legar reglur um fram­leiðslu, flutn­ing, dreif­ingu og afhend­ingu raf­magns, auk ákvæða er snúa að neyt­enda­vernd, með það að mark­miði að bæta og sam­þætta sam­keppn­is­hæfa raf­orku­mark­aði innan banda­lags­ins. Í frum­varp­inu er gert ráð fyrir að flutn­ings­fyr­ir­tæki raf­orku skuli árlega leggja fyrir Orku­stofnun kerf­is­á­ætlun um upp­bygg­ingu flutn­ings­kerf­is­ins. Í því felst ann­ars vegar lang­tíma­á­ætlun kerf­is­á­ætl­unar sem sýni hvaða þætti í kerf­inu reiknað er með að byggja þurfi upp eða upp­færa á næstu tíu árum og hins vegar fram­kvæmda­á­ætlun kerf­is­á­ætl­unar sem sýni hvaða ákvarð­anir um fjár­fest­ingar í flutn­ings­kerf­inu hafi þegar verið teknar og hvaða fjár­fest­ingar þurfi að ráð­ast í á næstu þremur árum.

Björn segir að þarna hafi verið lög­fest „mik­il­vægt ákvæði þriðja orku­pakk­ans sem snertir kerf­is­á­ætl­anir innan orku­kerf­is­ins þegar sæstrengur var á döf­inni“ og bætir við: „Þú studdir mik­il­vægt ákvæði í þriðja orku­pakk­anum en fórst leynt með það. Þú stóðst að ákvörð­unum um kerf­is­á­ætl­anir um raf­orku þegar sæstrengur var enn til umræðu og studdir Sigmund Davíð þegar hann ræddi um lagn­ingu sæstrengs við David Cameron áður en því máli var lagt innan stjórn­ar­ráðs­ins sum­arið 2016 en þá hafði SDG hrökkl­ast frá völdum. Þetta er ekki stagl heldur lýs­ing á ótrú­legri póli­tískri tæki­fær­is­mennsku.“

Frosti svarar á þessa leið: „Ég tal­aði alltaf gegn sæstreng. Það var Ragn­heiður Elín sem barð­ist fyrir þessu frum­varpi.“

„Það var Ragn­heiður Elín sem
barð­ist fyrir þessu frum­varpi“

Eins og fram kemur í umfjöllun Stund­ar­innar í dag lagði Lilja Rafney Magn­ús­dóttir, þing­kona Vinstri grænna, lagði fram breyt­ing­ar­til­lögu þar sem lagt var til að vísan til „raf­orku­flutn­ings til ann­arra landa“ yrði felld út úr frum­varp­inu. Frosti Sig­ur­jóns­son og Sig­mundur Davíð voru á meðal þeirra sem greiddu atkvæði gegn þeirri til­lögu. 

Frumvarp Ragn­heiðar Elínar var fyrsta frum­varpið sem fól í sér inn­leið­ingu á reglum úr þriðja orku­pakk­anum í íslenskan rétt, en annað slíkt frum­varp var sam­þykkt á Alþingi í fyrra.

Frosti Sig­ur­jóns­son birtir athuga­semd undir frétt Stund­ar­innar og bendir rétti­lega á að ekk­ert í frum­varpi Ragn­heiðar Elínar Árna­dóttur skuld­batt Ísland til að inn­leiða þriðja orku­pakk­ann í heild eða leggja sæstreng til ESB.

„Enda hefði ég ekki sam­þykkt það. Það er fyrst núna sem Alþingi stendur frammi fyrir því að sam­þykkja pakk­ann með atkvæða­greiðslu sem bindur okkur að þjóða­rétti. Ég hef ætíð verið ötull tals­maður gegn þriðja orku­pakk­anum og lagn­ingu sæstrengs og verð það áfram,“ skrifar hann. 

Björn Bjarna­son birtir pistil um málið á blogg­síðu sinni. „Frosti seg­ist ekki vera í Mið­flokknum en í þessu máli stillir hann sér upp við hlið flokks­manna þar gegn Fram­sókn­ar­flokknum. Sama gerir Guðni Ágústs­son, fyrrv. for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, og sýnir þar með ótrú­legt ístöðu­leysi gagn­vart mið­flokks­mönnum,“ skrifar hann. „Þá leyfir Frosti Sig­ur­jóns­son sér að rök­styðja stuðn­ing sinn við flýtifrum­varpið um gild­is­töku ákvæða þriðja orku­pakk­ans með því að hann hafi verið að stuðla að umhverfis- og nátt­úru­vernd! Vor­kunn­semi kemur helst í hug­ann þegar litið er til þess fólks sem lætur þessa menn leiða sig.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Þriðji orkupakkinn

Frosti: „Hneyksli“ að ECT-samningurinn hafi ekki verið borinn undir Alþingi
FréttirÞriðji orkupakkinn

Frosti: „Hneyksli“ að ECT-samn­ing­ur­inn hafi ekki verið bor­inn undir Alþingi

Frosti Sig­ur­jóns­son, fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og einn af tals­mönnum Orkunnar okkar, telur það stjórn­ar­skrár­brot að Ísland hafi und­ir­geng­ist skuld­bind­ingar ECT-samn­ings­ins án aðkomu Alþingis. Gunnar Bragi Sveins­son stóð að full­gild­ingu samn­ings­ins í rík­is­stjórn­ar­tíð Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar.
Aðstoðarmaður Sigmundar réttlætir fullgildingu ECT-samningsins: „Stundum er hlutum blandað inn í umræðuna“
FréttirÞriðji orkupakkinn

Aðstoð­ar­maður Sig­mundar rétt­lætir full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins: „Stundum er hlutum blandað inn í umræð­una“

Hinn umdeildi samn­ingur um vernd orku­fjár­fest­inga varð ekki bind­andi fyrir Ísland fyrr en rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar full­gilti hann árið 2015. Ólíkt því sem lagt var upp með við und­ir­ritun samn­ings­ins 20 árum áður var full­gild­ingin ekki borin undir Alþingi. Aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs gefur lítið fyrir frétta­flutn­ing af mál­inu, en önnur Evr­ópu­ríki töldu ástæðu til að sam­þykkja sér­staka yfir­lýs­ingu um for­ræði yfir sæstrengjum og olíu­leiðslum. Með und­ir­ritun Gunnars Braga Sveins­sonar og Ólafs Ragnars Gríms­sonar árið 2015 skuld­bundu íslensk stjórn­völd sig til að fram­fylgja samn­ingnum í hví­vetna.
Stjórn Sigmundar fullgilti umdeildan samning um vernd orkufjárfestinga
FréttirÞriðji orkupakkinn

Stjórn Sig­mundar full­gilti umdeildan samn­ing um vernd orku­fjár­fest­inga

Með full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins hafa íslensk stjórn­völd skuld­bundið sig til að liðka fyrir frjálsum við­skiptum með orku­auð­lindir og að beita sér fyrir sam­keppni, mark­aðsvæð­ingu og sam­vinnu á sviði orku­flutn­inga. Reynt gæti á ákvæði samn­ings­ins ef upp koma deilur um lagn­ingu sæstrengs, en fjár­festar hafa meðal ann­ars notað samn­ing­inn sem vopn gegn stjórn­valds­að­gerðum sem er ætlað að halda niðri raf­orku­verði til almenn­ings.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár