Hægt að segja upp kjarasamningi ef vextir lækka ekki

Sérstakt for­sendu­á­kvæði um lækkun vaxta verður í kjara­samn­ingnum milli Samtaka atvinnu­lífs­ins og stærstu verka­lýðs­fé­laga sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar.

Hægt að segja upp kjarasamningi ef vextir lækka ekki

Aðilar vinnu­mark­að­ar­ins leggja mikið upp úr því að skapa aðstæður sem geri Seðla­bank­anum kleift að lækka vexti. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar verður sér­stakt for­sendu­á­kvæði í kjara­samn­ingnum um að honum megi segja upp ef vaxta­lækk­anir verða ekki að veru­leika.

Samn­inga­nefndir Samtaka atvinnu­líf­is­ins og VR, Eflingar, Starfs­greina­sam­bands­ins, Fram­sýnar og Verka­lýðs­fé­laga Akraness og Grinda­víkur hitt­ust hjá Rík­is­sátta­semj­ara í morgun en stefnt er að því að ljúka samn­ings­gerð upp úr hádegi og und­ir­rita samn­inga um eft­ir­mið­dag­inn. 

Framlag rík­is­stjórn­ar­innar til svo­kall­aðra lífs­kjara­samn­inga felst meðal ann­ars í 9 þús­und króna skatta­lækkun til lág­tekju­fólks í stað þeirrar 6700 króna lækk­unar sem áður var boðuð. Þá verða skerð­ing­ar­mörk barna­bóta hækkuð og ráð­ist í stór­aukna upp­bygg­ingu íbúð­ar­hús­næði, aðgerðir til að bæta kjör leigj­enda og laga­breyt­ingar til að draga úr vægi verð­trygg­ingar.

Gylfi Zoëga, hag­fræði­pró­fessor og nefnd­ar­maður í pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands, sagði í Silfri Egils síð­ustu helgi að ef samið yrði um hóf­legar launa­hækk­anir yrði mögu­legt að lækka vexti. „Það er stað­reynd að verka­lýðs­hreyf­ing­in ræður þessu. Ef hún fer þá leið að semja um mikl­ar hlut­falls­leg­ar launa­hækk­an­ir þá hafa þær þær af­leið­ing­ar að verð­lag mun hækka og fólk fer að bú­ast við verð­bólgu og þá verður ekki hægt að lækka vexti, þá þurfa þeir að fara upp og helst meira en verð­bólg­an,“ sagði hann.

Aðilar vinnu­mark­að­ar­ins telja sig hafa náð sam­komu­lagi sem skapi skil­yrði til lækk­unar vaxta. Þetta muni draga úr greiðslu­byrði heim­ila, stuðla að lækkun leigu­verðs, flýta fyrir að jafn­vægi náist á hús­næð­is­mark­aði og ýta undir fjár­fest­ingu. Er þetta slík grund­vall­ar­for­senda að lagt er upp með að segja megi samn­ingum upp ef vaxta­lækk­anir verða ekki að veru­leika.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Efnahagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár