Lágtekjufólk fær 9 þúsund króna skattalækkun

Rík­is­stjórnin leggur fram umfangs­mik­inn aðgerða­pakka vegna svo­kall­aðra lífs­kjara­samn­inga sem verða und­ir­rit­aðir í dag.

Lágtekjufólk fær 9 þúsund króna skattalækkun

Lækkun tekju­skatts til lág­tekju­hópa á kjör­tíma­bil­inu nemur um 9 þús­und krónum á mán­uði í stað 6.700 króna sam­kvæmt upp­færðum til­lögum rík­is­stjórn­ar­innar vegna svo­kall­aðra lífs­kjara­samn­inga sem und­ir­rit­aðir verða í dag.

Þetta hefur Stundin fengið stað­fest. Þá verða skerð­ing­ar­mörk barna­bóta hækkuð meira en áður stóð til auk þess sem ráð­ist verður í stór­aukna upp­bygg­ingu íbúð­ar­hús­næðis og aðgerðir til að bæta kjör leigj­enda.

Samn­inga­nefndir Samtaka atvinnu­líf­is­ins og VR, Eflingar, Starfs­greina­sam­bands­ins, Fram­sýnar og Verka­lýðs­fé­laga Akraness og Grinda­víkur hitt­ust hjá Rík­is­sátta­semj­ara í morgun en stefnt er að því að ljúka samn­ings­gerð upp úr hádegi og und­ir­rita samn­inga um eft­ir­mið­dag­inn. 

Kjarninn greindi frá því í gær að ýmsar tak­mark­anir á vægi verð­trygg­ingar væru hluti af fram­lagi stjórn­valda inn í kjara­við­ræð­urnar, meðal ann­ars að horft yrði til þess að verð­tryggð jafn­greiðslu­lán til meira en 25 ára yrðu óheimil frá og með 2020. Þá segir í ítar­legri frétt á sama miðli í dag að í aðgerða­pakk­anum séu einnig úrræði fyrir fyrstu kaup­endur hús­næðis „um að fá sér­stök lán eða til að nýta hluta af líf­eyr­is­ið­gjalda­greiðslum sínum til að kom­ast inn á hús­næð­is­markað“ auk fram­leng­ingar á nýt­ingu sér­eign­ar­sparn­aðar til að greiða niður hús­næð­is­lán til sum­ars­ins 2021.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisfjármál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár