Helmingur kvennanna óttaðist um líf sitt

Af þeim 135 konum sem dvöldu í Kvenna­at­hvarf­inu í fyrra höfðu ein­ungis 12% lagt fram kæru gagn­vart ofbeld­is­manni. 14% kvenn­anna fóru aftur heim til ofbeld­is­manns­ins, sem er lægsta hlut­fall frá upp­hafi. Aðstoð við börn eftir dvöl er ábóta­vant, segir fram­kvæmda­stýra.

Helmingur kvennanna óttaðist um líf sitt

Aðeins 12% þeirra kvenna sem dvöldu í Kvenna­at­hvarf­inu á árinu 2018 kærðu mann­inn sem hafði beitt þær ofbeldi. 5% þeirra fengu nálg­un­ar­bann og 2% neyð­ar­hnapp. Aðeins 14% þeirra fóru aftur heim til ofbeld­is­manns­ins, sem er lægsta hlut­fallið frá upp­hafi.

Þetta kemur fram í töl­fræði sem Kvenna­at­hvarfið hefur tekið saman. Alls komu 135 konur og 70 börn í athvarfið til dvalar í fyrra, en þar að auki 240 konur í við­töl án þess að dvelja. Þar að auki komu 225 konur í við­töl í Bjark­ar­hlíð, mið­stöð fyrir þolendur ofbeldis.

Konur og börn dvöldu í athvarf­inu allt frá einum degi upp í 325 daga. Að með­al­tali var dvölin 31 dagur hjá konum en 35 dagar hjá börnum. Af þeim konum sem dvöldu í athvarf­inu voru 80% af höf­uð­borg­ar­svæð­inu og 67% þeirra af erlendum upp­runa.

Af kon­unum höfðu 47% ein­hvern tím­ann hlotið áverka í sam­band­inu og lög­regla hafði í 43% til­vika haft afskipti af ger­and­anum. 50% sögð­ust hafa ótt­ast um líf sitt vegna ofbeld­is­ins en aðeins 12% lagt fram kæru. Í fjórð­ungi þeirra mála hafði dómur fallið.

Í svörum kvenn­anna kom í ljós að sam­an­lagt 273 börn bjuggu á ofbeld­is­heim­ilum. Í 44% til­vika vissi konan af því að barna­vernd hefði verið til­kynnt um aðstæður barna á heim­il­inu en í ein­ungis 27% til­vika höfðu börnin fengið aðstoð vegna­of­beld­is­ins. Í þeim til­fellum var yfir­leitt um að ræða eitt við­tal við sér­fræð­ing eða að barnið hefði mögu­leika á að ræða við starfs­mann skóla.

„Langstærstur hluti hóps­ins hafði enga aðstoð fengið þrátt fyrir að flestum sé nú orðið ljóst að afleið­ingar þess að verða vitni að ofbeldi á heim­ilum geti verið engu síður alvar­legar en afleið­ingar þess að vera beitt ofbeldi á heim­ilum,“ segir Sig­þrúður Guð­munds­dóttir, fram­kvæmda­stýra Kvenna­at­hvarfs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Heimilisofbeldi

Segir heimilisofbeldi á Íslandi ekki jafn ýkt og í myndbandinu: „Við erum bara að grínast“
FréttirHeimilisofbeldi

Segir heim­il­is­of­beldi á Íslandi ekki jafn ýkt og í mynd­band­inu: „Við erum bara að grín­ast“

Myndband þar sem gróft heim­il­is­of­beldi er svið­sett og sprellað með að ofbeldið geti hjálpað konu að grenn­ast hefur verið fjar­lægt af Facebook. „Ég vann í lög­regl­unni í mörg ár. Ekki man ég eftir ein­hverju svona heim­il­is­of­beldi, þar sem and­lit­inu hennar er skellt í elda­vél­ina og svo gólfið,“ segir Jón Viðar Arn­þórs­son í sam­tali við Stundina. „Það er ekki verið að gera grín að heim­il­is­of­beldi.“

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár