Segir heimilisofbeldi á Íslandi ekki jafn ýkt og í myndbandinu: „Við erum bara að grínast“

Myndband þar sem gróft heim­il­is­of­beldi er svið­sett og sprellað með að ofbeldið geti hjálpað konu að grenn­ast hefur verið fjar­lægt af Facebook. „Ég vann í lög­regl­unni í mörg ár. Ekki man ég eftir ein­hverju svona heim­il­is­of­beldi, þar sem and­lit­inu hennar er skellt í elda­vél­ina og svo gólfið,“ segir Jón Viðar Arn­þórs­son í sam­tali við Stundina. „Það er ekki verið að gera grín að heim­il­is­of­beldi.“

Umsjón­ar­menn nám­skeiðs í áhættu­leik hjá Blóðøx Stunts, systk­inin Jón Viðar Arn­þórs­son og Ingi­björg Helga Arn­þórs­dóttir, birtu í dag mynd­band á Facebook þar sem gróft heim­il­is­of­beldi er svið­sett og gant­ast með að kona „borði nú ekki eins mikið með brotnar tennur“. 

Í mynd­band­inu mátti sjá Jón ganga í skrokk á Ingi­björgu og refsa henni fyrir að hafa bakað köku. „Ekki baka köku,“ hrópar Jón Viðar eftir að hafa slegið höfði hennar í elda­vél og gólf.

Mynd­bandið var fjar­lægt af Facebook eftir að Stundin hafði sam­band við Jón Viðar og ræddi við hann um málið. Stundin vistaði hins vegar mynd­bandið sem má sjá hér að ofan.

„Það er ekki verið að gera grín að heim­il­is­of­beldi. Það er verið að aug­lýsa stönt-nám­skeið þar sem við gerum svona senur í kvik­myndum á Íslandi,“ segir Jón Viðar, bar­daga­þjálf­ari og stofn­andi ISR á Íslandi.

Aðspurður hvort þeim finn­ist fyndið að kona „borði ekki eins mikið með brotnar tennur“ svarar Jón Viðar: „Þetta er bara einka­húmor hjá okkur og þeir sem eru að fara á þetta nám­skeið og þeir sem eru að æfa hjá okkur hafa hlegið ansi mikið af þessu. Við erum bara að grín­ast. Eins og þú aug­ljós­lega sérð þá er þetta ekk­ert nema grín.“ 

„Ekki man ég eftir ein­hverju svona heim­il­is­of­beldi, þar sem and­lit­inu hennar
er skellt í elda­vél­ina og svo gólfið“

Ýmsum blöskr­aði mynd­bandið á Facebook og gerðu athuga­semdir við það.

Jón Viðar segir að nám­skeiðin snú­ist um að læra að lemja fólk í plati og mynd­bandið sé gott dæmi um þetta. Þegar talið berst að heim­il­is­of­beldi og þolendum þess seg­ist Jón Viðar sjálfur berj­ast í þágu þolenda heim­il­is­of­beldis með því að þjálfa konur til að geta staðið í lapp­irnar og varið sig. „Ekki vera að reyna að mála mig upp sem ein­hvern vondan kall af því að þetta er ekk­ert nema leik­rit. Þú hefur vænt­an­lega séð Tomma og Jenna og séð bíó­myndir sem eru bann­aðar innan 16?“

En þú gerir þér grein fyrir því að þetta er raun­veru­leiki margra íslenskra kvenna?

„Geri ég mér grein fyrir því? Ég starfa við þetta á hverjum ein­asta degi að þjálfa stelpur sem hafa lent í ofbeldi. Þú getur heyrt í þeim og spurt hvernig þeim líður. Þær hlógu bara af þessu vídjói.“

Þér finnst vídjóið ekki líkj­ast heim­il­is­of­beldi?

„Þetta er svo langt frá því að líkj­ast því. Þetta er svo ógeðs­lega ýkt. Ég vann í lög­regl­unni í mörg ár. Ekki man ég eftir ein­hverju svona heim­il­is­of­beldi, þar sem and­lit­inu hennar er skellt í elda­vél­ina og svo gólfið. Ég hef margoft komið að heim­il­is­of­beldi og þetta er svo ýkt að það hálfa væri nóg.“

Skömmu eftir sam­talið birt­ist yfir­lýs­ing á Facebook-síðu nám­skeiðs­ins. „Við ákváðum að taka leikna mynd­bandið hjá stunt leik­ur­unum og sytkin­unum út þar sem það fór fyrir brjóstið á nokkrum. Þótt lang flestum hafi fund­ist þetta flott og vel leikið atriði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Heimilisofbeldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár