„Örugglega ein erfiðasta vinna sem hægt er að vera í“

„Þetta er erfið vinna, örugg­lega ein erf­ið­asta vinna sem hægt er að vera í,“ segir Andrés Proppé Ragn­ars­son sál­fræð­ingur, sem rekur úrræði fyrir fólk sem beitir maka sinn ofbeldi. Enginn vinnur þar í alveg fullu starfi enda getur það tekið veru­lega á að hlusta á frá­sagnir skjól­stæð­ing­anna af ofbeldi.

„Örugglega ein erfiðasta vinna sem hægt er að vera í“
Betrun „Ég er mjög upp­tek­inn af því að þetta eru mann­eskjur sem eiga að fá mögu­leika á að rétta sinn hlut og læra nýja, betri siði,“ segir Andrés. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ekkert lát er á auk­inni aðsókn í með­ferð hjá Heim­il­is­friði, úrræði fyrir fólk af öllum kynjum sem beitir maka sinn ofbeldi. Sál­fræð­ing­ur­inn sem rekur verk­efnið vonar að ástæðan sé sú að fleira fólk sem beitir ofbeldi leiti sér aðstoðar en áður. Þetta er venju­legt fólk, „svona ég og þú fólk“, og í mörgum til­vikum tekst því að hætta að beita ofbeldi.

Árið 2019 sinnti starfs­fólk Heim­il­is­friðar um 40 við­tölum á mán­uði. Ári síðar var sú tala komin upp í 100. Kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn var talin ástæðan, en heim­il­is­of­beldi færð­ist í auk­ana í far­aldr­inum, ásamt auk­inni umræðu um ofbeldi í kjöl­far svo­kall­aðrar Metoo-bylgju. 

„Þetta er van­máttur og van­kunn­átta. Þú bara kannt ekki annað. Það er góður útgangs­punktur að því leyt­inu að þú getur lært. Þú þarft að æfa þig og kannski hafa rosa­lega fyrir því en það er hægt.“
Andrés Ragn­ars­son Proppé
sál­fræð­ingur

Tvö ár eru liðin síðan far­ald­ur­inn var upp á sitt …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Heimilisofbeldi

Segir heimilisofbeldi á Íslandi ekki jafn ýkt og í myndbandinu: „Við erum bara að grínast“
FréttirHeimilisofbeldi

Segir heim­il­is­of­beldi á Íslandi ekki jafn ýkt og í mynd­band­inu: „Við erum bara að grín­ast“

Myndband þar sem gróft heim­il­is­of­beldi er svið­sett og sprellað með að ofbeldið geti hjálpað konu að grenn­ast hefur verið fjar­lægt af Facebook. „Ég vann í lög­regl­unni í mörg ár. Ekki man ég eftir ein­hverju svona heim­il­is­of­beldi, þar sem and­lit­inu hennar er skellt í elda­vél­ina og svo gólfið,“ segir Jón Viðar Arn­þórs­son í sam­tali við Stundina. „Það er ekki verið að gera grín að heim­il­is­of­beldi.“

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár