Vill ekki sjá launahækkanir

Borg­hildur Vil­hjálms­dóttir vill að rík­is­stjórnin hækki per­sónu­af­slátt og byggi íbúðir.

Vill ekki sjá launahækkanir
Miklu meiri upp­bygg­ingu Borg­hildur Vil­hjálms­dóttir vill að rík­is­stjórnin og verka­lýðs­fé­lögin skerpi á áhersl­unum. Mynd: Davíð Þór

Ég verð voða­lega örg þegar verið er að tala um launa­hækk­anir. Ég held að fólk hafi lítið við þær að gera, því launa­hækk­anir einar og sér hafa ekk­ert að segja. Sleppum þeim bara.

Ef laun verða hækkuð um fáein pró­sent smit­ast það bara út í þjóð­fé­lagið – leigu­verð hækkar, vextir hækka, allt hækkar og við verðum búin að tapa niður hverri ein­ustu krónu um leið og við fáum hana.

Unga daman sem er að vinna með mér er ein­stæð móðir sem býr í 60 fer­metrum. Hún borgar fyrir það 180 þús­und krónur. Hún kemst aldrei í eigið hús­næði, hún situr bara föst í þessu rán­dýra leigu­hús­næði.

Ég vil sjá rík­is­stjórn­ina og verka­lýðs­fé­lögin fara í mikla upp­bygg­ingu á hús­næði. Svo þarf að hækka per­sónu­af­slátt­inn hjá öllum þeim sem hafa tekjur undir 500 þús­und krónum.

Fyrir utan þetta ætti að hækka örorku­líf­eyr­inn og atvinnu­leys­is­bæt­urnar. Það eru aðgerðir sem myndu bjarga mörgu fólki.

Hvort ég ætli að fara í póli­tík sjálf? Nei, ég er orðin of gömul til þess. Ég ein og sér get heldur ekk­ert gert. Þau eru líka hörð þetta fólk hjá Eflingu, VR og Vil­hjálmur uppi á Skaga. Þau þurfa bara að leggja enn meiri áherslu á íbúða­málin og ein­beita sér að réttu úrræð­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár