Lét laga verksmiðjugallann

Sævar Sig­ur­geirs­son hug­leiðir að skrifa sína fyrstu skáld­sögu í verkja­lyfja­móki.

Lét laga verksmiðjugallann

Ég fór í stóra aðgerð í síð­ustu viku. Ekki mis­skilja, ég var alger­lega heill heilsu, en ákvað sem sagt á gam­als aldri að láta leið­rétta smá verk­smiðju­galla, svo­kall­aðu holu­bringu, eða það sem sumir kalla inn­fall­inn brjóst­kassa.

Þetta er ætt­gengur and­skoti og veldur því að pláss fyrir hjarta og lungu er af skornum skammti. Mamma heitin var með þetta, við fengum þetta svo tveir bræður af fjórum systk­inum. Bróðir minn lét laga sína holu í kringum 1980 en ein­hvern veg­inn var ég ekki til­bú­inn í það. Öll börnin mín þrjú fengu þetta svo frá mér og eru nú þegar búin að láta lag­færa, tvö þau yngri á síð­asta ári og sá elsti í byrjun jan­úar.

Ég ákvað að láta slag standa og henda mér í þetta líka, enda er svona frekar mælt með þessu til að „frelsa hjartað“. Þetta er tölu­verð aðgerð og í raun heil­mikið inn­grip þar sem tveimur boga­laga …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár