Fólkið í borginni: Með alla anga úti fyrir greiðslumatið

Birta Svav­ars­dóttir kyssti pen­ing og fékk dag­inn eftir sam­þykkt til­boð í íbúð.

Fólkið í borginni: Með alla anga úti fyrir greiðslumatið

Þetta gerð­ist allt sjúk­lega hratt. Allt í einu erum við búin að finna íbúð, gera til­boð og fá það sam­þykkt. Svo nú erum við með alla anga úti við að safna saman öllum þeim krónum sem við finnum, til að ná upp í útborgun og greiðslu­mat.

Við erum bíl­laus svo stað­setn­ingin skipti okkur öllu máli. Við vorum búin að sjá fyrir okkur að við þyrftum ann­að­hvort að fá okkur íbúð sem hentar okkar fjöl­skyldu­stærð, sem væri þá ekki á góðum stað, eða finna íbúð sem hent­aði okkur illa en væri á góðum stað.

Svo fundum við fyrir til­viljun íbúð sem er full­komin fyrir okkur. Hún hefur þann ein­staka eig­in­leika að vera í mið­bænum en samt ekki með bað­her­bergi sem maður rekur oln­bog­ana í vegg­ina á, þegar maður gengur inn á það.

Þannig að þetta verður að ganga upp. Ég er búin að vera að reyna að hugsa jákvætt um þetta, því ég trúi því að allt gangi betur þannig. Ég kyssti meira að segja pen­ing um dag­inn – það var nú samt eig­in­lega bara til að stríða kærast­anum mínum. Hann sagði að það væri ógeðs­legt. „Veistu hvar þessi pen­ingur hefur verið?“ sagði hann. Daginn eftir skoð­uðum við þessa íbúð, gerðum til­boð í hana og fengum sam­þykkt kauptil­boð. Kannski ekki beint pen­ingar í vas­ann – en samt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár