Eyþór Arnalds gerist stjórnarformaður fjölmiðlafyrirtækis

Eyþór Arnalds, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, gerð­ist í nóv­em­ber stjórn­ar­for­maður Suð­ur­ljósa ehf., sem skráð er í fjöl­miðla­rekstri. Umsvif hans í atvinnu­líf­inu, meðal ann­ars sem stærsti eig­andi Morg­u­blaðs­ins, eru enn mikil, þrátt fyrir lof­orð hans um að aðskilja við­skipti og stjórn­mál.

Eyþór Arnalds gerist stjórnarformaður fjölmiðlafyrirtækis

Eyþór Arnalds, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­ar­stjórn, tók í nóv­em­ber við stjórn­ar­for­mennsku í fyr­ir­tæki með skráða starf­semi í útvarps­út­send­ingu og dag­skrár­gerð. Eyþór er enn í stjórn sex fyr­ir­tækja með net dótt­ur­fé­laga, þrátt fyrir lof­orð um að draga sig úr við­skipta­líf­inu.

Eyþór var skráður stjórn­ar­for­maður félags­ins Suð­ur­ljósa ehf. 26. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Tekur hann við af Baldri Jóhanni Bald­urs­syni, sem á 50% hlut í félag­inu á móti Eyþóri. Enginn rekstur hefur verið í félag­inu í mörg ár sam­kvæmt árs­reikn­ingi og er eigið fé þess nei­kvætt um tæpar 53 millj­ónir króna. Skuldir þess nema tæpum 52 millj­ónum króna, en ekki kemur fram hverjum félagið skuldar og af hverju ekki hefur verið farið fram á greiðslu skuld­anna.

Til­gangur félags­ins er rekstur sjón­varps- og útvarps­stöðva, fram­leiðsla, kaup og sala á fjöl­miðla­efni, eign­ar­hald um verð­bréf og önnur skyld starf­semi, sam­kvæmt CreditInfo. Félagið var upp­haf­lega stofnað árið 1999 af Árna Þór Vig­fús­syni og Krist­jáni „Ra“ Krist­jáns­syni. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Auðmenn

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár