Glitnir sækir um áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar til að viðhalda lögbanni

Lögmenn Glitnis HoldCo, sem heldur utan um eignir þrota­bús Glitnis banka, hafa sótt um leyfi til að áfrýja til Hæsta­réttar í máli sem varðar lög­bann á umfjöllun Stund­ar­innar upp úr Glitn­is­skjöl­unum. Rit­stjórn Stund­ar­innar ákvað að ljúka lög­bann­inu.

Glitnir sækir um áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar til að viðhalda lögbanni
Lögmenn Glitnis HoldCo Ólafur Eiríks­son hæsta­rétt­ar­lög­maður, til hægri, rekur málið fyrir hönd Glitnis. Mynd: Heiða Helgadóttir

Glitnir HoldCo hefur farið fram á heim­ild Hæsta­réttar til að áfrýja lög­banns­máli gegn Stund­inni og Reykja­vik Media til rétt­ar­ins, og freistar þess þannig að fá lög­bannið stað­fest á þriðja dóms­stigi eftir að hafa tapað mál­inu í hér­aðs­dómi og Lands­rétti.

Stundin hélt áfram umfjöllun sinni, sem lotið hafði lög­banni, í síð­asta tölu­blaði sínu sem kom út á föstu­dag. 

Nú er það því í höndum Hæsta­réttar að ákveða hvort Glitnir HoldCo fái mál­inu áfrýjað, þar sem tekin yrði afstaða til þess hvort lög­mætt hafi verið af Sýslu­mann­inum í Reykja­vík að leggja lög­bann á umfjöllun Stund­ar­innar. Bæði hér­aðs­dómur og Lands­réttur töldu lög­bannið hafa „raskað grund­vall­ar­gildum tján­ing­ar­frels­is­ins og rétti ein­stak­linga til að taka við upp­lýs­ingum og mynda sér skoðun á sam­fél­gs­legum mál­efnum“. Verði áfrýj­un­ar­beiðni Glitnis hafnað er því end­an­lega lokið fyrir íslenskum dóm­stólum.

Lögbannið gilti fram yfir tvennar kosningar

Lög­bann­inu var komið á 16. októ­ber í fyrra, eftir að Stundin birti umfjall­anir byggðar á gögnum sem tengj­ast Glitni í sam­starfi við Reykja­vik Media og breska blaðið the Guardian, þar sem sagt var frá umfangs­miklum við­skiptum Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra og fjöl­skyldu hans með bréf tengd Glitni í aðdrag­anda banka­hruns­ins, sam­hliða aðkomu hans að mál­inu sem kjör­inn full­trúi. Bjarni seldi meðal ann­ars hluta­bréf sín í Glitni, fyrir um 119 millj­ónir króna, dag­ana eftir að hann átti fund með for­stjóra Glitnis, sem þing­maður, til að ræða við hann um hvernig rík­is­stjórnin gæti komið bönk­unum til hjálpar. Auk þess seldi faðir hans, Benedikt Sveins­son, hluta­bréf sín í Glitni á svip­uðum tíma, en þeir til sam­ans seldu bréf fyrir millj­arð króna. Lög­bannið varði meðal ann­ars fram yfir alþing­is­kosn­ingar og sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar, þrátt fyrir að hafa verið metið ólög­mætt af dóm­stólum.

Umfjöllun haldið áfram

Rúmu ári eftir að lög­banni var komið á hélt Stundin áfram umfjöllun sinni í síð­asta tölu­blaði, á þeim grund­velli að þá væru liðnar lög­bundnar þrjár vikur frá dóms­upp­sögu Lands­réttar, en sam­kvæmt lögum um kyrr­setn­ingu og lög­bann fellur lög­bannið úr gildi þegar „æðri dómur“ hefur stað­fest synjun á lög­banni.

Glitnir HoldCo full­nýti áfrýj­un­ar­frest til Hæsta­réttar, sem er fjórar vikur frá dóms­upp­sögu í Lands­rétti. Sá frestur er útrunn­inn á morgun.

Fram kom í áfram­hald­andi umfjöllun í síð­asta tölu­blaði Stund­ar­innar að Bjarni hefði verið í hlut­verki skugga­stjórn­anda í við­skiptum Eng­eyj­a­rætt­ar­innar tengdum Glitni. Þannig hefði hann til dæmis verið í leið­andi hlut­verki við til­raun við­skipta­hóps­ins til að kaupa bif­reiða­um­boð Toyota á Íslandi. Þá kom einnig fram að starfs­maður Íslands­banka taldi það vera á ,,gráu svæði” að hann kæmi að gerð kauptil­boðs í Toyota fyrir Einar Sveins­son, föð­ur­bróður Bjarna, þar sem hann var einnig stjórn­ar­for­maður bank­ans.  Auk þess var greint frá því að nafn Bene­dikts Jóhann­es­sonar kæmi fram í Glitn­is­skjöl­unum en til stóð að hann fengi 40 millj­óna króna lán til að kaupa hlutafé í BNT ehf. móð­ur­fé­lagi N1. Af lán­veit­ing­unni varð þó ekki. Stundin gat ekki sagt frá þessu máli Bene­dikts í aðdrag­anda kosn­ing­anna í fyrra þar sem lög­bann Glitnis kom í veg fyrir það.

Glitnir hefur farið fram á að Stund­inni verði gert að afhenda gögn, en tapað þeim hluta máls­ins á öllum þremur dóms­stigum.

Grundvallargildum tjáningarfrelsisins raskað

Í rök­stuðn­ingi Hér­aðs­dóms Reykja­víkur fyrir því að synja Glitni stað­fest­ingu á lög­bann­inu 2. febr­úar síð­ast­lið­inn kemur fram að lög­bannið brýtur gegn tján­ing­ar­frelsi og stang­ist á við rétt­inn til frjálsra kosn­inga.

„Lög­bannið beind­ist þannig að rétti stefndu til að fjalla um mál­efni sem lutu að við­skiptum ákveð­inna ein­stak­linga sem tengd­ust Glitni hf. áður en Fjár­mála­eft­ir­litið tók yfir vald hlut­hafa­fundar bank­ans 7. októ­ber 2008. Með lög­bann­inu var einnig komið í veg fyrir að almenn­ingur fengi frek­ari upp­lýs­ingar um þau mál sem fjallað var um af hálfu stefndu og þannig raskað grund­vall­ar­gildum tján­ing­ar­frels­is­ins um frjáls skoð­ana­skipti og rétti ein­stak­linga til að taka við upp­lýs­ingum og mynda sér skoðun á sam­fé­lags­legum mál­efnum. Lög­bannið fól sem fyrr segir einnig í sér fyr­ir­fram tálmun sem almennt þarf ríkar ástæður til að rétt­læta.

„Ljóst er að rétt­ur­inn til frjálsra kosn­inga og frelsið til að tjá sig um stjórn­mál eru ein af und­ir­stöðum lýð­ræð­is­legs stjórn­ar­fars.“

Í þessu sam­bandi verður jafn­framt að hafa í huga að þegar lög­bannið var lagt á voru ein­ungis 12 dagar til þess að Alþing­is­kosn­ingar færu fram 28. októ­ber. Ljóst er að  rétt­ur­inn til frjálsra kosn­inga og frelsið til að tjá sig um stjórn­mál eru ein af und­ir­stöðum lýð­ræð­is­legs stjórn­ar­fars. Þessi rétt­indi eru nátengd, enda er tján­ing­ar­frelsi ein af nauð­syn­legum for­sendum þess að kjós­endur í lýð­ræð­is­sam­fé­lagi geti tjáð hug sinn með því hvernig þeir beita atkvæð­is­rétti sínum. Af þeim sökum hefur verið talið sér­stak­lega brýnt að fólk hafi frelsi til að tjá skoð­anir sínar og miðla upp­lýs­ingum í aðdrag­anda kosn­inga.“

Fyr­ir­vari um hags­muni: Stundin er beinn aðili að mál­inu sem fjallað er um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Glitnisgögnin

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
5
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár