Bjarni Bene­dikts­son Fjármála- og efna­hags­ráð­herra tók virkan þátt í fjár­fest­ingum fjöl­skyldu sinnar með Íslands­banka fyrir hrun. Mynd: Pressphotos

Selur bankann sem fjölskyldan átti

Bjarni Bene­dikts­son upp­lýsti ekki um aðkomu sína að fjár­fest­ingum Eng­ey­inga á meðan hann sat á þingi í aðdrag­anda hruns. Fjöl­skylda hans átti ráð­andi hlut í Íslands­banka sem lán­aði félögum þeirra tugi millj­arða króna og einnig Bjarna per­sónu­lega. Nú mælir hann fyrir sölu rík­is­ins á hlut í bank­anum. Forsagan skaðar traust, að mati sam­taka gegn spill­ingu.

Glitn­is­gögnin, sem Stundin fjall­aði um haustið 2017 og aftur ári síðar eftir að lög­bann á umfjöll­un­ina var fellt úr gildi, vörp­uðu nýju ljósi á þátt­töku Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra í við­skiptum fjöl­skyldu sinnar með hluta­bréf Íslands­banka og fjár­muni í sjóðum hans fyrir banka­hrun. Bjarni var á þessum tíma þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, en átti mikla aðkomu að fjár­fest­ingum Eng­eyj­ar­fjöl­skyld­unnar svoköll­uðu sem var ráð­andi eig­andi Íslands­banka, bank­ans sem Bjarni stendur nú fyrir að selja að hluta úr rík­i­s­eigu.

Bjarni var stjórn­ar­for­maður í tveimur félögum fjöl­skyld­unnar, sem var stærsti lán­tak­andi Íslands­banka á sama tíma og hún var ráð­andi eig­andi bank­ans. Hæst fóru lán bank­ans til Eng­ey­inga í 20 pró­sent af eig­in­fjár­grunni hans árið 2006, en voru 15 pró­sent við hrun bank­ans. Bjarni tók einnig þátt í Vafn­ings­flétt­unni svoköll­uðu, sem talin var auka áhættu bank­ans sem þá hafði breytt um nafn og hét Glitnir, og í kjöl­farið seldi fjöl­skyldan hluta­bréf í bank­anum fyrir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Glitnisgögnin

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár