Bjarni Benediktsson og Benedikt Sveinsson faðir hans seldu hlutabréf í Glitni fyrir 993,6 milljónir króna dagana eftir að hafa tekið þátt í Vafningsfléttunni í febrúar 2008, viðskiptagjörningi sem sérstakur saksóknari taldi hafa átt þátt í falli Glitnis og Hæstiréttur sagði andstæðan hagsmunum bankans.
Glitnisgögnin sýna að Bjarni lék lykilhlutverk í viðskiptaævintýrum Engeyinga og var eins konar skuggastjórnandi fjárfestahópsins. Þegar erfiðleikar komu upp hjá Glitni og stórum hluthöfum, fyrst í febrúar 2008 og svo í september, skiptist Bjarni Benediktsson á upplýsingum við stjórnendur Glitnis og sat fundi um stöðu bankanna meðan hann sjálfur, faðir hans og föðurbróðir komu gríðarlegum fjármunum í var.
Alls innleystu Bjarni, Benedikt og Einar 2263 milljónir úr Sjóði 9 rétt fyrir setningu neyðarlaganna og allsherjarhrun íslenska bankakerfisins, og vörðu sig þannig fyrir 340 milljóna tapi.
Umfjöllunin birtist í prentútgáfu Stundarinnar þann 26. október síðastliðinn.
Á almannavitorði
29. janúar 2008
◾ „Ég er ánægður að sjá tekjur af kjarnastarfsemi bankans vaxa á nýjan leik þar sem vöxturinn nam um 21% á ársgrundvelli auk þess sem traust útlánasafn bankans tryggir okkur góðar vaxtatekjur á þessu ári,“ segir Lárus Welding forstjóri í tilkynningu um afkomu bankans.

26. febrúar
◾ Bjarni skrifar grein í Morgunblaðið með Illuga Gunnarssyni um erfiðleika íslensku bankanna.
28. febrúar
◾ Moodys lækkar lánshæfismat Glitnis úr Aa3 í A2. „Staða Glitnis er traust og lausafjárstaða bankans er góð,“ segir í tilkynningu frá Glitni.
15. september
◾ Lehman Brothers fer í gjaldþrot.

21. september
◾ Lárus Welding gerir lítið úr erfiðleikum íslenska bankakerfisins í Silfrinu og segir enga hættu á yfirtöku Glitnis. „Alls ekki.[…] Núna er hlutfallsleg staða íslensku bankanna að batna. […] Það verða sveiflur á krónunni til skamms tíma en til lengri tíma mun hún styrkjast. […] Staða íslensku bankanna er alls ekki svo slæm.“ Um leið er eiginkona hans byrjuð að millifæra fjármuni úr bankanum til Bretlands.
23. september

◾ Nordea hættir við að kaupa eignir Glitnis í Noregi og Bayerische Landesbank hafnar framlengingu tveggja lána Glitnis upp á 150 milljónir evra.
29. september
◾ Vandræði Glitnis verða opinber þegar tilkynnt er um að ríkið ætli að leggja bankanum til hlutafé til að bjarga honum frá hruni.
◾ Geir H. Haarde segir fréttamönnum að hugsanlega muni íslenska ríkið hafa fjárhagslegan ávinning af yfirtöku Glitnis sem muni starfa áfram sem traustur og öflugur banki. „Ef vel gengur, og það er ekki ástæða til að ætla annað en að vel gangi hjá Glitni þegar litið er fram á veginn, þá mun ríkissjóður innan tíðar losa sig við þessi hlutabréf á nýjan leik og hugsanlega og vonandi hafa af því einhvern fjárhagslegan ávinning. Það er þá sá ávinningur sem að ríkisvaldið fyrir hönd almennings fær fyrir að standa að þessari aðgerð.“
Fólk þarf ekki að óttast um sínar innstæður eða sitt sparifé.

30. september

◾ Tilkynnt er um að lokað hafi verið fyrir viðskipti með sjóði Glitnis vegna óvissu með hlutabréf Stoða, stærsta hluthafa bankans.
◾ Geir H. Haarde forsætisráðherra segir fjölmiðlum að „ekkert sérstakt“ hafi gengið á á fundi hans með Björgólfi Thor Björgólfssyni og bankastjórum Landsbankans kvöldið áður.
1. október
◾ Opnað er aftur fyrir viðskipti með sjóðina og greint frá því að gengi Sjóðs 9 hafi lækkað um 7 prósent. Haft er eftir Eggerti Þór Kristóferssyni, framkvæmdastjóra eignastýringar, að búið sé að lágmarka tap sparifjáreigenda og ekki hafi verið mikið um að fólk tæki fé út úr sjóðunum.
◾ „Innstæður sparifjáreigenda eru tryggar. Fólk þarf ekki að óttast um innstæður sínar og fólk þarf ekki að rjúka til og taka þær út,“ segir Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra.
3. október
◾ Gylfi Magnússon, dósent í hagfræði, lýsir því yfir að íslenska bankakerfið sé komið í greiðsluþrot.
◾ Í sama fréttatíma fullyrðir Geir H. Haarde forsætisráðherra að sparifjáreigendur þurfi ekki að óttast um sinn hag. „Ég vil ítreka það að fólk þarf ekki að óttast um sínar innstæður eða sitt sparifé í íslenskum lánastofnunum hér á landi.“ Aðspurður hvort það sé þá engin ástæða til að taka út fé segir Geir: „Nei, ekki nokkur.“
◾ Tryggvi Þór Herbertsson, efnahagsráðgjafi Geirs, segir í viðtali við fréttaveitu Reuters að ekki sé unnið sérstaklega að björgun bankanna enda standi þeir mjög vel.
4. október
◾ Greint er frá því í fréttum að stjórnvöld eigi í viðræðum við aðila vinnumarkaðarins og fulltrúa stærstu lífeyrissjóða sem muni hugsanlega flytja erlendar eignir sjóðanna heim og hjálpa til við að lina gjaldeyrisskortinn.
5. október
◾ Geir H. Haarde segir við fréttamenn fyrir utan Ráðherrabústaðinn: „Þessi helgi hefur skilað því að við teljum núna ekki lengur nauðsynlegt að vera með sérstakan pakka með aðgerðum.“
◾ Geir H. Haarde segir fréttastofu Stöðvar 2 að staðan á Íslandi sé ekkert verri heldur en í öðrum löndum.
6. október
◾ Geir H. Haarde mælir fyrir neyðarlögunum vegna bankahrunsins og Alþingi staðfestir þau.

7. október
◾ Neyðarlögin taka gildi. Fjármálaeftirlitið yfirtekur Glitni og hlutafé hluthafa bankans verður verðlaust. Þá eru Landsbanki Íslands og Kaupþing yfirteknir.
31. október
◾ Eigendur hlutdeildarskírteina í Sjóði 9 fá greidd 85,12 prósent af innstæðum sínum á lokadegi viðskipta með sjóðinn þann 6. október.

Undir yfirborðinu
1. febrúar 2008
◾ Bjarni Benediktsson er losaður undan 50 milljóna kúluláni hjá Glitni og skuldin færð yfir á eignarhaldsfélag föður hans, Hafsilfur ehf., sem síðar fer í þrot.
8. febrúar

◾ Bjarni Benediktsson tekur þátt í fléttunni sem kennd er við Vafning og snerist um að flytja áhættuna á bak við stóran hluthafa Glitnis, Þátt International, sem var meðal annars í eigu félaga Einars og Benedikts Sveinssona, yfir á bankann sjálfan.
12. febrúar
◾ Benedikt Sveinsson selur hlutabréf í Glitni fyrir rúmar 49 milljónir.
15. febrúar
◾ Benedikt Sveinsson selur hlutabréf í Glitni fyrir 216 milljónir.
19. febrúar

◾ Bjarni fundar með Lárusi Welding ásamt Illuga Gunnarssyni.
21. febrúar
◾ Bjarni byrjar að selja hlutabréf sín í Glitni.
22. febrúar
◾ Bjarni selur bréf í Glitni.
25. febrúar
◾ Bjarni selur bréf í Glitni.
27. febrúar
◾ Síðasta sala Bjarna Benediktssonar í Glitni.
Seinni hluti ágúst

◾ Bjarni á samverustundir með Lárusi Welding „fyrir austan“ og biður um reglulegt samband við hann.
19. september
◾ Eiginkona Lárusar Welding, bankastjóra Glitnis, byrjar að millifæra samtals 325 milljónir króna úr Glitni. Upphæðin var millifærð í þremur færslum: 19. og 25. september og 3. október.
24. september
◾ Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnarformaður Glitnis, óskar eftir fundi með Davíð Oddssyni seðlabankastjóra í von um lán til Glitnis.

◾ Bjarni innleysir 30 milljónir úr Sjóði 1.
26. september
◾ Benedikt Sveinsson innleysir fjármuni úr Sjóði 9 og sendir til Flórída.
27. september
◾ Benedikt Sveinsson innleysir 160 milljónir úr Sjóði 9.
28. september
◾ Bjarni Benediktsson situr neyðarfund um framtíð Glitnis í höfuðstöðvum Stoða, stærsta hluthafa Glitnis þar sem fram kemur að staða Glitnis sé „gríðarlega alvarleg“.
29. september
◾ Benedikt Sveinsson er leystur undan sjálfskuldarábyrgð á lánum Glitnis til Hafsilfurs, eignarhaldsfélags hans.
1. október

◾ Benedikt innleysir 100 milljónir úr Sjóði 9.
2. október
◾ Bjarni selur fyrir tæpar 30 milljónir í Sjóði 9 og biður um frekari innlausn 6. október.
4. október
◾ Forsætisráðherra felur starfshópi hagfræðinga að útbúa neyðaráætlun fyrir íslenska bankakerfið.
◾ Vinna við að ljúka samningu neyðarlaganna, á grundvelli eldri draga, fer á fullt. Starfsmenn viðskiptaráðuneytisins og Fjármálaeftirlitsins leika þar lykilhlutverk. „Það var verið að vinna að þessu í FME og forstjóri FME var náttúrulega þarna úti um allt og svona,“ sagði Jónína S. Lárusdóttir, ráðuneytisstjóri viðskiptaráðuneytisins, í skýrslutöku hjá rannsóknarnefnd Alþingis.

◾ Davíð Oddsson greinir ráðherrum ríkisstjórnarinnar frá því að „staða Glitnis sé lakari en menn hafi átt von á“ og Árni Mathiesen fjármálaráðherra dregur þá ályktun að Glitnir fari þá „á höfuðið á mánudag [6. október]“.
5. október
◾ Ráðherrar funda með fulltrúum Glitnis. Lárus Welding, forstjóri Glitnis, segir að bankinn þurfi á aðstoð Seðlabankans að halda til að geta staðið skil á 425 milljónum evra auk þess sem borist hafi veðkall frá Seðlabanka Evrópu upp á 600 milljónir evra.
◾ Um kvöldið tekur frumvarpið til neyðarlaga á sig nær endanlega mynd, en þar er kveðið á um að innlán verði forgangskröfur en eigendur hlutdeildarskírteina í sjóðum á borð við Sjóð 9 settir skör lægra.
6. október
◾ Bjarni selur fyrir 21 milljón í Sjóði 9.

◾ Einar Örn Ólafsson, framkvæmdastjóri fjárfestingasviðs Glitnis og vinur Bjarna Benediktssonar, skrifar aðstoðarmanni Lárusar Welding: „Bjarni ben segir að … fme séu á skrilljón að vinna í þessu núna … einhver að tala við Jónas“. Vinna Fjármálaeftirlitsins þennan dag snerist meðal annars um hver framtíð Glitnis yrði og hvort raunhæft væri fyrir ríkið að efna hlutafjárloforðið frá 29. september.
◾ Einar Sveinsson selur fyrir 1023 milljónir í Sjóði 9.
Við vildum ekkert að það spyrðist út fyrr en að það yrði tilkynnt í sjónvarpinu.

Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.




























Athugasemdir