SA: Vilja semja um annað en beinar launahækkanir

Lögð er áhersla á aukið fram­boð hús­næðis fyrir tekju­lága, sveigj­an­legri vinnu­tíma og auk­inn veik­inda­rétt. Raun­gengi krón­unnar hafi rýrt sam­keppn­is­stöðu íslensks atvinnu­lífs.

Halldór Benjamín Þorbergsson og Eyjólfur Árni Rafnsson
Halldór Benjamín Þor­bergs­son og Eyjólfur Árni Rafnsson Mynd: Skjáskot af ráðstefnu SA

Bæta má lífs­kjör og starfs­á­nægju með öðru en beinum launa­hækk­unum,“ segja Samtök atvinnu­lífs­ins (SA) í bréfi sem lýsir stefnu þeirra í kom­andi kjara­samn­ingum. Lögð er áhersla á aukið fram­boð hús­næðis fyrir tekju­lága, sveigj­an­legri vinnu­tíma og auk­inn veik­inda­rétt.

Bréfið lýsir þeim áskor­unum sem SA sjá í kom­andi kjara­við­ræðum og óska þau eftir form­legum umræðum um þessi atriði. Almennir kjara­samn­ingar SA og ASÍ losna um ára­mótin og taka til um 110 þús­und starfs­manna á almennum vinnu­mark­aði. Undir bréfið skrifa Eyjólfur Árni Rafnsson for­maður og Halldór Benjamín Þor­bergs­son fram­kvæmda­stjóri SA.

Samtökin benda á hækkun launa muni skila sér í verð­bólgu. Miklar launa­hækk­anir und­an­farið hafi dregið úr sam­keppn­is­hæfni íslenska fyr­ir­tæki, sem sjá­ist í hækkun raun­gengis íslensku krón­unnar, sem sé ein­faldur og skýr mæli­kvarði á sam­keppn­is­stöðu atvinnu­lífs­ins.

„Á tíma­bil­inu frá fyrra árs­helm­ingi 2015 til fyrra árs­helm­ings 2018 hækk­aði raun­gengi á mæli­kvarða launa um 55% og á mæli­kvarða verð­lags um 31%. Í þessu felst að launa­kostn­aður á Íslandi hækk­aði um 55% umfram erlenda keppi­nauta og inn­lent verð­lag um 31% umfram verð­lag í við­skipta­lönd­unum, allt mælt í sam­eig­in­legri mynt. Það er for­dæma­laust að sam­keppn­is­staða íslensks atvinnu­lífs versni jafn mikið jafn á skömmum tíma og við því þarf að bregð­ast í kom­andi kjara­samn­ingum,“ segir í bréf­inu.

Vilja taka upp „virkan vinnutíma“

Leggja SA því til aðgerðir á fast­eigna­mark­aði til að mæta þörfum tekju­lágra og erlends starfs­fólks. Slíkt sé betur leyst með auknu fram­boði á hús­næði en beinum launa­hækk­unum. Þá eru lagðar til aðgerðir til að gera vinnu­mark­að­inn fjöl­skyldu­vænni, til dæmis með auknum hlut dag­vinnu­launa í heild­ar­launum.

Loks leggja SA til upp­töku „virks vinnu­tíma“, með það fyrir augum að auka fram­leiðni á íslenskum vinnu­mark­aði. „Virkur vinnu­tími er sá mæli­kvarði á vinnu­tíma sem aðrar þjóðir byggja á og er skil­greindur sem sá tími starfs­manna sem er vinnu­veit­endum þeirra til ráð­stöf­unar,“ segir í bréf­inu. „Í því felst að neyslu­hlé, einkum svo­kall­aðir kaffi­tímar, telj­ast ekki til vinnu­tíma. Breyt­ing­unni er ætlað að koma af stað umræðu innan vinnu­staða um skipu­lag vinnu­tíma, jafnt fyr­ir­tækjum sem starfs­mönnum þeirra til hags­bóta. Bætt skipu­lag getur leitt til styttri heild­ar­vinnu­tíma og fjöl­skyldu­vænni vinnu­mark­aðar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kjarabaráttan

GreiningKjarabaráttan

Kjara­við­ræður stranda á for­sendu­á­kvæðum og breið­fylk­ingin fundar um mögu­legar verk­falls­að­gerðir

Formaður VR fékk í gær sam­þykkta heim­ild til þess að grípa til aðgerða og félög innan breið­fylk­ing­ar­innar hafa blásið til fundar í dag þar sem rætt verður um næstu skref. Um tals­verðan við­snún­ing er að ræða frá því að kjara­við­ræður hófust fyrst. Nú hafa við­ræð­urnar harðnað og er það fyrst og fremst vegna ósættis um for­sendu­á­kvæði í langa­tíma­kjara­samn­ingnum.
GreiningKjarabaráttan

Af hverju dó ham­ingjan milli breið­fylk­ing­ar­innar og Samtaka atvinnu­lífs­ins?

Allt annar tónn hefur verið í kjara­bar­átt­unni nú en síð­ustu miss­eri. Við­semj­endur ætl­uðu að taka höndum saman og auka stöð­ug­leika í efna­hags­líf­inu. En svo heyrð­ist lítið af fram­gangi. Í þess­ari viku var við­ræðum slitið og deil­unni vísað til rík­is­sátta­semj­ara. Margir klór­uðu sér í hausnum og spurðu hvað hefði eig­in­lega gerst? Svarið við því er: ansi margt.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár