Laun hækka litlu meira en verðlag

Launa­vísi­talan féll um 0,3% í júlí og nálg­ast þróun verð­lags. Á sama tíma er greiðslu­byrði lána langt umfram fyrri ár.

Laun hækka litlu meira en verðlag
Verka­lýðs­bar­átta Laun almenn­ings hækk­uðu um 0,4 pró­sentu­stig umfram verð­lag síð­ustu 12 mán­uði, en greiðslu­byrði lána er mun meiri en áður. Mynd: Bára Huld Beck

Launa­vísi­tala lækk­aði um 0,3% í júlí, sam­kvæmt nýjum tölum Hag­stof­unnar. Hún hefur hækkað um 5,7% síð­ast­liðið árið á sama tíma og verð­lag hefur hækkað um 5,3%. 

Nýjar verð­bólgu­tölur verða birtar á fimmtu­dag í næstu viku. Breyting vísi­tölu neyslu­verðs hefur bein áhrif á höf­uð­stól verð­tryggðra lána. Seðla­bank­inn spáir því að verð­bólgan verði 5,7% undir lok árs­ins, en taki síðan að lækka skart.

Um mán­að­ar­mótin næstu rennur út tíma­bundin lækkun á virð­is­auka­skatti elds­neytis úr 24% í 11%.

Árs­breyt­ing launa­vísi­tölu í júlí hefur ekki verið lægri síðan 2019, þegar hún var 4,2%, en verð­bólga var þá 3,1%.

Óháð tekju­þróun hefur greiðslu­byrði af verð­tryggðum lánum verið um 30% meiri síð­ustu tvö ár heldur en árin 2015 til 2020, sam­kvæmt útreikn­ingum HMS. Af óverð­tryggðum lánum er greiðslu­byrðin hins vegar 40% þyngri en fyrir Covid-far­ald­ur­inn. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjarabaráttan

GreiningKjarabaráttan

Kjara­við­ræður stranda á for­sendu­á­kvæðum og breið­fylk­ingin fundar um mögu­legar verk­falls­að­gerðir

Formaður VR fékk í gær sam­þykkta heim­ild til þess að grípa til aðgerða og félög innan breið­fylk­ing­ar­innar hafa blásið til fundar í dag þar sem rætt verður um næstu skref. Um tals­verðan við­snún­ing er að ræða frá því að kjara­við­ræður hófust fyrst. Nú hafa við­ræð­urnar harðnað og er það fyrst og fremst vegna ósættis um for­sendu­á­kvæði í langa­tíma­kjara­samn­ingnum.
GreiningKjarabaráttan

Af hverju dó ham­ingjan milli breið­fylk­ing­ar­innar og Samtaka atvinnu­lífs­ins?

Allt annar tónn hefur verið í kjara­bar­átt­unni nú en síð­ustu miss­eri. Við­semj­endur ætl­uðu að taka höndum saman og auka stöð­ug­leika í efna­hags­líf­inu. En svo heyrð­ist lítið af fram­gangi. Í þess­ari viku var við­ræðum slitið og deil­unni vísað til rík­is­sátta­semj­ara. Margir klór­uðu sér í hausnum og spurðu hvað hefði eig­in­lega gerst? Svarið við því er: ansi margt.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár