SA: 375 þúsund króna lágmarkslaun ekki „í samræmi við raunveruleikann“

Fram­kvæmda­stjóri SA segir að launa­kostn­aður fyr­ir­tækja muni hækka um 200 til 300 millj­arða verði kröfur Stétt­ar­fé­lags­ins Fram­sýnar að veru­leika.

Halldór Benjamín Þorbergsson
Halldór Benjamín Þor­bergs­son Mynd: sa.is

Fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins segir kröfur um 375 þús­und króna lág­marks­laun ekki „í sam­ræmi við raun­veru­leik­ann“. Upphæðin muni hækka launa­kostnað hjá fyr­ir­tækjum um 200 til 300 millj­arða sem valdi öllum tjóni. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag.

Stétt­ar­fé­lagið Framsýn á Húsavík kynnti á þriðju­dag kröfu­gerð vegna vænt­an­legra kjara­samn­inga. Samkvæmt henni er miðað við 375 þús­und króna lág­marks­laun fyrir fullt starf.

Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, segir að slík nálgun muni leiða til rangrar nið­ur­stöðu fyrir alla. „Á sama tíma og verka­lýðs­fé­lögin eru að kalla eftir ábyrgð atvinnu­lífs­ins og skiln­ingi á stöðu þeirra sem lægst hafa launin, þá virð­ast mörg þeirra vera að sýna tak­mark­aðan skiln­ing á stöðu fyr­ir­tækj­anna, sem félags­menn verka­lýðs­fé­lag­anna starfa hjá,“ segir Halldór við Morg­un­blaðið. „Það er vit­an­lega umhugs­un­ar­efni fyrir okkur öll, ef verka­lýðs­fé­lögin ætla að fara fram með þessum hætti og sýna þar með tak­mark­aða ábyrgð í atvinnu­líf­inu.“

Halldór bendir á að fyr­ir­tækin í land­inu greiði rétt um eitt þús­und millj­arða í laun og launa­tengd gjöld á hverju ári og að hlut­fall launa og launa­tengdra gjalda hafi aldrei verið hærra. „Við hjá Samtökum atvinnu­lífs­ins vonum heils­hugar, að kröfur þeirra verka­lýðs­fé­laga, sem munu leiða þær kjara­við­ræður sem framundan eru verði í meira sam­ræmi við raun­veru­leik­ann, en þessar kröfur Fram­sýnar eru,“ segir Halldór.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár