Af hverju dó hamingjan milli breiðfylkingarinnar og Samtaka atvinnulífsins?

Af hverju dó hamingjan milli breiðfylkingarinnar og Samtaka atvinnulífsins?

Allt annar tónn hefur verið í kjara­bar­átt­unni nú en síð­ustu miss­eri. Við­semj­endur ætl­uðu að taka höndum saman og auka stöð­ug­leika í efna­hags­líf­inu. En svo heyrð­ist lítið af fram­gangi. Í þess­ari viku var við­ræðum slitið og deil­unni vísað til rík­is­sátta­semj­ara. Margir klór­uðu sér í hausnum og spurðu hvað hefði eig­in­lega gerst? Svarið við því er: ansi margt.

Á milli jóla og nýárs, nánar til­tekið 28. des­em­ber, urðu þau tíð­indi að breið­fylk­ing lands­sam­banda og stærstu stétt­ar­fé­laga á almenna vinnu­mark­aðnum, sem er með samn­ings­um­boð fyrir 93 pró­sent alls launa­fólks innan Alþýðu­sam­bands Íslands, og Samtök atvinnu­lífs­ins sendu frá sér sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu. Í henni kom fram að þessir aðilar vinnu­mark­að­ar­ins, sem hafa deilt hart og opin­ber­lega á und­an­förnum árum, ætl­uðu að taka „höndum saman um gerð lang­tíma­kjara­samn­inga sem auka fyr­ir­sjá­an­leika og stöð­ug­leika í efna­hags­líf­inu.“

Þar sagði enn fremur að eitt mik­il­væg­asta verk­efnið í kom­andi kjara­við­ræðum væri að ná niður mik­illi verð­bólgu og háu vaxta­stigi sem komið hafi hart niður á bæði heim­ilum og fyr­ir­tækjum. 

Til að það mark­mið náist yrðu allir aðilar vinnu­mark­að­ar­ins, fyr­ir­tæki lands­ins, ríki og sveit­ar­fé­lög að leggj­ast á eitt og getur eng­inn skor­ast undan ábyrgð. Samn­ings­að­ilar skora á fyr­ir­tæki lands­ins, ríki og sveit­ar­fé­lög að styðja mark­mið kjara­samn­ing­anna um að ná niður verð­bólgu og þar með vöxtum, …

Kjósa
81
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ríkið hefur enga fjárhagslega burði til nokkurs hlutar reksturinn gleypir tekjurnar. Nú fékk það lottóvinning, getur hafnað þátttöku í “þjóðarsátt” vegna Grindarvíkur og svo lagt á skatta fyrir tjóni Grrindvíkinga.
    0
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Vilja hægri menn og fjármagnseigendur ekki bara hafa verðbólguna? Þeir vilja ekkert gera til að vinna gegn henni. Það er greinilegt að stigið hefur verið á tærnar á henni Sigríði Margréti.
    1
  • Sigurður Sigurðsson skrifaði
    Stóð aldrei til hjá sa
    1
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Fulltrúar atvinnurekenda fá meira i launaumslagið með prosentuhækkunm. Einföld skýring er oftast sú rétta
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjarabaráttan

Kjaraviðræður stranda á forsenduákvæðum og breiðfylkingin fundar um mögulegar verkfallsaðgerðir
GreiningKjarabaráttan

Kjara­við­ræður stranda á for­sendu­á­kvæðum og breið­fylk­ingin fundar um mögu­legar verk­falls­að­gerðir

Formaður VR fékk í gær sam­þykkta heim­ild til þess að grípa til aðgerða og félög innan breið­fylk­ing­ar­innar hafa blásið til fundar í dag þar sem rætt verður um næstu skref. Um tals­verðan við­snún­ing er að ræða frá því að kjara­við­ræður hófust fyrst. Nú hafa við­ræð­urnar harðnað og er það fyrst og fremst vegna ósættis um for­sendu­á­kvæði í langa­tíma­kjara­samn­ingnum.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár