Gagnrýnir að barátta gegn kynferðislegu ofbeldi sé sögð pólitískur rétttrúnaður

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, þing­kona Sjálf­stæð­is­flokks­ins, er gáttuð á því að forn­eskju­legum við­horfum í garð kvenna sé hampað í Morg­un­blað­inu. Slíkt dæmi þá úr leik sem að standi.

Gagnrýnir að barátta gegn kynferðislegu ofbeldi sé sögð pólitískur rétttrúnaður
Hundóá­nægð með Moggann Áslaug Arna er óánægð með að Morg­un­blaðið sjái ástæðu til að berg­mála úreltar skoð­anir þar sem dólgs­leg hegðun í garð kvenna er rétt­lætt. Mynd: xd.is

Þó að dólgs­leg hegðun í garð kvenna hafi mögu­lega verið algeng á árum áður þýðir það ekki að slík hegðun hafi verið eðli­leg. Það að vísa til gam­alla tíma með þeim rökum að slíkt hafi tíðkast þá rétt­lætir ekki ofbeldi eða kven­fyr­ir­litn­ingu. „Það minnir aðeins á þá stað­reynd að á þeim tíma stigu brota­þolar ekki fram og sögðu ekki frá brotum eða ósæmi­legri hegðun í sinn garð.“

Þetta skrifar Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, þing­kona Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í kjall­ara­grein í Morg­un­blað­inu í dag. Tilefni skrifa Áslaugar Örnu eru birt­ing Stak­steina Morg­un­blaðs­ins í gær á pistli eftir Halldór Jónsson verk­fræð­ing þar sem hann lýsir því hvernig hann hegð­aði sér gagn­vart stúlkum á dansæf­ingum í MR sem ungur maður og setur það í sam­hengi við nauðg­unará­sak­anir gegn Brett Kavan­augh, dóm­ara­efni Repúblik­ana í Hæsta­rétt Banda­ríkj­anna og karl­rembu­menn­ingu hjá Orku­veitu Reykja­víkur. Í pistl­inum lýsir Halldór því hvernig hann hafi hegðað við slík tæki­færi. Voru lýs­ing­arnar með þeim hætti að Halldór hefði hellt í sig brenni­víni, boðið stelpum upp og reynt allt til „að vanga þær og trukka og helst að kom­ast í sleik.“ 

Lýs­ing­arnar vöktu litla hrifn­ingu í gær og lýsti Benedikt Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra, því meðal ann­ars yfir að honum hefði orðið óglatt við lest­ur­inn þar sem „tveir ógeðs­legir gamlir karlar sleikja botn­inn á mykju­haugnum, annar með því að halda að það sé snið­ugt að skrifa svona, hinn með því að halda að það sé snið­ugt að birta svona skrif.“

Áslaug Arna er á sama máli og Benedikt, þó hún taki ekki jafn harka­lega til orða. Segir hún í grein sinni að vart sé hægt að trúa því að fólk hafi svo gam­al­dags við­horf til sam­skipta kynj­anna sem sjá megi í skrifum Halldórs. Enn meira komi þó á óvart að nokkur sjái til­efni til þess að hampa slíkum við­horfum. „Sumir reyna að rétt­læta ýmiss konar ósæmi­lega hegðun og rudda­skap með þeim rökum að þetta hafi nú ekki þótt mikið mál hérna einu sinni. Því miður snú­ast slíkar rétt­læt­ingar oft­ast um forn­eskju­legt við­horf til kvenna,“ skrifar Áslaug Arna.

„Að standa gegn kyn­ferð­is­brotum hefur heldur ekk­ert að gera með póli­tískan rétt­trúnað.“

Áslaug Arna segir að hegðun sem ekki sé í lagi í dag hafi heldur ekki verið í lagi hér áður fyrr. Það hafi ekk­ert að gera með póli­tískan rétt­trúnað heldur virð­ingu fyrir fólki. „Að standa gegn kyn­ferð­is­brotum hefur heldur ekk­ert að gera með póli­tískan rétt­trúnað. Ég kæri mig lítið um að menn blandi dólgs­legri hegðun í garð kvenna inn í umræðu um póli­tískan rétt­trúnað og saki þá sem ekki hlæja að gömlum grodd­ara­sög­unum um að hafa tapað sér í rétt­trún­aði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár