Óglatt eftir lestur Moggans og segir að Davíð og Halldór séu „ógeðslegir gamlir karlar“

Í Stakstein­um Morg­un­blaðs­ins er birt frá­sögn Hall­dór Jóns­son­ar verk­fræð­ings af því hvernig hann „reyndi allt“ til að vanga, „trukka“ og kom­ast í „sleik“ á mennta­skóla­ár­un­um án „mik­ill­ar mót­spyrnu“. Hall­dór og rit­stjór­ar Morg­un­blaðs­ins hæð­ast að Demó­kröt­um í Banda­ríkj­un­um fyr­ir að taka nauðg­un­arásak­an­ir gegn dóm­ara­efni Don­alds Trump al­var­lega.

Óglatt eftir lestur Moggans og segir að Davíð og Halldór séu „ógeðslegir gamlir karlar“

Staksteinar Morgunblaðsins í dag hafa vakið mikla hneykslan, en þar er endurbirtur pistill eftir Halldór Jónsson verkfræðing þar sem hann lýsir því hvernig hann hegðaði sér gagnvart stúlkum á dansæfingum í MR sem ungur maður og setur það í samhengi við nauðgunarásakanir gegn Brett Kavanaugh, dómaraefni Repúblikana í Hæstarétt Bandaríkjanna og karlrembumenningu hjá Orkuveitu Reykjavíkur.

Benedikt Jóhannesson, stofnandi Viðreisnar og fyrrverandi fjármálaráðherra, segir að sér hafi orðið óglatt þegar hann las pistilinn. „Tveir ógeðslegir gamlir karlar sleikja botninn á mykjuhaugnum, annar með því að halda að það sé sniðugt að skrifa svona, hinn með því að halda að það sé sniðugt að birta svona skrif,“ skrifar hann á Facebook

Í pistlinum sem er endurbirtur í Staksteinum rifjar Halldór Jónsson verkfræðingur upp hvernig hann hegðaði sér á dansæfingum á menntaskólaárunum. „Búinn að tendra sig upp á brennivíni og Camelsmók bauð maður stelpunum upp og reyndi allt til að vanga þær og trukka og helst að komast í sleik,“ skrifar hann og  bætir við: „Þessi hegðun myndi koma í veg fyrir að ég yrði samþykktur í embætti ef Trump myndi vilja hygla mér eins og Kawanough eða hvernig það er stafað. Sá kall hegðaði sér eitthvað svona á menntaskólaböllum fyrir einum þrjátíu árum. Nú ætla demókratarnir að nota það til að hindra að þessi dóni komist í Hæstarétt Bandaríkjanna.“

Þarna vísar hann til dómaraefnis Repúblikana sem hefur verið sakaður um tilraun til nauðgunar, að hafa veist að stúlku á framhaldsskólaárunum, haldið henni niðri og reynt að þvinga hana til kynmaka. 

„Ef bara hefðu verið dömufrí í MR í gamla daga hefði mér líklega sjaldnar verið boðið upp en þeim myndarlegri.  Fyrir bragðið hefði ég líklega minna á samviskunni varðandi mögulegt embættisgengi og færri stelpur hefði talið sig geta hankað mig á einhverju, þó svo að ég hafi ekki orðið var við mikla mótspyrnu þeirra á þeim tíma. En kannski hef ég bara fattað þetta vitlaust eins og þeir í Orkuveitunni,“ segir í pistli Halldórs.

„Ef bara konur mættu hafa kynferðislegt frumkvæði í formi almenns dömufrís  en ekki þessir ólaungröðu kallar sem vaða allstaðar uppi, bæði prelátar, paragraffistar og pólitíkusar, þá yrðu kannski færri vandræði en nú ríða allstaðar húsum.“ 

Ritstjórar Morgunblaðsins, þeir Davíð Oddsson og Haraldur Johannessen, töldu ástæðu til að endurbirta pistilinn á síðum Morgunblaðsins. Þar bæta þeir eftirfarandi athugasemd við: „Frábært hve flokkur þeirra Kennedys og Clintons er orðinn heilagur.“ John F. Kennedy og Bill Clinton voru báðir staðnir að framhjáhaldi í forsetatíð sinni. Clinton hefur verið sakaður um kynferðisbrot, en slíkar ásakanir komu aldrei fram gegn Kennedy. Að þessu leyti virðist staksteinahöfundur leggja framhjáhald að jöfnu við nauðgunarmál. 

Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, er einn þeirra sem tjá sig um ritstjórnarskrif Morgunblaðsins. „Ritstjórnargrein í Mbl. Um pistil sem lýsir því yfir að það sé bölvað vesen og réttrúnaður að mega ekki lengur drekka sig í gang til að „trukka“ og troða sér í sleik við konur sem vilja það ekki. Illa farið með rétt kalla til að brjóta á og niðurlægja konur. #gamlirhvítirkarlar,“ skrifar hann á Twitter. Benedikt Jóhannesson segist enn einu sinni sjá eftir því að vera búinn að segja upp áskrift að Morgunblaðinu, því þá geti hann ekki gert það í dag. „Mér varð bókstaflega óglatt að lesa um þetta,“ skrifar hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynbundið ofbeldi

Rúm milljón kvenna og stúlkna hefur misst aðgang að mannúðaraðstoð
ErlentKynbundið ofbeldi

Rúm millj­ón kvenna og stúlkna hef­ur misst að­gang að mann­úð­ar­að­stoð

„Kvenna­sam­tök­in sem eiga í hættu á að verða lok­að eru í fremstu víg­línu al­var­leg­ustu mann­úð­ar­kreppu heims,“ seg­ir yf­ir­mað­ur mann­úð­ar­starfs hjá UN Women. Níu­tíu pró­sent kvenna­sam­tak­anna segj­ast ekki geta sinnt þjón­ustu sinni. Kyn­ferð­isof­beldi á átaka­svæð­um hef­ur tvö­fald­ast og færri stúlk­ur fara í skóla.
Ómenning að líta á kynferðisbrot sem „fórnarkostnað við skemmtun“
Innlent

Ómenn­ing að líta á kyn­ferð­is­brot sem „fórn­ar­kostn­að við skemmt­un“

Drífa Snæ­dal talskona Stíga­móta seg­ir orð­ræðu um kyn­ferð­is­brot á úti­há­tíð­um „ein­kenn­is­merki þess að of­beldi er lát­ið við­gang­ast í sam­fé­lag­inu“. Um helg­ina voru fjög­ur kyn­ferð­is­brot á úti­há­tíð­um til­kynnt til lög­reglu en há­tíð­ar­hald­ar­ar og lög­regla tala um að há­tíð­ar­höld hafi al­mennt geng­ið vel.
Þórhildur Sunna: „Í hvaða veruleika búa þau eiginlega?“
Fréttir

Þór­hild­ur Sunna: „Í hvaða veru­leika búa þau eig­in­lega?“

Lög­regla taldi ekki til­efni til að hefja rann­sókn á meintri nauðg­un þeg­ar mað­ur sagð­ist hafa sett lim í enda­þarm sof­andi 17 ára stúlku sem vildi ekki enda­þarms­mök. Þing­kona Pírata og formað­ur Laga- og mann­rétt­inda­nefnd­ar Evr­ópu­ráðs­þings­ins seg­ir að af­staða ákæru­valds­ins og mál­ið allt valdi henni veru­leg­um áhyggj­um af stöðu kyn­ferð­is­brota­mála í ís­lensku rétt­ar­vörslu­kerfi.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Bjarni kominn með hlut í fjölskyldufyrirtækinu
2
ViðskiptiViðskipti Bjarna Benediktssonar

Bjarni kom­inn með hlut í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu

Bjarni Bene­dikts­son er orð­inn hlut­hafi í Al­fa, fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki Eng­ey­inga, sem er stærsti eig­andi Kynn­is­ferða og á hlut í fjölda skráðra fé­laga á mark­aði. Fé­lag­ið seldi Tékk­land bíla­skoð­un og Bjarni fær um 19 millj­ón­ir króna í arð. Bjarni hef­ur áð­ur sagst ekki koma að rekstri við­skipta­veld­is fjöl­skyld­unn­ar.
Krefjast tæps milljarðs af félagi þingmanns
3
Stjórnmál

Krefjast tæps millj­arðs af fé­lagi þing­manns

Kröf­ur upp á 981 millj­ón eru und­ir í beiðni um nauð­ung­ar­sölu á lóð­um fé­lags­ins Rend­er Centi­um ehf. í Mos­fells­bæ. Berg­þór Óla­son, þing­mað­ur Mið­flokks­ins, og fað­ir hans eiga fé­lag­ið sem átti að byggja þjón­ustu­íbúð­ir fyr­ir aldr­aða á lóð­inni en hef­ur rift samn­ingn­um. Mál­ið varp­ar ljósi á bygg­ing­ar­verk­efni þing­manns­ins víða um land en hann seg­ist sína að­komu ekki tíma­freka.

Mest lesið í mánuðinum

Samherjabörnin greiddu lán foreldra sinna með eignarhlut í stærsta eiganda Samherja
2
Viðskipti

Sam­herja­börn­in greiddu lán for­eldra sinna með eign­ar­hlut í stærsta eig­anda Sam­herja

Lán­ið sem Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga Stein­unn Guð­munds­dótt­ir veittu börn­um sín­um til að kaupa nærri helm­ings hlut í Sam­herja af þeim hef­ur ver­ið gert upp. Börn­in, þau Bald­vin, for­stjóri Sam­herja, og Katla Þor­steins­börn eru nú orðn­ir með­eig­end­ur for­eldra sinna í fé­lög­un­um sem lán­uðu þeim fyr­ir kaup­un­um. Sam­þykkt­ir fé­lags­ins tryggja þeim fast­ar arð­greiðsl­ur úr K&B á hverju ári.
Sagt upp í Ráðhúsinu þar sem hún lá á bráðamóttöku
6
Innlent

Sagt upp í Ráð­hús­inu þar sem hún lá á bráða­mót­töku

Þeg­ar Hólm­fríð­ur Helga Sig­urð­ar­dótt­ir lagði hjólandi af stað í vinn­una í síð­ustu viku grun­aði hana ekki hvað var í vænd­um. Hún varð fyr­ir bíl og þar sem hún lá slös­uð á bráða­mót­töku var henni sagt upp störf­um sem upp­lýs­inga­full­trúi í Ráð­hús­inu. Hún seg­ir frá því þeg­ar hún fékk „ tvö rot­högg á ein­um ör­laga­rík­um degi“.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár