Allir eru að byrja upp á nýtt

Salóme Herdís Bjarna­dóttir var að byrja í Versló og það eru mikil við­brigði.

Allir eru að byrja upp á nýtt

Ég var að byrja á fyrsta ári í Versló. Ég var búin að vera ógeðs­lega stressuð fyrir fyrstu skóla­dög­unum. Nú verð ég að reyna að verða meira opin svo ég kynn­ist nýju fólki. Í stærð­fræði­tíma um dag­inn var ég meira að spá í hvort ég ætti að segja eitt­hvað við stelpuna sem sat við hlið­ina á mér heldur en að hlusta á kennar­ann. Ég var bara að reyna að finna upp á ein­hverju að segja allan tím­ann. 

Mér finnst ég ekki sér­stak­lega opin mann­eskja. Jú, ég get alveg verið opin en ég get líka farið alveg inn í mig. Reyndar eru margir lok­aðir og feimnir svona fyrst. Sumir eru samt van­ari því að vera í stórum skóla og hitta fólk á göng­unum sem það þekkir ekki. Ég er ekki vön því. Ég er að koma úr Hlíða­skóla. Hann er lít­ill, við þekkt­umst öll og vorum mikil heild. Maður gat verið 100% maður sjálfur þar. Ég var vön að segja allar mínar skoð­anir. 

Nú er þetta allt öðru­vísi. Nú þarf ég að passa í hverju ég er, hvernig ég lít út, hvað ég er að gera, hvað ég er að segja. Þetta á samt örugg­lega eftir að breyt­ast. Svo er eitt  þægi­legt við þetta. Allir eru að byrja upp á nýtt. Í raun og veru getur þú algjör­lega breytt þér þegar þú byrjar í mennta­skóla, ef þú vilt. 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár