Skyldi þetta vera mennskur hundur?

Bryn­hildur Gísla­dóttir og tíkin Táta er tengdar tryggð­ar­böndum. Þær skilja hvor aðra.

Skyldi þetta vera mennskur hundur?
Varð fyrir íþrótta­meiðslum Tíkin Táta varð fyrir íþrótta­meiðslum á dög­unum þegar hún elt­ist við kan­ínu. Bryn­hildur eig­andi hennar er eilítið kvíð­inn fyrir aðgerð­inni sem Táta þarf að fara í af þeim sökum.

„Synir mínir minna mig stundum á að hún sé bara hundur. Við erum rosa­lega nánar. Hún les mig og ég les hana. Ég horfi stundum á hana og hugsa: Skyldi þetta vera mennskur hundur? Við erum svona um það bil jafn­gamlar, ég er 61 árs og hún er 9 ára í hunda­árum, sem er svona um það bil sex­tugt í mannsárum.

Hún er að fara í aðgerð á morgun, því hún er með íþrótta­meiðsl. Mér finnst svo­lítið flott að svona full­orð­inn hundur sé með íþrótta­meiðsl. Það vildi þannig til að ég fór með hana á upp að Rauða­vatni. Þar elti hún kan­ínu inn í skóg­inn en kom til baka haltr­andi. Ég þurfti að halda á henni alla leið­ina í bíl­inn, sem var gott kross­fit fyrir mig, gömlu kon­una.

Ég er með þetta áhyggjugen, svo ég er voða­lega kvíðin fyrir þess­ari aðgerð hennar. Mér þykir bara svo ofsa­lega vænt um hana. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár