Fundargerð rituð 10 mánuðum eftir að fundurinn átti sér stað

Bragi Guð­brands­son boð­aði til fund­ar­ins en afar óvenju­legt er að for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu skipti sér af því hvort ein­stök börn fari í Barnahús.

Fundargerð rituð 10 mánuðum eftir að fundurinn átti sér stað

Barna­vernd­ar­stofa útbjó fund­ar­gerð um fund sem hald­inn var í húsa­kynnum Barna­vernd­ar­stofu að frum­kvæði Braga Guð­brands­sonar um mál stúlku sem vísað hafði verið í Barnahús tíu mán­uðum eftir að fund­ur­inn átti sér stað. Þeim sem sátu fund­inn var ekki send fund­ar­gerðin til stað­fest­ingar. 

Þetta kemur fram í úttekt Kjartans Bjarna Björg­vins­sonar hér­aðs­dóm­ara og Krist­ínar Bene­dikts­dóttur dós­ents um máls­með­ferð og athugun vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins á kvört­unum barna­vernd­ar­nefnda undan starfs­háttum Barna­vernd­ar­stofu. Ekki er tekin afstaða til þess­ara vinnu­bragða Barna­vernd­ar­stofu í úttekt­inni, enda lýtur úttektin einkum að máls­með­ferð og athugun vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins vegna kvart­ana barna­vernd­ar­nefnda.

Fund­ur­inn hjá Barna­vernd­ar­stofu var hald­inn þann 20. jan­úar 2017 eftir að barna­vernd hafði farið fram á að önnur stúlkn­anna í svoköll­uðu Hafn­ar­fjarð­ar­máli færi í við­tal í Barna­húsi vegna grun­semda barna­vernd­ar­nefndar og með­ferð­ar­að­ila um kyn­ferð­is­lega mis­notkun af hálfu föður. Um er að ræða sömu börn og Bragi Guð­brands­son beitti sér fyrir, í byrjun jan­úar 2017, að yrðu látin umgang­ast föður sinn sam­kvæmt þeim skráðu sam­tíma­gögnum sem til eru um málið.

Lög­reglan gerði ráð fyrir að stúlkan færi í við­tal í Barna­húsi og til­kynnti að beðið yrði eftir nið­ur­stöðum við­tals­ins. Til­vís­un­ar­bréf barna­vernd­ar­nefndar gleymd­ist hins vegar í póst­hólfi Barna­húss auk þess sem tölvu­póst­kerfið bil­aði á sama tíma. 

Loks boð­aði Bragi til sér­staks fundar um mál stúlkunnar þann 20. jan­úar. Þar lýsti hann efa­semdum um trú­verð­ug­leika þeirra upp­lýs­inga sem borist höfðu frá list­með­ferð­ar­fræð­ingi sem barna­vernd­ar­nefnd Hafn­ar­fjarðar hafði sent stúlk­urnar til. Engu að síður var ákveðið að stúlk­urnar færu ekki í við­tal í Barna­húsi en yrðu áfram hjá list­með­ferð­ar­fræð­ingnum.

Eins og Stundin greindi frá þann 4. júní síð­ast­lið­inn er mjög óvenju­legt að for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu hafi afskipti af því hvort til­tekin börn fari í við­tal í Barna­húsi eða boði til fundar um slík mál. Þetta stað­festi Ólöf Ásta Farest­veit, for­stöðu­maður Barna­húss, auk þess sem fyrr­ver­andi starfs­maður Barna­húss tók í sama streng og sagði slíkt ekki hafa tíðkast í sinni starfs­tíð. 

Í úttekt Kjartans Bjarna og Krist­ínar er vitnað í minn­is­blað sem sent var Ásmundi Einari Daðasyni félags­mála­ráð­herra þann 18. jan­úar 2018 þar sem sér­stak­lega er vikið að Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu. Þar komi fram að af lestri fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­inga um málið, ann­ars vegar frá Hafn­ar­fjarð­arbæ og hins vegar frá Barna­vernd­ar­stofu, megi greina að aðilum beri ekki saman um máls­at­vik og sam­skipti vegna þeirra.

„Þá er greint frá því að fund­ar­gerð vegna fundar 20. janúar 2017 í húsakynnum Barna­vernd­ar­stofu hafi ekki verið rituð fyrr en 24. nóvem­ber 2017 eða tíu mánuðum eftir að fund­ur­inn átti sér stað,“ segir í úttekt­inni. Auk þess kemur fram að í kjöl­far fyr­ir­spurnar ráðu­neyt­is­ins „stað­festi starfs­maður barna­vernd­ar­nefnd­ar­innar í tölvu­pósti 13. des­em­ber 2017 að engin fund­ar­gerð hafi verið send starfs­mönn­unum sem sátu fund­inn“.

Í minn­is­blað­inu sem vitnað er til í úttekt­inni kemur fram að ásak­anir gegn for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu í málinu séu „afar alvar­legar og að mati skrif­stofu félags­þjónustu þarfn­ast það því sérstakrar skoð­unar við.“

Gagn­rýnir úttekt­ar­nefndin að ráðu­neytið hafi ekki gert full­nægj­andi ráðstaf­anir með vísan til yfir­stjórnunar- og eft­ir­lits­heim­ilda ráð­herra til að upplýsa hvort Bragi og Barna­vernd­ar­stofa hefðu brotið gegn starfs­skyldum sínum. Þannig hafi ráðu­neytið van­rækt rann­sókn­ar­skyld­una og jafn­framt brotið gegn and­mæla­rétti Braga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár