Enn tap á hvalveiðunum 2017 en Kristján heldur ótrauður áfram

Kostn­aður við hval­veiðar Hvals hf. var hærri en tekj­urnar af sölu Hval­kjöts í fyrra. Hvalur hf. hélt úti mörg hund­ruð millj­óna króna starf­semi þrátt fyrir að veiða ekki hvali í fyrra. Hval­veiðar Hvals hf. hefj­ast að nýju á næstu dögum eftir þriggja ára hlé.

Enn tap á hvalveiðunum 2017 en  Kristján heldur ótrauður áfram
Engin áhrif Mótmæli við hval­veiðum hafa engin áhrif segir Kristján Loftsson en árs­reikn­ingar Hvals hf. sýna ár eftir ár að hval­veið­arnar borga sig ekki fjár­hags­lega séð fyrir Hval hf. Mynd: PressPhotos

Tap upp á rúm­lega 10 millj­ónir króna var á starf­semi hval­veiði­hluta Hvals hf. í fyrra. Kostn­aður við hval­veiði­þátt starf­sem­innar nam tæp­lega 875 millj­ónum króna á meðan Hvalur hf. seldi hval­kjöt fyrir 863 millj­ónir króna. Hvalur hf. stund­aði engar hval­veiðar í fyrra en seldi hluta þess kjöts sem fyr­ir­tækið á til Japans. Þrátt fyrir að fyr­ir­tækið hafi ekki stundað neinar veiðar á lang­reyðum í fyrra nam kostn­að­ur­inn við að við­halda starf­sem­inni og mögu­leik­anum á áfram­hald­andi hval­veiðum hærri upp­hæð en sala á hval­kjöti. Þarf af nam rekstur hval­veiði­skipa, útflutn­ings­tengdur kostn­aður og ýmis kostn­aður í Hval­firði rúm­lega 638 millj­ónum króna. 

Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Hvals hf. sem nýlega var skilað til Rík­is­skatt­stjóra eftir að reikn­ing­ur­inn var sam­þykktur á aðal­fundi félags­ins þann 8. maí. Kristján Loftsson er stærsti hlut­hafi Hvals hf. og fram­kvæmda­stjóri félags­ins sem mun hefja hval­veiðar að nýju við Ísland á næstu dögum. Hval­veið­unum var mót­mælt við Reykja­vík­ur­höfn í gær, sunnu­dag, en til stóð að veiðar hæfust að nýju þá eftir þriggja ára hlé.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hvalveiðar

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár