Dæmdar fyrir mótmæli á hvalveiðiskipi

Tvær konur voru í dag dæmdar til að greiða sekt fyrir að hafa dvalið í hval­veiði­skipum við Reykja­vík­ur­höfn í rúman sól­ar­hring til að mót­mæla hval­veiðum á Íslandi.

Dæmdar fyrir mótmæli á hvalveiðiskipi
Sahar Babaei Sahar Babaei, einnig þekkt sem Anahita Sabaei, var við­stödd dóms­upp­kvaðn­ing­una ásamt Katrínu Odds­dóttur, lög­manni kvenn­anna. Mynd: Golli

Tvær erlendar konur sem mót­mæltu hval­veiðum Íslend­inga með því að klifra um borð í hval­veiði­skip í Reykja­vík­ur­höfn haustið 2023 og dvelja þar í meira en sól­ar­hring voru sak­felldar og dæmdar til að greiða sekt upp á 200 þús­und krónur hvor og máls­kostnað.

„Þetta tap­að­ist,“ sagði Katrín Odds­dóttir, verj­andi kvenn­anna, eftir að dóm­ur­inn var kveð­inn upp. Hún sagði ekk­ert tjón hafa orðið af gjörðum kvenn­anna og að málið hafi varðað tján­ing­ar­frelsi.

Hún sagði að kon­urnar mundu skoða að áfrýja í mál­inu. „Akkúrat núna eru þetta von­brigði og ekki gott fyrir íslenskt rétt­ar­kerfi að mínu mati,“ sagði hún.

Sahar Babaei, íranskur rík­is­borg­ari, og Elissa May Phillips, breskur rík­is­borg­ari, voru ákærðar fyrir hús­brot og brot gegn lögum um sigl­ing­ar­vernd. Í sept­em­ber 2023 klifr­uðu þær upp í útsýnist­urna í möstrum hval­veiði­skip­anna Hvals 8 og Hvals 9 í eigu fyr­ir­tæk­is­ins Hvals hf. og héldu þar til í 33 klukku­stundir. Fyr­ir­tækið kærði kon­urnar …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Ég er ekkert viss um að dómstóll sögunnar verði þeim endilega svo óvilhallur. En burtséð frá þessu máli þá eru dómstólar bara leikvöllur peninganna, dómar falla lang oftast þeim fjársterkari í vil. Þar fæst sjaldnast réttlæti heldur bara úrskurður.
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvalveiðar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár