Sigldu með dauðan hval fram hjá fólki í hvalaskoðun

Hval­veiði­bátur með dauða lang­reyði bundna við stjórn­borð­ann blasti við hvala­skoð­un­ar­báti í Faxaflóa í gær. „Enginn átti til orð,“ segir Sigrún Helgu­dóttir, leið­sögu­maður um borð. „Það eru fleiri leiðir til að nýta auð­lindir en að veiða og drepa,“ segir Rannveig Grét­ars­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Eldingar.

Hvalaskoðunarbátur mætti hvalveiðibát
Hvala­skoð­un­ar­bátur mætti hval­veiði­bát „Þetta var pínu sjokker­andi fyrir far­þeg­ana,“ segir Sigrún. Mynd: Sigrún Helgudóttir / Aðsend

„Þetta var eitt­hvað sem engan langar að sjá,“ segir Sigrún Helgu­dóttir, leið­sögu­maður hjá Eldingu og Whale Safari. Hún var með hóp af ferða­mönnum í hvala­skoðun út frá Reykja­vík þegar hval­veiði­bátur kom siglandi fram­hjá með veidda lang­reyð.

Sigrún lýsir því hvernig hóp­ur­inn hafi verið að fylgj­ast með lif­andi hnúfu­bak þegar atvikið hafi átt sér stað. „Enginn átti til orð. Heldur ekki ég sjálf. Það tók mig smá stund að finna orðin til að útskýra fyrir fólk­inu á hvað við værum að horfa.“

Hún segir gest­ina flesta hafa orðið veru­lega hissa. „Flestir átt­uðu sig ekk­ert endi­lega á því að Íslend­ingar væru enn þá að veiða hvali. Þannig þetta var pínu sjokker­andi fyrir far­þeg­ana.“

Sigrún segir að hún hafi átt von á því að upp­á­koma sem þessi gæti átt sér stað. „Við vissum að þeir væru að fara í gegnum okkar hvala­skoð­un­ar­svæði og það á end­anum hlaut að hitta svona …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Einar Skúli Hjartarson skrifaði
    er ekki hægri umferð á sjó hver silgdi framhjá hverjum?
    0
  • ÁJ
    Ástþór Jóhannsson skrifaði
    Þetta er eftir öðru. Ekkert nema endalaus hrokinn og ósóminn í kringum þessar hvalveiðar.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvalveiðar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár