Inga ætlar að standa með atvinnuvegaráðherra „fram í rauðan dauðann“

Inga Sæland segir lang­dregið dauða­stríð hvala við veiðar vera dýra­níð og hyggst standa með atvinnu­vega­ráð­herra þegar frum­varp um hval­veiðar kemur til kasta Alþingis. Ólafur Adolfs­son gagn­rýndi svör hennar og kvart­aði síðar undan svör­unum við for­seta þings­ins.

Bann
Bann Inga hefur áður lagt til bann Mynd: Golli

Inga Sæland, mennta- og barna­mála­ráð­herra og for­maður Flokks fólks­ins, seg­ist munu standa með Hönnu Katrínu Frið­riks­son atvinnu­vega­ráð­herra þegar frum­varp hennar um hval­veiðar kemur til kasta Alþingis.

„Ég mun standa með atvinnu­vega­ráð­herra fram í rauðan dauð­ann í öllum þeim málum sem við höfum ákveðið að leggja hér fyrir þingið,“ sagði Inga í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum á Alþingi í dag. 

Hanna Katrín hyggst í febr­úar leggja fram frum­varp um breyt­ingar á lögum um hval­veiðar og hefur stað­fest að í því verði ákvæði um bann við veið­unum.

Inga hefur áður stutt laga­setn­ingu um bann við hval­veiðum. Hún var sjálf meðal flutn­ings­manna frum­varps þess efnis sem lagt var fram á Alþingi haustið 2024. Með henni stóðu meðal ann­ars þing­menn Sam­fylk­ing­ar­innar og Við­reisnar, sem nú sitja með Flokki fólks­ins í rík­is­stjórn.

Frum­varpið hafði ekki orðið að lögum þegar Bjarni Bene­dikts­son, þá starf­andi mat­væla­ráð­herra, gaf Hvali hf. og Tjald­tanga ehf. út …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristín Guðnadóttir skrifaði
    Afturhaldsmennirnir sem eru senditíkur Kristjáns hvalaveiðara á Alþingi vita fullvel hvað þessar hvalveiðar eru viðurstyggilegar og aukinheldur hversu mjög þær skaða ásýnd Íslands út á við. Þeim er nokk sama á meðan þeir fá sporslur og/eða geta komið höggi á ríkisstjórnina.
    2
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    Isn't a ban on whaling long overdue!?
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvalveiðar

InnlentHvalveiðar

Fjöl­skylda Bjarna enn tengd Hval þegar hann gaf veiði­leyfi

Föð­ur­systir Bjarna Bene­dikts­sonar var ein af tíu stærstu hlut­höfum Hvals hf. þegar hann gaf félag­inu umdeilt leyfi til hval­veiða. Hvalur keypti eigin bréf fyrir hálfan millj­arð á meðan hlutur dán­ar­bús föður Bjarna dróst saman. „Það eru engir nákomnir ætt­ingjar mínir sem hafa hags­muni hér,“ sagði Bjarni, sem áður taldi sig van­hæfan í málum félags­ins vegna vensla.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár