Sigldu með dauðan hval fram hjá fólki í hvalaskoðun

Hval­veiði­bát­ur með dauða lang­reyði bundna við stjórn­borð­ann blasti við hvala­skoð­un­ar­báti í Faxa­flóa í gær. „Eng­inn átti til orð,“ seg­ir Sigrún Helgu­dótt­ir, leið­sögu­mað­ur um borð. „Það eru fleiri leið­ir til að nýta auð­lind­ir en að veiða og drepa,“ seg­ir Rann­veig Grét­ars­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri Eld­ing­ar.

Sigldu með dauðan hval fram hjá fólki í hvalaskoðun
Hvalaskoðunarbátur mætti hvalveiðibát „Þetta var pínu sjokkerandi fyrir farþegana,“ segir Sigrún. Mynd: Sigrún Helgudóttir / Aðsend

„Þetta var eitthvað sem engan langar að sjá,“ segir Sigrún Helgudóttir, leiðsögumaður hjá Eldingu og Whale Safari. Hún var með hóp af ferðamönnum í hvalaskoðun út frá Reykjavík þegar hvalveiðibátur kom siglandi framhjá með veidda langreyð.

Sigrún lýsir því hvernig hópurinn hafi verið að fylgjast með lifandi hnúfubak þegar atvikið hafi átt sér stað. „Enginn átti til orð. Heldur ekki ég sjálf. Það tók mig smá stund að finna orðin til að útskýra fyrir fólkinu á hvað við værum að horfa.“

Hún segir gestina flesta hafa orðið verulega hissa. „Flestir áttuðu sig ekkert endilega á því að Íslendingar væru enn þá að veiða hvali. Þannig þetta var pínu sjokkerandi fyrir farþegana.“

Sigrún segir að hún hafi átt von á því að uppákoma sem þessi gæti átt sér stað. „Við vissum að þeir væru að fara í gegnum okkar hvalaskoðunarsvæði og það á endanum hlaut að hitta svona á,“ útskýrir hún …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Einar Skúli Hjartarson skrifaði
    er ekki hægri umferð á sjó hver silgdi framhjá hverjum?
    0
  • ÁJ
    Ástþór Jóhannsson skrifaði
    Þetta er eftir öðru. Ekkert nema endalaus hrokinn og ósóminn í kringum þessar hvalveiðar.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvalveiðar

Mest lesið

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
1
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aft­ur í hjúkr­un­ar­fræði eft­ir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þeg­ar áfall­ið reið yf­ir og þurfti ít­rek­að að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­un­um. Nú stefn­ir hann á að klára nám­ið og koma sterk­ari til baka.
Reykjavíkurborg takmarkar aðgengi að tónlistarnámi
4
Tónlist

Reykja­vík­ur­borg tak­mark­ar að­gengi að tón­list­ar­námi

Þrátt fyr­ir stefnu Reykja­vík­ur­borg­ar um jafn­an rétt til list­sköp­un­ar lýsa skóla­stjórn­end­ur tón­list­ar­skóla þung­um áhyggj­um af þró­un mála. Ald­urstak­mörk hafi orð­ið til þess að vísa þurfti nem­end­um úr námi og aðr­ir kom­ist aldrei að. Sí­fellt sé þrengt að starf­semi tón­list­ar­skóla þar til þeir verði ann­að­hvort að sam­ein­ast eða loka.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár