Dauðastríð, fíflaskapur og eftirför: Allt það helsta um hvalveiðitímabilið

Hvalur hf. hefur veitt tíu lang­reyðar það sem af er hval­veiði­tíma­bil­inu sem nú stendur yfir. Skip á vegum Paul Watson veitir Hvali 8 og Hvali 9 eft­ir­för, Mat­væla­stofnun hefur frá­vik til skoð­unar og Heil­brigð­is­eft­ir­lit Vest­ur­lands fylgist með mengun. Heim­ildin tók saman umdeilda ver­tíð.

Umdeilt hvalveiðitímabil
Umdeilt hval­veiði­tíma­bil Ýmislegt hefur gerst á yfir­stand­andi tíma­bili. Mynd: Boris Niehaus/Hard To Port

Yfir­stand­andi hval­veiði­ver­tíð hefur verið mikið í deigl­unni. Fyrsta lang­reyð­urin í tvö ár var veidd 23. júní en síðan þá hafa Hvalur 8 og Hvalur 9 veitt tíu lang­reyðar. Heim­ildin fer hér yfir við­burða­ríka og afar umdeilda ver­tíð.

Watson vill stoppa Kristján á ný

Aðgerð­ar­sinn­inn Paul Watson hefur dregið mikla athygli að hval­veið­unum í ár en hann hefur í ára­tugi barist gegn atvinnu­starf­sem­inni. Watson skrif­aði á sam­fé­lags­miðla þann 26. júní að skipið Bandero, sem til­heyrir sam­tökum hans, væri á leið til Íslands til að stöðva Kristján Loftsson sem hann kall­aði „morð­óðan raðmorð­ingja“. Síðan Bandero kom inn í íslenska lög­sögu degi síðar hefur varð­skipið Þór á vegum Land­helg­is­gæsl­unnar fylgt skip­inu eftir.

Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir dóms­mála­ráð­herra hefur sagt að gripið verði til aðgerða ef þarf og að málið snú­ist um öryggi áhafn­ar­með­lima, bæði sjó­manna Hvals og erlendu áhafn­ar­innar. „Það er alveg skýrt að hval­veiðar eru lög­legar sam­kvæmt íslenskum lögum, hvað …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvalveiðar

InnlentHvalveiðar

Fjöl­skylda Bjarna enn tengd Hval þegar hann gaf veiði­leyfi

Föð­ur­systir Bjarna Bene­dikts­sonar var ein af tíu stærstu hlut­höfum Hvals hf. þegar hann gaf félag­inu umdeilt leyfi til hval­veiða. Hvalur keypti eigin bréf fyrir hálfan millj­arð á meðan hlutur dán­ar­bús föður Bjarna dróst saman. „Það eru engir nákomnir ætt­ingjar mínir sem hafa hags­muni hér,“ sagði Bjarni, sem áður taldi sig van­hæfan í málum félags­ins vegna vensla.

Mest lesið

4
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár