Úttektin kynnt ríkisstjórn á föstudag

Úttekt Kjartans Bjarna Björg­vins­sonar hér­aðs­dóm­ara og Krist­ínar Bene­dikts­dóttur dós­ents um máls­með­ferð vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins vegna kvart­ana barna­vernd­ar­nefnda verður kynnt rík­is­stjórn í lok vik­unnar og síðan birt almenn­ingi.

Úttektin kynnt ríkisstjórn á föstudag

Úttekt Kjartans Bjarna Björg­vins­sonar hér­aðs­dóm­ara og Krist­ínar Bene­dikts­dóttur dós­ents um máls­með­ferð vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins vegna kvart­ana barna­vernd­ar­nefnda undan Barna­vernd­ar­stofu verður kynnt rík­is­stjórn á föstu­dag og birt í fram­hald­inu. Þetta stað­festir Lára Björg Björns­dóttur, upp­lýs­inga­full­trúi rík­is­stjórn­ar­innar, í sam­tali við Stundina.

Tilkynnt var um gerð úttekt­ar­innar eftir að Stundin fjall­aði með ítar­legum hætti um afskipti Braga Guð­brands­sonar af barna­vernd­ar­máli í Hafn­ar­firði og Ásmundur Einar Daðason félags­mála­ráð­herra við­ur­kenndi að vel­ferð­ar­ráðu­neytið hefði kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Bragi hefði þar farið út fyrir starfs­svið sitt.

Hvorki Alþingi né stjórn­völdum nágranna­ríkj­annna var greint frá því að Bragi hefði fengið til­mæli vegna óeðli­legra afskipta af barna­vernd­ar­máli áður en rík­is­stjórn Íslands bauð Braga fram til Barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna með stuðn­ingi Norð­ur­land­anna.

Utan­rík­is­ráðu­neyti Dan­merkur, Noregs, Sví­þjóðar og Finn­lands hafa greint Stund­inni frá því að þau bíði eftir frek­ari upp­lýs­ingum um fram­gang athug­un­ar­innar og emb­ætt­is­færslur Braga Guð­brands­sonar.

Eins og fram kom í frétt Stund­ar­innar í síð­ustu viku er þó hlut­verk úttekt­ar­að­ila þrengra sam­kvæmt verk­samn­ingi vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins heldur en upp­haf­leg frétta­til­kynn­ing for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins gaf til kynna og lýtur fremur að stjórn­sýslu vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins sjálfs heldur en vinnu­brögðum Braga Guð­brands­sonar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár