Bragi segist aldrei hafa talað við prestinn þvert á hans eigin orð

Bragi Guð­brands­son seg­ist aldrei hafa hitt eða rætt við prest­inn í Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu áður en hann leit­aði til Barna­vernd­ar­stofu. Umræddur maður sagði hins vegar Stund­inni að hann væri mál­kunn­ugur Braga og hefði leitað til hans í erf­iðum málum í gamla daga.

Bragi segist aldrei hafa talað við prestinn þvert á hans eigin orð
Bragi Guð­brands­son Bragi seg­ist á Facebook aldrei hafa hitt eða rætt við prest­inn áður.

Bragi Guð­brands­son hjá Barna­vernd­ar­stofu seg­ist aldrei hafa hitt eða rætt við föður manns­ins sem grun­aður var um kyn­ferð­is­brot gegn dætrum sínum í Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu sem Stundin fjall­aði um í síð­asta blaði áður en afinn leit­aði til Barna­vernd­ar­stofu í des­em­ber 2016. Orð Braga stang­ast á við frá­sögn afans sem seg­ist vera mál­kunn­ugur Braga, hafa þekkt hann í gamla daga og leitað til hans í erf­iðum málum þegar þeir störf­uðu báðir við barna­vernd­ar­mál.

Málið snýst um umfjöllun Stund­ar­innar þar sem greint var frá því að Bragi Guð­brands­son hefði í sam­ráði við föður máls­að­ila í barna­vernd­ar­máli beitt sér fyrir því að faðir, sem barna­vernd­ar­nefnd og með­ferð­ar­að­ili ótt­uð­ust að hefði brotið kyn­ferð­is­lega gegn dætrum sínum, fengi að umgang­ast þær.

Bragi skrif­aði athuga­semd við grein á Facebook-síðu knuz.is á þriðju­dag þar sem fjallað var um mál hans. Í grein­inni var Þóru Kristínu Ásgeirs­dóttur hrósað fyrir fram­göngu sína í Silfri Egils. „Við þekkjum þetta, þetta er afskap­lega óheppi­legt þar sem að konur og börn eru undir í svona við­kvæmum mála­flokki eins og barna­vernd­ar­málum að það sé hægt að benda á það að kunn­ingjar séu að hringja í kunn­ingja og biðja um ein­hverja greiða,“ var haft eftir Þóru. 

Bragi seg­ist í athuga­semd vilja koma til­teknum atriðum á fram­færi vegna pistils­ins. „Ég hef aldrei haft nokkur kynni af neinum sem koma við sögu í umræddu máli, afinn sem hringdi var mér alger­lega ókunn­ugur, hann hef ég aldrei hitt né hafði ég rætt við hann áður en hann bar erindi sitt upp við Barna­vernd­ar­stofu,“ skrifar Bragi. „Allt tal um að umrætt mál sé dæmi­saga um kunn­ingja­sam­fé­lagið er því úr lausu lofti gripið.“

Segir Stundina hafa sett fram kenningu um kunningjatengsl

Í fram­hald­inu var Bragi spurður í athuga­semd af hverju hann hefði haft þessi afskipti af mál­inu og hvaðan sú saga komi að þeir hafi þekkst. „Mér bar skylda til að bregð­ast við kvörtun sem beind­ist að barna­vernd­ar­nefnd sbr. 8. gr. bvl,“ skrifar Bragi. „Ég veit ekki hvernig Stund­inni datt í hug að setja fram þessa kenn­ingu um kunn­ingja­tengsl.“

Rétt er að taka fram að í umfjöllun Stund­ar­innar hefur hvergi verið full­yrt að Bragi og afinn séu kunn­ingjar. Í upp­haf­legri frétt var hins vegar vitnað í afann, sem er þjóð­kirkju­prestur og hefur sjálfur komið að barna­vernd­ar­störfum. „Ég nátt­úr­lega kann­ast við Braga frá því í gamla daga,“ sagði hann. „Ég hef sjálfur verið for­maður barna­vernd­ar­nefndar úti á landi. Það var barna­vernd­ar­nefnd í litlu sveit­ar­fé­lagi sem hafði enga burði og enga starfs­menn. Í erf­iðum málum leit­aði ég til Braga sem ráð­gjafa. Ég þekkti hann á þeim tíma, svo ég er mál­kunn­ugur honum, en þegar ég hringdi í hann núna hafði ég ekki hitt hann í 20 eða 25 ár. Það er eng­inn kunn­ings­skapur milli okkar þannig.“

Í sím­tal­inu sem Stundin átti við afann þann 24. apríl vegna þeirrar umfjöll­unar sem þá var í vinnslu lýsti hann fyrri sam­skiptum sínum við Braga enn nánar. „Ég get nú samt sagt þér – og það lýsir svo­lítið Braga – að þegar ég hringi og kynni mig þá mundi hann eftir erf­iðu máli sem við vorum að eiga við á sínum tíma. Hann mundi nafnið á því barni sem um var að ræða,“ sagði hann. Sjálfur segir Bragi hins vegar á Facebook að afinn sem hringdi í sig í des­em­ber 2016 og bað um aðstoð hafi verið sér „alger­lega ókunn­ugur“. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár