Sýslumaður vitnaði í Braga og sagði ásakanir „tilhæfulausar“

Sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu full­yrti í dag­sekt­ar­úr­skurði gegn móður að ekk­ert benti til þess að faðir hefði brotið gegn dætrum sínum þrátt fyrir að for­stöðu­maður Barna­húss teldi vís­bend­ingar frá list­með­ferð­ar­fræð­ingi um kyn­ferð­is­brot trú­verð­ugar. „List­með­ferð­ar­fræð­ingum er ekki að mér vit­andi ætlað það hlut­verk að rann­saka grun um meint kyn­ferð­is­brot,“ segir lög­maður föð­ur­ins.

Sýslumaður vitnaði í Braga og sagði ásakanir „tilhæfulausar“
Þórólfur Hall­dórs­son er sýslu­maður á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og and­lit emb­ætt­is­ins. Úrskurð­ur­inn sem hér er fjallað um var kveð­inn upp af sýslu­manns­full­trúa. Mynd: Pressphotos

Sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu full­yrti í dag­sekt­ar­úr­skurði gegn móð­ur­inni í Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu sem Stundin fjall­aði um á föstu­dag að ekk­ert benti til þess að barns­faðir hennar hefði brotið gegn dætrum sínum þrátt fyrir að vís­bend­ingar um slíkt hefðu komið fram hjá barna­vernd­ar­nefnd Hafn­ar­fjarðar og í skýrslum frá með­ferð­ar­að­ila sem for­stöðu­maður Barna­húss taldi áreið­an­legar sam­kvæmt gögnum máls­ins. 

Í úrskurð­inum, sem kveð­inn er upp af sýslu­manns­full­trúa þann 10. maí 2017, er móð­irin sökuð um „til­hæfu­lausar“ ásak­anir gegn föður og sögð hafa kært föð­ur­inn til lög­reglu. Raunin er hins vegar sú að það voru barna­vernd Hafn­ar­fjarðar og heim­il­is­læknir í Hafn­ar­firði sem til­kynntu vís­bend­ingar um meint kyn­ferð­is­brot manns­ins til lög­reglu. Þetta kemur skýrt fram í gögnum lög­reglu og barna­verndar Hafn­ar­fjarðar sem Stundin hefur undir höndum. 

Sýslu­maður fer rangt með nöfn stúlkn­anna í úrskurði sínum auk þess sem mis­ræmi er milli nið­ur­stöðukafla úrskurð­ar­ins og úrskurð­ar­orða að því er varðar fjár­hæð dag­sekt­anna sem móð­ur­inni er gert að greiða. 

Þetta er aðeins brot af þeim fjöl­mörgu atriðum sem vekja athygli þegar rýnt er í dag­sekt­ar­úr­skurð Sýslu­manns­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu með hlið­sjón af gögnum máls­ins.

Úrskurð­ur­inn var kærður til dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins sem felldi hann úr gildi þann 17. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn, meðal ann­ars með vísan til þess að mál stúlkn­anna væri enn til skoð­unar vegna meintra kyn­ferð­is­brota.

Bragi leggur áherslu á að hann
hafi ekki snúið sér til sýslumanns

Í við­tölum und­an­farna daga hefur Bragi Guð­brands­son lagt áherslu á að hann hafi ekki haft afskipti af umgengn­is­deilu for­eldr­anna í Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu.

„Ef ég hefði nú ætlað að tryggja föð­urnum aðgang að þessu barni, þá hefði ég þurft að beina mínum erindum til sýslu­manns, sem er sá aðili sem tekur slíkar ákvarð­anir,“ sagði Bragi í Spegl­inum í gær. Þetta end­ur­tók hann svo í Kast­ljósi: „Ef ég ætl­aði að hafa áhrif á að mað­ur­inn fengi umgengni þá hefði ég snúið mér til sýslu­manns.“

Hann lét þess ógetið að við með­ferð dag­sekt­ar­máls föður gegn móður hjá sýslu­manni var byggt á tölvu­pósti frá Braga sjálfum og ummæli hans um sam­tal sitt við barna­vernd­ar­starfs­mann notuð til að und­ir­byggja þá nið­ur­stöðu sýslu­manns að leggja bæri dag­sektir á móð­ur­ina.

Áður hafði jafn­framt Bragi, sam­kvæmt tölvu­pósts­sam­skiptum lög­manna, ráð­lagt föð­urnum að leggja fram skýrslu hjá sýslu­manni um atvikið þann 28. des­em­ber, þegar móðir hætti við að senda dætur sínar á sam­veru­stund þar sem lá fyrir að faðir yrði við­staddur. 

Sýslumaður segir ekkert hafa komið fram

Í úrskurði sýslu­manns er full­yrt að sam­kvæmt grein­ar­gerð lög­fræð­ings móð­ur­innar hafi móð­irin sjálf „kært net­notkun föður til lög­reglu þann 10. des­em­ber 2014“. Ekkert slíkt kemur fram í umræddri grein­ar­gerð og eftir því sem Stundin kemst næst liggja ekki fyrir gögn sem sýna að móð­irin hafi kært net­notkun föð­ur­ins til lög­reglu. Hins vegar er skjal­fest að slík til­kynn­ing barst frá barna­vernd Hafn­ar­fjarðar til lög­reglu þann 10. des­em­ber 2014. 

„Ásakanir um ofbeldi gagn­vart börnum ber að taka alvar­lega en ítrek­aðar ásak­anir um alvar­leg brot gagn­vart börnum sem virð­ast hafa verið til­hæfu­lausar eru ekki síður alvar­legar,“ segir sýslu­maður. „Þrátt fyrir ítrek­aðar kann­anir hefur ekk­ert komið fram sem bendir til að faðir hafi brotið gegn börnum sínum.“ 

Við með­ferð máls­ins hjá sýslu­manni lágu fyrir gögn um a) áhyggjur barna­vernd­ar­nefndar Hafn­ar­fjarðar af umgengni stúlkn­anna við föð­ur­inn og frá­sögn af vís­bend­ingum um kyn­ferð­is­brot, b) grun­semdir list­með­ferð­ar­fræð­ings um kyn­ferð­is­lega mis­notkun föður, og c) full­yrð­ingar for­stöðu­manns Barna­húss um að upp­lýs­ing­arnar frá list­með­ferð­ar­fræð­ingnum hefðu komið fram í frjálsri frá­sögn stúlkn­anna og teld­ust áreið­an­legar.

Í kæru lög­fræð­ings móð­ur­innar til dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins er bent á að sýslu­maður hafi nær ein­vörð­ungu byggt á því að móð­irin væri að „gera sér upp áhyggjur sínar“ jafn­vel þótt hún hefði lagt fram gögn við máls­með­ferð­ina sem styddu áhyggj­urnar.

Sýslumaður vitnaði í Braga

Við með­ferð máls­ins leit­aði sýslu­maður hvorki umsagnar barna­verndar Hafn­ar­fjarðar né list­með­ferð­ar­fræð­ings stúlkn­anna. Þá var sál­fræð­ingi ekki falið að ræða við stúlk­urnar sjálfar. 

Hins vegar vitnar sýslu­maður sér­stak­lega í tölvu­póst Braga Guð­brands­sonar sem Stundin hefur birt, ummæli um að móðir hefði „ekki verið hvött til að brjóta ákvæði umgengn­is­samn­ings“.

Í sama pósti kom fram að barna­vernd­ar­nefnd hefði ekk­ert við það að athuga að fað­ir­inn umgeng­ist stúlk­urnar, en stað­festur útdráttur úr sím­tal­inu bendir ekki til þess að það hafi komið fram í máli barna­vernd­ar­starfs­manns­ins sem Bragi ræddi við. 

Í kæru lög­fræð­ings móð­ur­innar til dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins var gagn­rýnt sér­stak­lega að svo virt­ist sem sýslu­maður hafi tekið orð Braga trú­an­leg án þess að hafa sam­band við barna­vernd­ar­nefnd Hafn­ar­fjarðar sem hafði, ólíkt því sem Bragi hélt fram, ráð­lagt móð­ur­inni að halda stúlk­unum í öruggu skjóli meðan meint kyn­ferð­is­brot væru til skoð­unar. 

Þegar sýslu­maður afhenti máls­að­ilum gögn máls­ins í upp­hafi fylgdu tölvu­pósts­sam­skipti Braga Guð­brands­sonar og afans ekki með þrátt fyrir að vitnað væri til sam­skipt­anna í úrskurð­inum.

Var móð­ur­inni tjáð að tölvu­pósts­sam­skiptin væru ekki hluti af gögnum máls vegna þess að afinn væri ekki aðili þess. Síðar þurfti sýslu­manns­full­trúi að draga í land, afhenda tölvu­pósts­sam­skiptin og biðja móð­ur­ina afsök­unar enda var aug­ljós­lega um máls­gögn að ræða.

Sem kunn­ugt er átti Bragi Guð­brands­son ítrekuð sam­skipti við afann og sagði honum frá sam­skiptum sínum við barna­vernd­ar­nefnd Hafn­ar­fjarðar þrátt fyrir að afinn væri ekki aðili máls.

Segir fordæmi fyrir því að rætt sé við yngri börn

Í úrskurð­inum full­yrðir sýslu­maður án rök­stuðn­ings að það hefði verið þýð­ing­ar­laust fyrir úrlausn máls­ins að fá fram afstöðu barn­anna. Lög­fræð­ingur móð­ur­innar benti á í kæru sinni til dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins að for­dæmi væru fyrir því að sál­fræð­ingur sýslu­manns tæki við­töl við mun yngri börn en þær.

„Umbjóð­andi minn telur mat sýslu­manns óskilj­an­legt og sér­stak­lega í ljósi þeirra gagna sem fyrir lágu í mál­inu. Skýrslur list­með­ferð­ar­fræð­ings­ins eru til þess fallnar að vekja spurn­ingar og því ærin ástæða fyrir sýslu­mann að rann­saka málið betur áður en hann felldi úrskurð­inn,“ segir í kærunni. „Með því að afla frek­ari upp­lýs­inga um málið hefði sýslu­maður getað fengið frek­ari útskýr­ingar á því hvers vegna móðir vill ekki setja stúlk­urnar í eft­ir­lits­lausa umgengni við föður þeirra og hvers vegna stúlk­urnar vilja ekki vera einar með föður sínum. Þess í stað kýs sýslu­maður að minn­ast varla á skýrslur list­með­ferð­ar­fræð­ings­ins sem þó eru mik­il­vægt gagn í máli þessu né afstöðu barna­verndar til máls­ins sem þó kom fram í fylgi­gögnum.“ 

Lög­fræð­ingur móð­ur­innar telur í ljósi þessa að ekki hafi verið gætt að rann­sókn­ar­reglu stjórn­sýslu­laga við með­ferð máls­ins, reglu 10. gr. stjórn­sýslu­laga um að stjórn­valdi beri að gæta að því áður en ákvörðun er tekin að mál sé nægi­lega upp­lýst. 

„Að mati umbjóð­anda míns er það baga­legt að sýslu­maður hafi unnið svo hroð­virkn­is­lega í máli þessu og með engu móti hægt að gera ráð fyrir því að máls­á­stæður umbjóð­anda míns hafi verið teknar til full­nægj­andi skoð­unar við máls­með­ferð sýslu­manns. Það að sak­sókn hafi ekki verið talin rétt í fyrri málum og núver­andi rann­sókn sé í bið losar ekki sýslu­manns­emb­ættið undan því að kanna sjálf­stætt hvort eitt­hvað í mál­inu geti rétt­lætt það að umgengni fari ekki fram. Sú ákvörðun lög­reglu að sækja ekki í mál­inu skiptir ekki aðal­máli, enda fer um sönnun í opin­berum málum eftir öðrum meg­in­reglum en gilda um sönnun í öðrum málum.“ 

Móðir sökuð um lygar 

Í úrskurði sýslu­manns var móð­ur­inni gefið að sök að hafa farið vís­vit­andi með rangt mál þegar hún mætti við fyr­ir­töku þann 30. jan­úar 2017 og greindi frá því að meint kyn­ferð­is­brot föð­ur­ins væru til skoð­unar hjá lög­reglu og í Barna­húsi.

Sýslu­maður rök­styður þetta með því að vísa til þess að þann 23. febr­úar 2017 hafi lög­fræð­ingi móð­ur­innar verið greint frá því að mál stúlkn­anna færi ekki strax í Barnahús heldur yrði áfram í vinnslu hjá barna­vernd­ar­nefnd Hafn­ar­fjarðar og hjá list­með­ferð­ar­fræð­ingi.

„Því liggur fyrir að móðir hafði fengið þær upp­lýs­ingar áður en málið var tekið fyrir á skrif­stofu sýslu­manns,“ segir í úrskurði sýslu­manns. 

Í kæru móð­ur­innar til dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins er bent á að þann 30. jan­úar, í fyr­ir­tök­unni hjá sýslu­manni, vissi móð­irin ekki betur en að lög­reglu­rann­sókn væri í gangi og dæt­urnar á leið­inni í Barnahús, enda hafði hún í höndum afrit af til­vísun fyrir stúlk­urnar frá barna­vernd­ar­nefnd Hafn­ar­fjarðar í Barnahús og til­kynn­ingu til lög­reglu.

„Móðir hafði ekki vit­neskju um að lög­regla hygð­ist bíða eftir nið­ur­stöðu Barna­húss og Barnahús hefði ákveðið að bíða með að taka stúlk­urnar í könn­un­ar­við­töl þar til frek­ari upp­lýs­ingar kæmu frá list­með­ferð­ar­fræð­ingi stúlkn­anna en málið yrði áfram í vinnslu hjá barna­vernd Hafn­ar­fjarðar þegar hún mætti á fund sýslu­manns þann 30. jan­úar 2017 líkt og sýslu­maður heldur fram í úrskurð­inum heldur fékk hún upp­lýs­ingar um stöðu máls­ins hjá barna­vernd­ar­nefnd Hafn­ar­fjarðar þann 23. febr­úar 2017 líkt og kemur fram í gögnum máls­ins (sjá fskj. 17 og 18). Upp­lýs­ingar um stöðu máls­ins hjá lög­reglu fékk hún þann 30. mars 2017 þegar barna­vernd Hafn­ar­fjarðar sendi lög­fræð­ingi hennar afrit af bréfi lög­regl­unnar til barna­vernd­ar­nefndar Hafn­ar­fjarðar um stöðu máls­ins hjá lög­reglu (sjá fskj. 19). Sýslu­manni var því vel kunn­ugt um að þann 30. jan­úar 2017 hafði barna­vernd Hafn­ar­fjarðar sent beiðni um rann­sókn­ar­við­tal við stúlk­urnar í Barnahús ásamt því að mál­inu hafði verið vísað til lög­reglu og umbjóð­andi minn því ekki að fara með rangt mál (fskj. 12 og 13).“ 

Byggt á greinargerð laga sem féllu úr gildi fyrir 15 árum

Athygli vekur að í mati sýslu­manns á því hvort móðir hafi tálmað umgengni með ólög­mætum hætti er byggt sér­stak­lega á grein­ar­gerð sem fylgdi barna­lög­unum frá 1992 en lögin féllu úr gildi fyrir 15 árum síðan.

„Að mati umbjóð­anda míns er það óskilj­an­legt að sýslu­maður styðj­ist við grein­ar­gerð með brott­föllnum lögum þegar hann tekur ákvörðun um svo íþyngj­andi stjórn­valds­á­kvörðun sem álagn­ing dag­sekta er. Sýslu­maður byggir m.a. mat sitt á því hvort móðir tálmi umgengni föður við dætur hennar á grein­ar­gerð með brott­föllnum lögum sem sett voru fyrir 25 árum síðan,“ segir í kæru móð­ur­innar. 

Bent er á að þegar dag­sekt­ar­málið hófst hafði móður ekki gef­ist svig­rúm til að leita til sýslu­manns og óska eftir breyt­ingum á fyrri umgengn­is­samn­ingi enda lagði faðir inn beiðni um dag­sektir nær umsvifa­laust eftir að full­trúi barna­vernd­ar­nefnar Hafn­ar­fjarðar tjáði honum að búið væri að vísa mál­inu til lög­reglu. 

Lög­fræð­ingur móð­ur­innar fór fram á að dóms­mála­ráðu­neytið tæki máls­á­stæður hennar til full­nægj­andi skoð­unar fyrst sýslu­maður hefði van­rækt þá skyldu sína. Ráðu­neytið gerði það og kall­aði þann 30. júní 2017 eftir ljós­ritum af öllum gögnum sýslu­manns. Nið­ur­staða ráðu­neyt­is­ins var sú að fella bæri úrskurð sýslu­manns úr gildi.  

Telja barnavernd ganga erinda móðurinnar

Í úrskurði dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins um dag­sekt­ar­úr­skurð sýslu­manns er fjallað ítar­lega um sjón­ar­mið föð­ur­ins. Haft er eftir honum að móðir setji ítrekað fram ásak­anir sem eigi sér enga stoð í raun­veru­leik­anum. Hún geri allt til að koma í veg fyrir að fað­ir­inn fái að hitta börnin sín. „Ef ekki séu notuð upp­login veik­indi barn­anna hafi móðir vísað í fyr­ir­mæli stjórn­valda og lög­reglu sem aldrei hafi reynst eiga sér stoð í raun­veru­leik­anum.“ Frá árinu 2015 hafi móðir ýmist bent á lög­reglu eða barna­vernd­ar­yf­ir­völd til að rétt­læta tálmun sína á umgengni. Fullyrt er að „í öllum til­vikum hafi rann­sókn lög­reglu einnig haf­ist að frum­kvæði móður“ og að félags­ráð­gjafi hjá barna­vernd Hafn­ar­fjarðar sé vin­kona móð­ur­innar. Þá hafi móð­irin „farið með ásak­anir sínar til læknis“. Rétt er að taka fram að það var langamma stúlkn­anna sem fór með þær til heim­il­is­læknis sem síðan taldi ástæðu til að kalla til lög­reglu.

Móðirin hefur hafnað því að starfs­maður barna­verndar sé vin­kona hennar, en fað­ir­inn segir það ekki rétt. Starfs­mað­ur­inn hafi í störfum sínum hjá barna­vernd verið til­sjón á heim­ili móð­ur­innar og hann geti sjálfur stað­fest að hún hafi heim­sótt móð­ur­ina utan vinnu­tíma. Þær séu góðar vin­konur þrátt fyrir mik­inn ald­urs­mun. Starfs­mað­ur­inn sem var til­sjón er þó ekki sá sami og fer með málið hjá barna­vernd­ar­nefnd Hafn­ar­fjarðar.

Fram kemur í þeim sjón­ar­miðum föður sem reifuð eru í úrskurði dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins að fað­ir­inn telji móð­ur­ina fara með rangt mál þegar hún full­yrði að upp­lýs­ingar um net­notkun föð­ur­ins hafi borist frá þriðja aðila. Upp­lýs­ing­arnar hafi þvert á móti komið frá móð­ur­inni sjálfri. „Það eina sem faðir hafi verið sekur um hafi verið að vera skráður á klám­síðu á net­inu. Ekkert hafi bent til þess að hann hafi skoðað slíkar síður þegar börnin hafi verið hjá honum eða að þau hefðu aðgang að slíku efni.“ Þá sé „með ólík­indum að hún hafi ásakað hann um kyn­ferð­is­brot byggt á því að hann skoði klám­síður á net­inu eins og meiri­hluti karl­manna á hans aldri geri“.

Fram kemur að „þrátt fyrir til­raunir móður til að hafa áhrif á fram­burð barn­anna og nota þau þannig sem vopn gegn föður hafi það verið nið­ur­staða barna­húss og lög­reglu að ekk­ert benti til að neitt væri hæft með ásök­unum móður“.

Faðirinn telur nið­ur­stöður list­með­ferð­ar­fræð­ings­ins ekki trú­verð­ugar.

„Ætla verði að túlkun list­með­ferð­ar­að­ila á myndum þeirra hafi verið lituð af frá­sögn móður en faðir hafi aldrei hitt með­ferð­ar­að­il­ann og aldrei rætt þessi mál við börnin. Teikn­ingar barn­anna séu í fullu sam­ræmi við þann fram­burð sem móðir hafi reynt að fá annað barnið til að hafa eftir í upp­töku sem hún hafi komið til lög­reglu.“ Við með­ferð máls­ins í ráðu­neyt­inu var skorað á föð­ur­inn að afhenda umrædda upp­töku en hann varð ekki við því.

Afi stúlkn­anna segir í sam­tali við Stundina að mynd­bandið sé afhjúp­andi. „Í mynd­band­inu sést móð­irin yfir­heyra stúlk­una með mjög leið­andi spurn­ingum og fær hana loks til að játa að pabb­inn hafi ein­hvern tím­ann komið við hana að neðan – eins og hann hafi ekki ein­hvern tím­ann skeint henni eða skipt um bleiu á henni – en spurn­ing­arnar eru það leið­andi að mér er sagt að í amer­ísku rétt­ar­fari væri bein­línis búið að ógilda málið vegna þessa mynd­bands. Þannig er það hins vegar ekki hér á landi, hér myndi þetta bara velta á mati dóm­ar­ans. Þessu mynd­bandi var komið til Barna­húss, þær voru enn og aftur kall­aðar inn en ekk­ert kom fram.“

„Það er til nokkuð sem heitir falskar 
minn­ingar og það er mjög auð­velt að 
búa til falskar minn­ingar hjá börnum“

Hann furðar sig á því í sam­tali við Stundina hve lengi list­með­ferðin hefur staðið yfir. „Málið er að síð­ast þegar við vissum – og það er orðið hálft ár síðan – þá voru þessar heim­sóknir að verða fimm­tíu tals­ins. Og eins og full­trúi sýslu­manns sagði: Hvað er í gangi? Ég hef aldrei heyrt um svona. Er bara verið að bíða eftir … ég veit ekki hvort þú hefur sett þig inn í þessi mál, en það er til nokkuð sem heitir falskar minn­ingar og það er mjög auð­velt að búa til falskar minn­ingar hjá börnum. Hvað er eig­in­lega í gangi þegar svona er þjösnast á börnum? Er þá verið að reyna smám saman að búa til eitt­hvað þegar ekk­ert kemur?“

Lögmaður föð­ur­fjöl­skyld­unnar segir í sam­tali við Stundina að hafa verði í huga að list­með­ferð­ar­fræð­ingur sé ekki lög­verndað starfs­heiti. „Án þess að hafa sér­stakar upp­lýs­ingar um það hvaða kröfur barna­vernd­ar­nefnd Hafn­ar­fjarðar gerir til þeirra sem sinna list­með­ferð á þeirra vegum bendir ekk­ert til að um sé að ræða fag­lærðan ein­stak­ling hvað varðar rann­sóknir á kyn­ferð­is­brotum, sbr. 2. mgr. 123. gr. sml,“ segir hann og bætir við: „Er enda ekki þörf á því, þar sem list­með­ferð­ar­fræð­ingum er ekki að mér vit­andi ætlað það hlut­verk að rann­saka grun um meint kyn­ferð­is­brot. Það gilda um það strangar reglur hverjir mega taka skýrslur af börnum ef grunur leikur um kyn­ferð­is­brot gagn­vart þeim og list­með­ferð­ar­fræð­ingar eru ekki þar á meðal.“

„Það gilda um það strangar reglur hverjir mega taka skýrslur af börnum ef grunur leikur um kyn­ferð­is­brot gagn­vart þeim og list­með­ferð­ar­fræð­ingar eru ekki þar á meðal“

Hann segir list­með­ferð­ina ekki hafa verið rann­sókn­ar­að­gerð og að eng­inn hafi komið að henni sem hafði það hlut­verk að rann­saka grun um kyn­ferð­is­brot gagn­vart börnum. „Það má vel vera að sá sem sér um list­með­ferð hjá barna­vernd­ar­nefnd Hafn­ar­fjarðar sé mjög hæf mann­eskja í að aðstoða börn félags­lega, en list­með­ferð­ar­fræð­ingur má ekki undir neinum kring­um­stæðum setja sig í hlut­verk dóm­ara, sér­fræð­inga Barna­húss eða lög­reglu. Þar sem að skjól­stæð­ingur minn var aldrei grun­aður um nein refsi­verð brot í fram­haldi af nýj­ustu til­raun barns­móðir hans til að bera á hann sakir hef ég ekki fengið nein rann­sókn­ar­gögn og veit ekki á hverju margar full­yrð­ingar í fjöl­miðlum eru byggðar. Ég hef séð ein­hver gögn sem stafa fá barns­móður í for­sjár- og umgengn­is­deilu aðila, en þar virð­ist hafa verið hand­valið úr gögn um ásak­anir hennar og fjöl­skyldu hennar, en ekki fylgja með gögn um þegar kom­ist var að þeirri nið­ur­stöðu að þær ásak­anir hefðu þegar verið rann­sak­aðar og ekk­ert væri hæft í þeim.“

Ólöf Ásta Farest­veit, for­stöðu­maður Barna­húss, hefur sagt barna­vernd Hafn­ar­fjarðar að hún telji upp­lýs­ing­arnar frá list­með­ferð­ar­fræð­ingnum trú­verð­ugar. Í skjali barna­verndar frá 2. júní 2017 kemur meðal ann­ars eft­ir­far­andi fram:

Ólöf ræddi við [list­með­ferð­ar­fræð­ing­inn] og taldi frá­sagnir stúlkn­anna trú­verð­ugar og að þær kæmu fram í frjálsri frá­sögn. Hún taldi því ekki ástæðu til að þær færu í Barnahús að svo stöddu en ef að frá­sagnir verða nákvæm­ari eða nýjar upp­lýs­ingar komi fram væri vert að end­ur­skoða það. Stúlk­urnar eru því áfram í list­með­ferð og sendi list­með­ferð­ar­fræð­ingur nýja skýrslu í apríl þar sem fram koma sterkar vís­bend­ingar um kyn­ferð­is­lega mis­notkun föður. 

Föð­ur­fjöl­skyldan telur að með þeirri ráð­gjöf barna­vernd­ar­nefndar Hafn­ar­fjarðar til móð­ur­innar um að halda stúlk­unum í „öruggu skjóli“ hafi nefndin farið út fyrir vald­svið sitt. Kvartaði fað­ir­inn til Barna­vernd­ar­stofu, en gagn­rýni föð­ur­fjöl­skyld­unnar lýtur meðal ann­ars að því að barna­vernd­ar­nefndin hafi gefið máls­að­ila ein­hliða fyr­ir­mæli, forð­ast að taka form­legar og rök­studdar stjórn­valds­á­kvarð­anir og þannig ekki fylgt lögum og reglum við með­ferð máls­ins. Barna­vernd hafi farið offari, sem hafi bitnað harka­lega á föð­urnum.

Uppfært: 
Ólöf Ásta Farest­veit hafði sam­band við Stundina og seg­ist telja ummælin hér að ofan rangt höfð eftir sér af barna­vernd Hafn­ar­fjarðar „Í sím­tal­inu var ekki verið að meta trú­verð­ug­leika frá­sagnar barns­ins hjá list­með­ferð­ar­fræð­ingi heldur upp­lýsa barna­vernd Hafn­ar­fjarðar hvað við­kom­andi list­með­fer­ar­fræð­ingur hefði sagt und­ir­rit­aðri,“ segir Ólöf. „Eins og fram kemur ef barnið færi að tala um kyn­ferð­is­brot hefði und­ir­rituð að sjálf­sögðu óskað eftir því að málið yrði kært á nýjan leik til lög­reglu og það er hlut­verk barna­verndar Hafn­ar­fjarðar að aðhaf­ast um slíkt. Und­ir­rituð taldi vinnu list­með­ferð­ar­fræð­ings fag­lega með til­liti til úrvinnslu til­finn­inga en ekk­ert mat var gert á trú­verð­ug­leika upp­lýs­ing­anna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa grein.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár