Henry Kissinger um Sævar Ciesielski: „Hvað er svona pólitískt viðkvæmt?“

Nýfram­komin gögn sýna að banda­rísk yfir­völd höfðu áhyggjur af með­ferð­inni á Sævari Ciesielski og töldu fram­göng­una gagn­vart honum geta orðið Íslandi til skammar á alþjóða­vett­vangi. Henry Kiss­in­ger, þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, spurð­ist fyrir um málið og fylgd­ist grannt með. 

Henry Kissinger um Sævar Ciesielski:  „Hvað er svona pólitískt viðkvæmt?“
Utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna fylgd­ist með Henry Kiss­in­ger óskaði eftir upp­lýs­ingum um Sævar Ciesielski og hvarf Guð­mundar Ein­ars­sonar.

Banda­rískur sendi­ráðs­full­trúi lýsti áhyggjum af með­ferð íslenskra stjórn­valda á Sævari Marínó Ciesielski á fundi með Einari Ágústs­syni, þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra Íslands, þann 22. júlí 1976. Sendiráð Banda­ríkj­anna á Íslandi fylgd­ist grannt með fram­vind­unni í Guð­mundar- og Geir­finns­málum í ljósi þess að faðir Sævars Ciesielskis var Banda­ríkja­maður; en það sem meira er, Henry Kiss­in­ger, þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, veitti mál­inu sér­staka athygli og óskaði eftir ítar­upp­lýs­ingum um Sævar og Guð­mundar- og Geir­finns­mál frá banda­ríska sendi­ráð­inu. „Hvað er það að mati sendi­ráðs­ins sem gerir þetta mál svona póli­tískt við­kvæmt?“ spyr Kiss­in­ger í pósti til sendi­herra Banda­ríkj­anna á Íslandi þann 15. júlí 1976 meðan Sævar sat í gæslu­varð­haldi.

Frá sjón­ar­hóli Banda­ríkj­annaSkjöl frá utan­rík­is­ráðu­neyti Banda­ríkj­anna sýna hvernig sendi­ráðs­full­trúum blöskr­aði með­ferðin á Sævari Ciesielski.

Þetta kemur fram í gögnum frá banda­ríska utan­rík­is­ráðu­neyt­inu sem börn Sævars Ciesielski hafa fengið aðgang að á grund­velli banda­rískra upp­lýs­inga­laga og deilt með Stund­inni. Bréfa­skipti milli utan­rík­is­ráðu­neytis Banda­ríkj­anna og sendi­ráðs Banda­ríkj­anna á Íslandi sýna meðal ann­ars að full­trúar Banda­ríkj­anna töldu að Sævari Ciesielski væri haldið í jafn langri og kirfi­legri ein­angr­un­ar­vist og raun ber vitni vegna þess að Guð­mundar- og Geir­finns­mál væru póli­tískt við­kvæm á Íslandi. Fram kemur að full­trúar banda­ríska sendi­ráðs­ins hafi lýst undrun sinni á því við íslensk stjórn­völd að „á Íslandi þyrftu menn að sæta með­ferð sem hvergi tíðk­að­ist nema í löndum sem ekki búa við vest­rænar hefðir á sviði laga og réttar“. 

Kissinger bað um ítarlegri upplýsingar

Þann 30. jan­úar 1976 skrif­aði Vil­mundur Gylfason, þá mennta­skóla­kenn­ari og blaða­maður, grein í Vísi þar sem hann sak­aði Ólaf Jóhann­es­son, dóms­mála­ráð­herra og for­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins, um að hafa haft óeðli­leg afskipti af rann­sókn Geir­finns­máls­ins. Voru uppi kenn­ingar um að eig­endur og starfs­menn veit­inga­húss­ins Klúbbs­ins tengd­ust hvarfi Geir­finns í tengslum við smygl á spíra, og að þeir nytu verndar Fram­sókn­ar­flokks­ins vegna styrk­veit­inga til flokks­ins. 

Vikið er að þessum ásök­unum í bréfi sendi­ráðs Banda­ríkj­anna á Íslandi til banda­ríska utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins þann 7. júlí 1976. „Þetta umfangs­mikla mál er við­kvæmt á Íslandi vegna póli­tískra afleið­inga þess, en því hefur verið haldið fram í dag­blaði að dóms­mála­ráðu­neytið (og jafn­vel dóms­mála­ráð­herra sjálfur) hafi hylmt yfir mis­gjörðir styrkt­ar­að­ila flokks­ins,“ segir í bréf­inu. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Guðmundar- og Geirfinnsmál

Hefur unnið að sáttum fyrir hönd forsætisráðuneytisins en hafnar því að lögregla hafi beitt harðræði
FréttirGuðmundar- og Geirfinnsmál

Hefur unnið að sáttum fyrir hönd for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins en hafnar því að lög­regla hafi beitt harð­ræði

Guðjóni Skarp­héð­ins­syni, einum hinna sýkn­uðu í Guð­mundar- og Geir­finns­málum, er sjálfum kennt um rangan dóm Hæsta­réttar yfir sér í grein­ar­gerð setts rík­is­lög­manns, Andra Árna­sonar, sem hafnar því að rann­sak­endur hafi brotið með refsi­verðum hætti gegn Guðjóni. Andri hafði sam­band við aðstand­endur í vor „til að skoða til­tekna sátta­mögu­leika fyrir ráðu­neytið“.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár