Sáttanefndin fundaði með Einari Karli

Rík­is­lög­maður er sonur Hall­varðar Ein­varðs­sonar, eins þeirra sem stjórn­uðu rann­sókn Guð­mundar- og Geir­finns­mála á sínum tíma. Hann hitti sátta­nefnd­ina og kynnti fyrir henni almennt verk­lag við ákvörðun bóta á fyrsta fundi hennar þann 12. októ­ber 2018 en lýsti sig svo van­hæfan og vék af fundi.

Sáttanefndin fundaði með Einari Karli
Samið við hina sýkn­uðu Gengið hefur brös­ug­lega að semja um bætur og ná fram sáttum eftir sýknu­dóm Hæsta­réttar. Mynd: Saga film/Mosaic Films – Youtube

Sátta­nefnd Guð­mundar- og Geir­finns­mála fund­aði með Einari Karli Hall­varðs­syni rík­is­lög­manni þann 12. októ­ber 2018 og fékk kynn­ingu frá honum á almennu verk­lagi hjá emb­ætt­inu við ákvörðun bóta, hefðum í sam­skiptum við lög­menn og upp­gjörs- og útgreiðslu­að­ferðum.

Þetta kemur fram í fund­ar­gerð af fyrsta fundi nefnd­ar­innar sem Stundin hefur undir höndum. Nefndin var skipuð síð­asta haust til að leiða við­ræður við hina sýkn­uðu í Guð­mundar- og Geir­finns­málum fyrir hönd stjórn­valda og ber sam­kvæmt skip­un­ar­bréfi að hafa sam­ráð við rík­is­lög­mann.

Einar Karl er sonur Hall­varðar Ein­varðs­sonar sem var vara­rík­is­sak­sókn­ari þegar rann­sókn á Guð­mundar- og Geir­finns­málum hófst árið 1975. Hall­varður kom umtals­vert að rann­sókn mál­anna og yfir­heyrslum yfir sak­born­ingum. Hann var einn þeirra sem fengu svo rétt­ar­stöðu sak­born­ings þegar harð­ræði lög­reglu var rann­sakað árið 1979.

Eftir að hafa farið yfir almennt verk­lag hjá emb­ætti rík­is­lög­manns í bóta­málum á fund­inum 12. októ­ber greindi Einar Karl nefnd­inni frá því að hann væri van­hæfur til aðkomu að mál­inu. „EKH gerði nefnd­inni við­vart um van­hæfi sitt og til­kynnti að settur yrði rík­is­lög­maður í þessu til­tekna máli,“ segir í fund­ar­gerð þar sem fram kemur að Einar hafi vikið af fund­inum.

Í kjöl­farið setti Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra Andra Árnason hæsta­rétt­ar­lög­mann sem ad hoc rík­is­lög­mann vegna Guð­mundar- og Geir­finns­mála. Samhliða því hefur hann gegnt óform­legra hlut­verki fyrir hönd for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins og sátta­nefnd­ar­innar við að kanna mögu­leik­ann á sáttum við hina sýkn­uðu og niðja þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Guðmundar- og Geirfinnsmál

Hefur unnið að sáttum fyrir hönd forsætisráðuneytisins en hafnar því að lögregla hafi beitt harðræði
FréttirGuðmundar- og Geirfinnsmál

Hefur unnið að sáttum fyrir hönd for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins en hafnar því að lög­regla hafi beitt harð­ræði

Guðjóni Skarp­héð­ins­syni, einum hinna sýkn­uðu í Guð­mundar- og Geir­finns­málum, er sjálfum kennt um rangan dóm Hæsta­réttar yfir sér í grein­ar­gerð setts rík­is­lög­manns, Andra Árna­sonar, sem hafnar því að rann­sak­endur hafi brotið með refsi­verðum hætti gegn Guðjóni. Andri hafði sam­band við aðstand­endur í vor „til að skoða til­tekna sátta­mögu­leika fyrir ráðu­neytið“.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár