Skipar þá sem nefndin taldi hæfasta þrátt fyrir að vantreysta hæfnismatinu

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son settur dóms­mála­ráð­herra efast um að til­teknir dóm­arar séu jafn hæfir og sjálf­stæð dóm­nefnd komst að nið­ur­stöðu um, en skipar dóm­ar­ana samt.

Skipar þá sem nefndin taldi hæfasta þrátt fyrir að vantreysta hæfnismatinu
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son Utan­rík­is­ráð­herra er stað­geng­ill Sigríðar Andersen við skipan dóm­ara, vegna löbrots hennar við skipan dóm­ara í Lands­rétt. Mynd: xd.is

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, settur dóms­mála­ráð­herra, skip­aði í dag þá átta umsækj­endur um stöðu hér­aðs­dóm­ara sem dóm­nefnd taldi hæf­asta þrátt fyrir að vera „enn engu nær um inn­byrðis vægi þeirra sjón­ar­miða sem lágu til grund­vallar mati nefnd­ar­innar“. 

Ráð­herr­ann greinir frá þessu í bréfi sem birt­ist á vef stjórn­ar­ráðs­ins í dag. Áður hafði hann sent dóm­nefnd­inni harð­ort bréf og gert athuga­semdir við umsögn um hæfni umsækj­enda í tíu liðum. Af bréf­inu mátti ráða að Guð­laugur hefði sér­stakar áhyggjur af því að reynsla Ingiríðar Lúð­víks­dóttur setts hér­aðs­dóm­ara og Daða Krist­jáns­sonar sak­sókn­ara væri ofmetin í umsögn dóm­nefnd­ar­innar, en að það hall­aði á hæsta­rétt­ar­lög­menn­ina Jónas Jóhanns­son og Indriða Þor­kels­son. 

„Þrátt fyrir að ýmsar nýjar upp­lýs­ingar hafi komið þar fram lét nefndin hjá líða að svara veiga­miklum athuga­semdum og spurn­ingum ráð­herra,“ segir Guð­laugur í nýja bréf­inu. „Nefndin svar­aði því ekki heldur hvernig umsækj­endur stóðu sig í við­tölum og hvert vægi við­tal­anna var, þrátt fyrir að hún hafi sér­stak­lega tekið fram að við matið hafi tals­vert verið lagt upp úr við­tölum við umsækj­endur. Þá útskýrði nefndin ekki hvernig hið svo­kall­aða „heild­stæða mat“ hennar fór fram, en eins og rakið er í bréfi setts ráð­herra frá 29. des­em­ber er umsögnin að minnsta kosti rök­studd eins og um sé að ræða mjög hlut­lægan sam­an­burð á milli umsækj­enda í ein­stökum mats­þáttum og fer lítið fyrir hinu heild­stæða mati.“

Segist Guð­laugur vera litlu nær um það mat sem fór fram á vett­vangi nefnd­ar­innar. Óeðli­legt sé að nefndin svari ekki spurn­ingum hans með grein­ar­góðum hætti, enda geri það ráð­herra erfitt um vik að sinna skyldum sínum sem sá aðili sem fer með skip­un­ar­valdið og ber laga­lega ábyrgð á ferl­inu öllu. 

Fram kemur að ráð­herra hafi ekki þótt æski­legt, tím­ans vegna, að óska eftir nýrri umsögn dóm­nefnd­ar­innar. Ef hann hefði vikið frá umsögn­inni og lagt fram til­lögu til Alþingis um að skipa aðra umsækj­endur í dóm­ara­emb­ættin að und­an­geng­inni sjálf­stæðri rann­sókn hefði slíkt tekið margar vikur og sett starf­semi hér­aðs­dóm­stól­anna í tíma­bundið upp­nám, enda áttu dóm­ar­arnir að taka til starfa í upp­hafi nýs árs. 

„Í þess­ari þröngu stöðu, vegna þess tíma­hraks sem dóm­nefndin setti settan ráð­herra í, og vegna hinnar ein­streng­ings­legu afstöðu dóm­nefndar sem birt­ist í svar­bréfi hennar, átti settur ráð­herra ekki annan kost en að skipa þá sem dóm­nefndin taldi hæf­asta, þótt settur ráð­herra hafi í raun ekki haft full­nægj­andi for­sendur til að meta rétt­mæti þeirrar nið­ur­stöðu,“ skrifar Guð­laugur sem tekur sér­stak­lega fram að í þessu felist þó ekki „að kastað sé rýrð á þá sem dóm­nefndin taldi hæf­asta til að gegna dóm­ara­emb­ætt­unum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár