Mynd: Pressphotos.biz

Guðlaugur efast um mat dómnefndar á reynslu Ingiríðar og Daða en formaður nefndarinnar telur hann vera á villigötum

Settur dómsmála­ráðherra hefur áhyggjur af því að reynsla Ingiríðar Lúðvíks­dóttur setts héraðs­dómara og Daða Kristjáns­sonar saksóknara sé ofmetin í umsögn dómnefndar, og að það halli á hæstaréttar­lögmennina Jónas Jóhannsson og Indriða Þorkelsson.

Jakob R. Möller, formaður nefndar sem metur hæfni umsækjenda um embætti héraðs­dómara, gefur lítið fyrir gagnrýni Guðlaugs Þórs Þórðar­sonar, setts dómsmála­ráðherra, á hæfnismat nefndarinnar.

Guðlaugur sendi nefndinni harðort bréf á dögunum þar sem gerðar voru athuga­semdir við umsögn um hæfni umsækjenda í tíu liðum og þess krafist að nefndin „útskýrði betur með hvaða hætti matið var framkvæmt“. 

Af bréfinu má ráða að settur dómsmála­ráðherra hafi áhyggjur af því að reynsla Ingiríðar Lúðvíks­dóttur setts héraðs­dómara og Daða Kristjáns­sonar saksóknara sé ofmetin í umsögn dómnefndar, en að það halli á hæstaréttar­lögmennina Jónas Jóhannsson og Indriða Þorkelsson. 

Guðlaugur gagnrýnir sérstak­lega að hæfnis­nefndin hafi ekki „notast við stiga­töflu“ við mat á umsækjendum, svo sem Excel-forritið eins og gert var þegar lagt var mat á hæfni umsækjenda um dómara­embætti við Landsrétt. 

Þetta er athyglis­vert í ljósi þess að þegar skipun dómara við Landsrétt var til umfjöllunar á Alþingi hafði dómsmála­ráðherra á orði að menn yrðu að „hefja sig yfir“ Excel-skjölin og að mat á hæfni umsækjenda mætti ekki vera vélrænt.

Nú, eftir að dómnefndin hvarf aftur til fyrra fyrir­komulags og notaði svokölluð skorblöð til uppröðunar umsækjendum, er þannig nefndin gagnrýnd fyrir að haga vinnu­brögðum sínum ekki með þeim hætti sem hún var gagnrýnd fyrir í Lands­réttar­málinu. Sem kunnugt er var gengið framhjá því hæfnis­mati með ólöglegum hætti eins og Héraðs­dómur Reykja­víkur og Hæstiréttur Íslands hafa staðfest.

Nefndin fylgdi sama verklagi og áður tíðkaðist 

Svar Jakobs R. Möllers, formanns dómnefndarinnar, við aðfinnslum Guðlaugs Þórs barst í gær og birtist á vef Stjórnar­ráðsins. Þar er áréttað sérstak­lega að dómnefndin lúti ekki boðvaldi ráðherra og eigi að vera sjálfstæð og óháð, enda hafi lögin sem nefndin starfar eftir verið sett með það að markmiði að styrkja sjálf­stæði dómstóla og auka traust almennings á því að dómarar séu óháðir handhöfum framkvæmda­valds. Þessu til stuðnings er vísað sérstak­lega í nýlegan dóm Hæstaréttar um lögbrot dómsmála­ráðherra við skipun dómara við Landsrétt.  

Guð­laugur Þór Þórð­ar­sonutan­rík­is­ráð­herra og settur dóms­mála­ráð­herra

Í bréfinu sem ráðuneytis­stjóri utan­ríkis­ráðuneytisins sendi dómnefndinni fyrir hönd Guðlaugs Þórs er gerð athugasemd við að dómnefndin hafi ekki notast við „stiga­töflu“ við röðun umsækjenda eins og gert var í umsögn dómnefndar um umsækjendur um dómara­embætti við Landsrétt. „Vinnu­brögð nefndarinnar virðast því vera í ósamræmi við fyrri framkvæmd hennar,“ segir í bréfi Guðlaugs.

Þessu svarar formaður dómnefndarinnar með því að benda á að Excel og þess lags töflur hafi ekki verið notaðar í störfum nefndarinnar fyrr en við skipun Landsréttar­dómara í maí 2017. Jafnframt verði að hafa í huga að töluleg samlagningar­tæki sem notuð eru við mat á hæfni umsækjenda séu mismun­andi og ráðist meðal annars af fjölda umsækjenda og samsetningu umsækjenda­hóps. „Um þetta atriði er annars rétt að nefna að vinnu­brögð nefndarinnar voru í samræmi við störfin frá setningu reglna nr. 620/2010, með því eina fráviki, sem nefnt hefur verið, um excel skjal dómnefndar í maí 2017“. 

Gerir athugasemd við mat á dómarareynslu Ingiríðar

Í bréfi Guðlaugs var fundið að því að Ingiríði Lúðvíks­dóttur, sem hefur átta ára reynslu sem settur dómari og sex ára reynslu sem aðstoðar­maður dómara, sé raðað efst á sviði dómara­reynslu, en Jónasi Jóhanns­syni sem „var skipaður héraðs­dómari í um tuttugu ár“ raðað skör lægra. 

Jónas Jóhanns­sonhæsta­rétt­ar­lög­maður og fyrr­ver­andi hér­aðs­dóm­ari

Jakob Möller bendir á að Jónas var fyrstu þrjú árin fulltrúi áður en  umfangs­miklar réttarfars­breytingar komu til framkvæmda árið 1992.

„Taldi nefndin störf við sýslumanns­embætti / bæjarfógeta­embætti vega mjög miklu minna en störf við héraðs­dómstóla eftir þann tíma. Viðkomandi umsækjandi hefur sinnt dómara­störfum í um 16 ár, en ekki 20, að teknu tilliti til leyfa. Enn er þess að gæta að viðkomandi umsækjandi hefur ekki sinnt dómstörfum frá lokum ágúst 2008,“ segir í bréfi Jakobs.

Bent er á að Ingiríður hafi sinnt dómstörfum nær samfellt síðustu átta ár og áður starfað sem sem aðstoðar­maður dómara í um sex ár. 

Ingiríður Lúð­víks­dóttirsettur hér­aðs­dóm­ari

Í þessu samhengi er jafnframt tilgreint að nefndin líti svo á, í samræmi við fyrri umsagnir, að reynslan af fyrstu starfs­árum í hverju starfi vegi að öðru jöfnu tiltölu­lega þyngst við mat á langri starfs­reynslu.

Þá er vitnað í ummæli umboðs­manns Alþingis um að við ráðningar opinberra starfs­manna sé æskilegt, í stað þess að einblína á lengd starfs­reynslu í árum talið, að líta til inntaks starfs­reynslunnar, svo sem hve vel umsækjandi hafi staðið sig í starfi og hvernig starfs­reynslan muni nýtast í starfinu sem verið er að ráða í. 

Lögmannsstörf Indriða „hvorki fjölbreytt né umfangsmikil“

Í bréfi sínu til dómnefndar gagnrýndi Guðlaugur Þór að Indriða Þorkels­syni, lögmanni með yfir þriggja áratuga reynslu, væri raðað í 8. til 10. sæti í matsþætti um lögmanns­störf í umsögn dómnefndar.

Indriði Þor­kels­sonhæsta­rétt­ar­lög­maður

Jakob Möller svarar með vísan til þess að nefndin hafi tekið tillit til fjöl­breytni í lögmanns­störfum, mismun­andi eðlis starfa umsækjenda og fjölda og mikil­vægis dómsmála. 

Um Indriða Þorkelsson skrifar Jakob: „Sá umsækjandi sem ráðherra sýnist vera að vísa til hlaut lögmanns­réttindi árið 1985, en full réttindi til málflutnings fyrir Hæstarétti ekki fyrr en 2009. Langmest af starfs­tíma sínum hefur hann starfað sem fulltrúi annars/annarra lögmanna og þannig eru hagir hans nú. Samkvæmt opinberum gögnum verður hvorki séð að lögmanns­störf hans hafi verið fjöl­breytt né umfangs­mikil. Þótt umsækjandinn hafi sinnt mikil­vægum þjóðlendu­málum undan­farin ár, verður ekki litið framhjá því, að það hefur hann gert sem fulltrúi annars lögmanns en ekki sem sjálfstætt starfandi lögmaður með þá ábyrgð því fylgir.“ Þá er vísað til þess að sjálf­stæður lögmaður ber ábyrgð á fjár­vörslu fulltrúa lögmanns og jafnframt fébóta­ábyrgð á störfum hans að öðru leyti. 

Rangt að reynsla Daða sé tvítalin

Guðlaugur Þór gerði athugasemd við að Daði Kristjánsson, sem starfað hefur sem saksóknari um árabil, fengi „þá reynslu metna í tvígang, ef svo má að orði komast, að minnsta kosti að einhverju leyti“. Þetta finnst Guðlaugi ómálefnalegt.

Jakob Möllerfor­maður dóm­nefndar

Jakob Möller segir rangt að reynslan hafi verið „tvítalin“. Þegar málflutnings­reynsla Daða var metin hafi verið tekið tillit til stjórnsýslu­reynslunnar og hún dregin frá, og á hinn veginn þegar stjórnsýslu­reynslan var metin; þá hafi málflutnings­reynslan verið dregin frá. Daði hafi einfald­lega verulega reynslu, bæði á sviði málflutnings og stjórn­sýslu.

„Sakamál eru verulegur hluti mála sem koma fyrir héraðs­dómstólana. Er því augljós­lega mikilvægt að við þá starfi dómarar með haldgóða reynslu af meðferð sakamála,“ skrifar Jakob. 

Guðlaugur Þór gerði fleiri athuga­semdir við mat og vinnu­brögð dómnefndarinnar, og er þeim svarað í bréfi Jakobs Möllers. Hér má sjá bréf Guðlaugs og hér er bréf Jakobs. Með Jakobi í dómnefndinni eru þau Guðrún Björk Bjarna­dóttir, Kristín Benedikts­dóttir, Ragn­heiður Harðar­dóttir og Ragnhildur Helga­dóttir. Hér má nálgast umsögn hennar í heild.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar

FréttirRíkisstjórn Katrínar

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eftir­minnilega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tímabil“ fyrir Vinstri græn að fara í ríkis­stjórnar­samstarf með Sjálfstæðis­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíðinni þá þarf það nátt­úrlega að hafa afleiðingar fyrir flokk að miðla málum svo hressilega að það er ekkert eftir af hugsjónunum,“ segir Drífa.
GreiningRíkisstjórn Katrínar

Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raungerst. Flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum og hefur ekki sammælst um nýja forystu eftir brott­hvarf eins vinsælasta stjórn­málamanns landsins og flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum. Hvort flokkurinn sé nægilega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrýmingu á eftir að koma í ljós.

21 mín. lestur

GreiningRíkisstjórn Katrínar

Róttækur hugsjóna­flokkur verður að borgara­legum valda­flokki

Vinstri græn hafa á síðustu fimm og hálfu ári tapað trausti og trúverðug­leika, gefið afslátt af mörgum helstu stefnu­málum sínum og varið hegðun og aðgerðir sem flokkurinn talaði áður skýrt á móti. Samhliða hefur róttækt fólk úr gras­rótinni yfirgefið Vinstri græn, kjósenda­hópurinn breyst, hratt gengið á pólitíska inneign Katrínar Jakobs­dóttur og fylgi flokksins hrunið. Þetta er fórnar­kostnaður þess að komast að völdum með áður yfir­lýstum pólitískum andstæðingum sínum.

10 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár