Ekki vitað hvort skattalagabrot hafi fyrnst vegna tafa og skilyrða ráðuneytisins

„Af hálfu rík­is­skatt­stjóra hefur ekki verið gerð sér­stök könnun á því hvort að mál hafi fyrnst frá því að skatt­rann­sókn­ar­stjóra buð­ust gögnin til kaups og þangað til gengið var frá þeim,“ segir í skýrslu fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um skatt­tekjur, skatt­rann­sóknir og skatt­eft­ir­lit.

Ekki vitað hvort skattalagabrot hafi fyrnst vegna tafa og skilyrða ráðuneytisins

Ekki liggur fyrir hvort eða hve mörg skatta­laga­brot hafi fyrnst meðan skatt­rann­sókn­ar­stjóri beið þess að fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið gæfi emb­ætt­inu grænt ljós á að kaupa gögn um Íslend­inga á aflands­svæðum um nokk­urra mán­aða skeið árin 2014 og 2015.

Gögnin voru ekki keypt fyrr en um ári eftir að þau buð­ust, meðal ann­ars vegna aðkomu fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins sem fól í sér að skatt­rann­sókn­ar­stjóra voru sett skil­yrði sem emb­ætt­inu reynd­ist örð­ugt að upp­fylla. Kaupin á gögn­unum hafa nú þegar marg­borgað sig ef miðað er við sam­an­burð á kaup­verði gagn­anna og end­ur­á­lagn­ingar skatta á grund­velli upp­lýs­ing­anna sem þar var að finna. 

„Af hálfu rík­is­skatt­stjóra hefur ekki verið gerð sér­stök könnun á því hvort að mál hafi fyrnst frá því að skatt­rann­sókn­ar­stjóra buð­ust gögnin til kaups og þangað til gengið var frá þeim,“ segir í skýrslu fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um skatt­tekjur, skatt­rann­sóknir og skatt­eft­ir­lit sem var á meðal hinna fjöl­mörgu mála sem lögð voru fram á Alþingi fyrir þing­lok í sept­em­ber. 

Skýrslan var unnin að beiðni þing­manna og fjallar um þau atriði sem óskað var eftir að tekin yrðu til umfjöll­unar. Var spurt sér­stak­lega um kaup skatt­rann­sókn­ar­stjóra á gögnum um aflandseignir Íslend­inga, meðal ann­ars hvort ein­hver mál hefðu fyrnst frá því að yfir­völdum buð­ust gögnin og þar til gengið var frá kaup­unum. 

„SRS tók ekki ákvörðun um rann­sókn í málum sem tengj­ast umræddum kaupum fyrr en eftir að þau áttu sér stað. Það liggur ekki fyrir að brot hafi fyrnst vegna þess­arar ástæðu,“ segir í svari frá emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra sem vísað er til í skýrsl­unni. Þá kemur fram að engin könnun hafi verið gerð á því hvort mál hafi fyrnst á umræddu tíma­bili. 

Eins og Stundin fjall­aði ítar­lega um í fyrra urðu skil­yrði sem fjár­mála­ráðu­neytið setti skatt­rann­sókn­ar­stjóra til kaupa á gögnum um aflands­fé­lög Íslend­inga til þess að málið dróst á lang­inn. Þegar Bjarni Bene­dikts­son, þáver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, fund­aði með skatt­rann­sókn­ar­stjóra um hugs­an­leg kaup á gögn­unum var ekki vitað að þar væri að finna upp­lýs­ingar um aflands­fé­lag fjár­mála­ráð­herra sjálfs, Falson & Co, né hafði verið greint frá því að faðir ráð­herra hefði átt félag á Tortólu, not­fært sér þjón­ustu lög­manns­stof­unnar Mossack Fonseca og væri því einnig lík­legur að vera í gögn­unum sem emb­ætt­inu stóð til boða að kaupa. 

Þann 4. febr­úar 2015 gagn­rýndi Bjarni Bene­dikts­son emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra harð­lega í við­tali RÚV. Sagði hann að kaup á gögnum um aflandseignir Íslend­inga hefðu þvælst fyrir emb­ætt­inu alltof lengi og að málið „strand­aði svo sann­ar­lega ekki á fjár­mála­ráðu­neyt­inu“. Skömmu síðar kom í ljós að þegar ráð­herra lét þessi orð falla var skatt­rann­sókn­ar­stjóri í bið­stöðu vegna skil­yrða sem ráðu­neyti Bjarna hafði sett emb­ætt­inu. Skatt­rann­sókn­ar­stjóri hafði þá nýverið sent ráðu­neyt­inu bréf sem ekki hafði verið svarað. 

Gögn sem Stundin fékk aðgang að á grund­velli upp­lýs­inga­laga sýndu að skatt­rann­sókn­ar­stjóri hafði sendi fjár­mála­ráðu­neyt­inu tölvu­póst í des­em­ber 2014 þar sem fram kom að svo virt­ist sem fjöl­miðla­um­ræða væri að fara af stað á þá lund að tafir á kaupum gagn­anna væru emb­ætt­inu að kenna. Með ummælum sínum skömmu síðar ýtti Bjarni undir að dregin væri upp slík vill­andi mynd af stöðu máls­ins og fann því skatt­rann­sókn­ar­stjóri sig knúna til að leið­rétta orð hans. Sagðist hún slegin yfir ummælum ráð­herra.

Eftir að sam­skipti ráð­herra við skatt­rann­sókn­ar­stjóra höfðu vakið fjöl­miðla­at­hygli fékk skatt­rann­sókn­ar­stjóri loks vil­yrði fyrir því að kaupa gögnin. Kaupin gengu í gegn um sum­arið, en þá var liðið um ár síðan emb­ætt­inu var tjáð að gögnin stæðu til boða. 

Sér­fræð­ingum í stjórn­sýslu­rétti, sem Stundin ræddi við þegar fjallað var um málið í fyrra bar saman um að aðkoma fjár­mála­ráð­herra kynni að hafa verið á gráu svæði með til­liti til óskráðra meg­in­reglna stjórn­sýslu­réttar um hæfi.

Þá vökn­uðu fleiri og almenn­ari spurn­ingar vegna skil­yrð­anna sem fjár­mála­ráðu­neytið setti skatt­rann­sókn­ar­stjóra. Indriði H. Þor­láks­son, fyrr­ver­andi rík­is­skatt­stjóri, skrif­aði um stöðu ráðu­neyt­is­ins og skatt­yf­ir­valda í mál­inu þann 27. sept­em­ber 2014, löngu áður en upp­lýst var um aðkomu Bjarna og föður hans að við­skiptum í gegnum aflands­fé­lög, og lagði áherslu á að fram­kvæmd skatta­laga yrði að vera óháð póli­tísku valdi og afskipti ráð­herra sem allra minnst. „Aðkoma fjár­mála­ráð­herra eða ann­arra póli­tískra stjórn­valda að þessu máli á ekki að vera á neinum öðrum grund­velli en þeim að tryggja skatt­yf­ir­völdum nægi­legt fé til að sinna verk­efnum sem þeim er falið lögum sam­kvæmt,“ skrif­aði Indriði.

Eins og fram kom í vor reynd­ust kröfur vegna end­ur­á­lagn­ingar á grund­velli gagn­anna sem skatt­rann­sókn­ar­stjóri keypti umtals­vert meiri en kostn­að­ur­inn við kaupin á gögn­unum. Kaupin kost­uðu 37 millj­ónir króna en að því er fram kemur í skýrslu ráð­herra sýna gögnin að „und­an­dregnir skatt­stofnar nema allt að nokkrum hund­ruðum millj­ónum króna í ein­stökum málum“. Ekki eru þó komnar nákvæmar upp­lýs­ingar um heild­ar­um­fang þeirra upp­lýs­inga sem um ræðir og und­an­dreg­inna skatt­stofna né eru til upp­lýs­ingar um hvort mál hafi fyrnst vegna taf­anna á kaupum gagn­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Hvernig peningaslóð stjórnenda Kaupþings og maka þeirra liggur til Tortólu
Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.
Sæmarksstjóri ákærður ásamt lögmanni fyrir stórfelld skattsvik og peningaþvætti
Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.
Fengu fjölskyldumálverk í hendurnar eftir umfjöllun Stundarinnar
FréttirPanamaskjölin

Fengu fjöl­skyldu­mál­verk í hend­urnar eftir umfjöllun Stund­ar­innar

Skoskar mæðgur sem komu til Íslands í byrjun árs í leit að svörum við spurn­ingum sem leitað hafa á fjöl­skyldu þeirra eru þakk­látar Íslend­ingi sem sendi þeim mál­verk sem var í eigu ömmu þeirra og langömmu á Íslandi. Gunnar Eggert Guð­munds­son taldi rétt­ast að fjöl­skyldan fengi mál­verkið þar sem þau fengu lítið sem ekk­ert úr búi Áslaugar.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
5
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár