Sæmarksstjóri ákærður ásamt lögmanni fyrir stórfelld skattsvik og peningaþvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.

Sæmarksstjóri ákærður ásamt lögmanni fyrir stórfelld skattsvik og peningaþvætti
Ákærðir fyrir skatt­svik í fisk­út­flutn­ingi Sigurður Gísli Björns­son, eig­andi Sæmarks, er ákærður fyrir að svikja undan tekju­skatt, útsvar, virð­is­auka­skatt, tekju­skatt fyr­ir­tækis síns og trygg­inga­gjald á margra ára tíma­bili í við­skiptum með íslenskan fisk. Magnús Jónsson lög­maður er ákærður fyrir að hafa aðstoðað við þau brot og pen­inga­þvætti, í gegnum sviss­neskt félag sem hann var skráður fyrir. Mynd: Heimildin / JIS

Í grunn­inn snýst málið um það hvernig einn umfangs­mesti fisk­sali lands­ins, náði með ólög­mætum hætti að koma hund­ruðum millj­óna króna ólög­lega og fram­hjá sköttum, út úr rekstri sínum og á leyni­lega banka­reikn­inga erlendis, til þess að geta síðan nýtt sér ávinn­ing­inn í eigin þágu. Upp komst um Sigurð Gísla og umfangs­mikil und­an­skot hans og fyr­ir­tækis hans Sæmarks í kjöl­far upp­ljóstr­unar Panama-skjal­anna árið 2016. 

Sæmark var í fjölda ára gríð­ar­lega umsvifa­mikið í fisk­sölu fyrir fjölda íslenskra útgerða og velti hátt í tíu millj­örðum króna þegar best lét.

Fyr­ir­tækið Sæmark var tekið til gjald­þrota­skipta eftir að rann­sókn á mál­inu hófst og eignir Sigurðar voru kyrr­settar í kjöl­far hús­leitar og rann­sóknar árið 2017. Eins og Heim­ildin greindi frá í febr­úar síð­ast­liðnum hafa skatta­yf­ir­völd þegar gert hálfs millj­arðs króna kröfu á hendur Sigurði vegna skattaund­an­skota hans.

Tvö önnur dóms­mál …

Kjósa
32
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Hvernig peningaslóð stjórnenda Kaupþings og maka þeirra liggur til Tortólu
Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.
Fengu fjölskyldumálverk í hendurnar eftir umfjöllun Stundarinnar
FréttirPanamaskjölin

Fengu fjöl­skyldu­mál­verk í hend­urnar eftir umfjöllun Stund­ar­innar

Skoskar mæðgur sem komu til Íslands í byrjun árs í leit að svörum við spurn­ingum sem leitað hafa á fjöl­skyldu þeirra eru þakk­látar Íslend­ingi sem sendi þeim mál­verk sem var í eigu ömmu þeirra og langömmu á Íslandi. Gunnar Eggert Guð­munds­son taldi rétt­ast að fjöl­skyldan fengi mál­verkið þar sem þau fengu lítið sem ekk­ert úr búi Áslaugar.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár