„Ekki hægt að fagna birtingu þessara skjala því þau hafa ekki verið birt“

Rit­stjóri Wikileaks telur að gefa eigi almenn­ingi kost á að leita í Pand­óru­skjöl­unum, einum stærsta gagna­leka sög­unnar.

Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks.
Kristinn Hrafns­son, rit­stjóri Wikileaks. Mynd: EPA

„Hinn óþægi­legi sann­leikur með þennan gagna­leka er að það er ekki hægt að fagna birt­ingu þess­ara skjala því þau hafa ekki verið birt. Það eina sem hefur birst eru fréttir byggðar á lek­anum.“

Þetta ritar Kristinn Hrafns­son rit­stjóri Wikileaks á Facebook en til­efnið er stór gagna­leki til Alþjóða­sam­taka rann­sókn­ar­blaða­manna (ICIJ) sem greint var frá í fjöl­miðlum víða um heim um helg­ina. Um er að ræða um tólf milljón skjöl en sam­kvæmt ICIJ opin­bera þau „innri starf­semi skugga­hag­kerfis sem gagn­ast þeim auð­ugu og vel tengdu á kostnað allra ann­arra“. Verk­efnið er kallað Pand­óru­skjölin en yfir 600 blaða­menn tóku þátt í að greina og vinna gögnin í sam­starfi við ICIJ. Enginn íslenskur fjöl­mið­ill hefur enn birt umfjöllun upp úr skjöl­unum er varða Íslend­inga.

[adspot]

Pandóruskjölin eru Panamaskjölin „á sterum“

Í skjöl­unum eru opin­beruð vafasöm við­skipti um 35 fyrrum eða núver­andi þjóð­ar­leið­toga, þar á meðal við aflands­fé­lög í svoköll­uðum skatta­skjólum. Einnig eru í skjöl­unum gögn um við­skipti um 300 emb­ætt­is­manna, að því er fram kemur í frétt RÚV um málið. Skjöl­unum var lekið frá 14 fjár­mála­fyr­ir­tækjum sem stað­sett eru víða um heim, þar á meðal í Panama, Belís, Kýpur, Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæm­unum og Sviss. Gerard Ryle, fram­kvæmda­stjóri ICIJ, segir að Pand­óru­skjölin séu Panama­skjölin „á sterum“.

Mikið var fjallað um Panama­skjölin í íslenskum fjöl­miðlum árið 2016 en upp­lýs­ingar í gögn­unum teygðu anga sína víða. Þar mátti meðal ann­ars finna vís­bend­ingar um hvar efna­mikið fólk hefði komið pen­ingum sínum fyrir í þekktum skatta­skjólum víðs­vegar um heim og hvernig það hefði falið marg­vís­lega lög­fræði­lega gjörn­inga.

Fyrstu frétt­irnar úr gögn­unum voru fluttar sunnu­dag­inn 3. apríl árið 2016 og sam­hliða því var sýndur Kast­ljós­þáttur á RÚV þar sem sagt var frá tengslum íslenskra stjórn­mála­leið­toga við aflands­fé­lög. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, var gerður að aðal­at­riði í umfjöllun fjöl­miðla um allan heim um Panama­skjöl­in. Hann sagði af sér í kjöl­far­ið.

Finnst rétt að gefa almenningi aðgang að gagnagrunninum

Kristinn segir í stöðu­upp­færslu sinni á Facebook, sem hann birti í gær, að sem tals­maður ann­ars mód­els sem felur í sér að veita almenn­ingi aðgang að slíkum gagna­grunnum geti hann ekki annað en skorað á við­kom­andi að birta allt sem hægt sé að birta. Wikileaks hefur birt óunnin gögn á síðu sinni, ólíkt aðferð ICIJ þar sem leit­ast er við að vinna úr gögn­unum áður en þau eru birt.

„Ég hef skiln­ing á því að það kunni að vera ástæður til að gera það í áföngum og yfir tíma en það er rétt að gefa almenn­ingi kost á að leita í svona gagna­grunni. Það er jákvætt að fá þessar upp­lýs­ingar á yfir­borðið og margar áhuga­verðar fréttir sem hafa verið skrif­aðar. Það er einnig jákvætt að skapa stóran sam­starfs­vett­vang fjöl­miðla og hund­ruð blaða­manna um allan heim en WikiLeaks reið á vaðið með slíkt model fyrir ára­tug,“ skrifar Kristinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár