Panamaskjölin

Panama­skjölin eru stærsti gagna­leki sög­unnar. Þar má finna upp­lýs­ingar úr gagna­safni lög­fræði­skrif­stof­unnar Mossack Fonseca í Panama. Meðal þeirra sem keyptu þjón­ustu þaðan var fólk úr við­skipta­líf­inu á Íslandi auk stjórn­mála­leið­toga víðs­vegar um heim­inn.

Kjarninn hefur fengið aðgang að völdum gögnum úr stærsta gagna­leka sög­unnar, Panama­skjöl­unum svoköll­uðu. Þýska blaðið Süddeutsche Zeitung komst yfir gögnin, sem eru frá panömsku lög­fræði­stof­unni Mossack Fonseca, og deildi með alþjóð­legum sam­tökum rann­sókn­ar­blaða­manna, ICIJ, Reykja­vík Media og 109 öðrum fjöl­miðlum víðs­vegar um heim. Um er að ræða 11,5 millj­ónir skjala upp á tæp þrjú tera­bæti.

Kjarninn hefur nú hafið birt­ingu frétta og frétta­skýr­inga úr gögn­unum í sam­starfi við Reykja­vík Media. Upp­lýs­ingar í gögn­unum teygja anga sína víða. Þar má meðal ann­ars finna vís­bend­ingar um hvar efna­mikið fólk hefur komið pen­ingum sínum fyrir í þekktum skatta­skjólum víðs­vegar um heim og hvernig það hefur falið marg­vís­lega lög­fræði­lega gjörn­inga.

Fyrstu frétt­irnar úr gögn­unum voru fluttar sunnu­dag­inn 3. apríl og sam­hliða því var sýndur Kast­ljós­þáttur á RÚV þar sem sagt var frá tengslum íslenskra stjórn­mála­leið­toga við aflands­fé­lög. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, var gerður að aðal­at­riði í umfjöllun fjöl­miðla um allan heim um Panama­skjölin. Hann sagði af sér í kjöl­farið.

Aldrei stærri leki

Lekinn frá lög­fræði­stof­unni Mossack Fonseca er lang stærsti gagna­leki sög­unnar. Samtals telur stærð hans 2,6 tera­bæti. Þar eru til dæmis meira en 4,8 milljón tölvu­póstar, þrjár millj­ónir gagna­safns­skjala og 2,1 milljón PDF-skjöl. Til að setja þennan leka í sam­hengi við annan stóran gagna­leka má nefna leka Wikileaks úr banda­ríska utan­rík­is­ráðu­neyt­inu árið 2010. Sam­an­lögð stærð gagn­anna þaðan var 1,7 gíga­bæti. Í einu tera­bæti eru 1.000 gíga­bæti.

Gögnin ná nærri 40 ár aftur í tíman og sýna vel vöxt Mossack Fonseca fram til árs­ins 2008 og hnignun þess á und­an­förnum árum. Þar má finna upp­lýs­ingar um 210.000 aflands­fé­lög sem stofnuð hafa verið í 21 landi víðs­vegar um heim­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár