Panamafélagið Guru Invest fjármagnaði verkefni í Bretlandi og á Íslandi

Hjónin Jón Ásgeir Jóhann­es­son og Ingi­björg Stefanía Pálma­dóttir hafa verið fyr­ir­ferða­mikil í íslensku við­skipta­lífi und­an­farna ára­tugi. Jón Ásgeir var í for­grunni þess sem kall­að­ist á ein­földu máli íslenska útrásin. Hann fór um heim­inn og keypti upp fyr­ir­tæki í skuld­settum yfir­tökum og safn­aði undir sig gríð­ar­legu magni eigna, skulda og valda.

Eignir hans á Íslandi voru ekki síður umfangs­miklar. Hann rak stærsta smá­sölu­veldi lands­ins og nær ómögu­legt var fyrir nokkurn lands­mann að vera ekki í neinum við­skiptum við Jón Ásgeir. Félög sem hann stýrði áttu auk þess ráð­andi hluti í fjár­fest­ing­aris­anum FL Group og ásamt helstu við­skipta­fé­lögum sínum hafði Jón Ásgeir tögl og hagldir í Glitni banka fyrir banka­hrun.

Þegar efna­hags­legur hvirf­il­bylur reið yfir haustið 2008 var ljóst að það myndi hafa mikil áhrif á stöðu Jóns Ásgeirs. Þrátt fyrir mikla bar­áttu fyrir því að halda eignum sínum varð hvert félagið sem hann átti hlut í á fætur öðru gjald­þrota og kröfu­hafaröðin sem á eftir honum gekk lengd­ist í sífellu. Sam­an­lagðar skuldir félag­anna sem Jón Ásgeir kom að námu á annað þús­und millj­arða króna. Á móti voru ein­hverjar eignir, en í til­fellum margra þeirra voru þær ekki miklar. Til að mynda er gert ráð fyrir að sjö millj­arðar króna fáist upp í alls 240 millj­arða króna kröfur í þrotabú fjár­fest­inga­fé­lags­ins Baugs Group, sem Jón Ásgeir stýrði.

Baugur var að mestu í eigu Fjár­fest­inga­fé­lags­ins Gaums, sem var að mestu í eigu Jóns Ásgeirs (hann átti 41 pró­sent hlut), systur hans og for­eldra. Gaumur var gefið upp til gjald­þrota­skipta í sept­em­ber 2013, þótt að legið hefði fyrir árum saman að félagið ætti enga mögu­leika á að lifa af. Hvað tafði það gjald­þrot í nær fimm ár eftir banka­hrun er erfitt að full­yrða um. Einhvern hag taldi fjöl­skyldan sig þó hafa af því að halda yfir­ráðum yfir Gaumi. Þegar skiptum lauk í síð­asta mán­uði kom í ljós að 14,8 millj­ónir króna feng­ust upp í almennar kröfur í búið, sem námu 38,7 millj­örðum króna. Alls feng­ust því 0,067 pró­sent upp í almennar kröfur í búið. Stærstu kröfu­haf­arnir voru þrotabú gamla Lands­banka Íslands, þrotabú Kaup­þings og þrotabú Baugs, og allir voru kröfu­haf­arnir álíka stórir. Nýlega var einnig greint frá því að BG-fast­eignir, sem hafði verið í eigu Baugs Group, hefði verið gert upp. Þar námu kröf­urnar 17 millj­örðum króna en um ein milljón króna fékkst upp í þær.

Þetta eru ein­ungis þrjú dæmi af mörgum um afleið­ingar fyr­ir­tækja­rekstrar Jóns Ásgeirs. Skulda­slóðin lá víða eftir hann og kröfu­hafar reyndu hvað þeir gátu til að kom­ast yfir ein­hverjar eignir til að tak­marka tap sitt. Slita­stjórn Glitnis fékk meira að segja í gegn að allar þekktar eignir hans voru frystar með dóms­úr­skurði í Bret­landi árið 2010 og við þá máls­með­ferð sór Jón Ásgeir að hann ætti ekk­ert meira en það sem þar var til­greint. Slita­stjórnin var ekki sann­færð og réð meðal ann­ars rann­sókn­ar­fyr­ir­tækið Kroll til að reyna að hafa upp á frek­ari eignum sem hún grun­aði Jón Ásgeir um að hafa komið undan. Samkvæmt fryst­ing­ar­beiðn­inni, sem Kjarninn hefur undir höndum, var slita­stjórnin meðal ann­ars að leita að afrakstri sölu snekkju, sem bar heitið OneOOne og var skráð til heim­ilis á Cayman-eyjum.

OneOOne nafnið var ekki gripið úr lausu lofti. Það vís­aði til kenni­leitis sem eig­in­kona Jóns Ásgeirs, Ingi­björg Stefanía Pálma­dóttir, hafði gert að sínu. Hún átti hótel sem hét í höf­uðið á póst­núm­er­inu fræga og mörg félög sem henni tengd­ust báru það sem for­skeyti.

Þrátt fyrir að Ingi­björg hafi sjálf verið umsvifa­mik­ill fjár­festir fyrir hrun og tekið þátt í mörgum áhættu­sömum fjár­fest­inga­æv­in­týrum í slag­togi við eig­in­mann sinn eða ein síns liðs þá virð­ist hún hafi komið nokkuð vel utan hrun­vetr­inum. Að minnsta kosti hefur henni tek­ist að halda mörgum af sínum helstu eignum á Íslandi og í krafti auðs síns tekið yfir aðrar eignir, sem Jón Ásgeir átti áður en lenti í erf­ið­leikum með að halda vegna þrýst­ings kröfu­hafa, rann­sókna sér­staks sak­sókn­ara og upp­þorn­aðs láns­hæfis. Þar ber helst að nefna stærsta einka­rekna fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins, 365 miðla, sem Ingi­björg tók yfir eftir að Jón Ásgeir hafði tryggt sér áfram­hald­andi stjórn á því vik­urnar eftir banka­hrunið.

Skipta­stjórar í þrota­búum félaga sem tengj­ast hjón­unum hafa lengi skoðað alls kyns til­færslur á eignum sem áttu sér stað innan þeirra á loka­metr­unum fyrir hrun eða á miss­er­unum eftir það. Með litlum árangri. Pen­ing­arnir virt­ust hafa farið til pen­inga­himna.

Svo virð­ist þó sem að ein­hverjir pen­ingar hafi reyndar haft áfram­hald­andi við­veru í mann­heimum. Í skjölum lög­fræði­stof­unnar Mossack Fonseca frá Panama, sem láku út í fyrra og eru nú til umfjöll­unar í fjöl­miðlum víða um heim, er varpað ljósi á hvert hluti þeirra fór. Hann fór til Panama.

Jón Ásgeir og Ingibjörg bæði með prókúru

Í októ­ber 2007 stofn­aði panamíska lög­fræði­stofan Mossack Fonseca félag fyrir Lands­bank­ann í Lúx­em­borg, sem kom fram við skrán­ing­una fyrir hönd við­skipta­vinar sínar. Félagið átti að heita OneOOne Enterta­in­ment S.A. Í tölvu­pósti vegna skrán­ing­ar­innar var lögð sér­stök áhersla á staf­setn­ingu á nafni félags­ins. Hún yrði að vera algjör­lega rétt.

Þetta kemur fram í gögnum frá Mossack Fonseca sem þýska blaðið Süddeutsche Zeitung komst yfir og deildi með alþjóð­legum sam­tökum rann­sókn­ar­blaða­manna, ICIJ, Reykja­vík Media og 109 öðrum fjöl­miðlum víðs­vegar um heim.

Í stjórn félags­ins voru skipuð þau George Allen, Carmen Wong, Yvette Rogers, Jaqueline Alex­ander og Verna De Nelson. Öll voru þau starfs­menn Mossack Fonseca og sitja í stjórnum þús­unda félaga sem stofnuð eru af fyr­ir­tæk­inu fyrir kúnna sem vilja næla sér í skatta­legt hag­ræði á lág­skatta­svæðum, fela eignir eða vilja eiga félög í Panama af ein­hverjum öðrum ástæðum. Vert er að taka fram að ekk­ert ólög­legt þarf að vera við það að eiga félög eins og þau sem Mossack Fonseca stofn­aði í bíl­förmum fyrir við­skipta­vini sína. Flestu venju­legu fólki þykir það hins vegar afar óvenju­legt og fjar­lægt.

Í fund­ar­gerð stjórnar hins nýstofn­aða félags, sem er dag­sett 2. októ­ber 2007, kemur fram að pró­kúru­hafar félags­ins séu Ingi­björg Pálma­dóttir og Jón Ásgeir Jóhann­es­son. Þ.e. öll völd yfir eignum þess eru í höndum þess­ara tveggja aðila frá stofnun. Þau máttu taka lán eða lána fé félags­ins án nokk­urra tak­markanna. Vald stjórn­ar­manna í félag­inu var að fullu fram­selt til þeirra tveggja í þrjú ár, fram til árs­ins 2010.

Í skjölunum hér að ofan sést að Jón Ásgeir Jóhannesson var með full yfirráð yfir panamíska félaginu og gat stýrt því eins og hann vildi. Endanlegur eigandi þess er þó eiginkona hans, Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir.
Í skjöl­unum hér að ofan sést að Jón Ásgeir Jóhann­es­son var með full yfir­ráð yfir panamíska félag­inu og gat stýrt því eins og hann vildi. End­an­legur eig­andi þess er þó eig­in­kona hans, Ingi­björg Stefanía Pálma­dóttir.

Þau gögn um þetta félag sem Kjarninn hefur fengið aðgang að í gegnum sam­starf sitt við Reykja­vik Media eru ákaf­lega víð­ferm. Þar sem hjónin höfðu fullt vald yfir OneOOne fram á árið 2010 er þó lítið um sam­skipti við Mossack Fonseca vegna félags­ins frá stofnun þess 2007 og fram til 2010. Strax í jan­úar það ár er sendur tölvu­póstur þar sem óskað er eftir því að starfs­menn Mossack Fonseca, sem sátu í stjórn OneOOne, fylltu út skrán­ing­ar­eyðu­blað til að heim­ila Ingi­björgu að opna banka­reikn­ing fyrir félagið hjá sviss­neska bank­anum Credit Suisse í Lúx­em­borg. Í kjöl­farið var einnig farið fram á að nafni félags­ins yrði breytt í Moon Capital S.A. Það nafn hljómar ugg­laust kunn­ug­lega í eyrum margra, enda er meiri­hluta­eign­ar­hald Ingi­bjargar á 365 miðlum að mestu í gegnum félag sem ber sama nafn, Moon Capital, en er skráð í Lúx­em­borg.

Sá sem stóð að sam­skipt­unum fyrir hönd raun­veru­legra eig­enda félags­ins var Þor­steinn Ólafsson, fyrrum starfs­maður Lands­bank­ans í Lúx­em­borg, sem þá var orð­inn annar fram­kvæmda­stjóra nýs fyr­ir­tækis sem fyrrum starfs­menn íslenskra banka þar í landi höfðu þá stofnað, Arena Wealth Mana­gement. Þor­steinn var á árum áður þekkt sveita­balla­stjarna á Íslandi þar sem hann söng með hljóm­sveit­inni Vinir vors og blóma. Þann feril gaf hann þó upp á bát­inn fyrir eign­ar­stýr­ing­ar­draumana.

Þorsteinn Ólafsson er á milli Ingibjargar og Jóns Ásgeirs á þessari frægu mynd sem tekin er í óþekktum skíðaskála árið 2006. Á myndinni má sjá marga helstu leikendur í íslensku útrásinni fyrir hrun.
Þor­steinn Ólafsson er á milli Ingi­bjargar og Jóns Ásgeirs á þess­ari frægu mynd sem tekin er í óþekktum skíða­skála árið 2006. Á mynd­inni má sjá marga helstu leik­endur í íslensku útrásinni fyrir hrun.

Samkvæmt frétt sem birt­ist í Við­skipta­blað­inu í ágúst 2009 tók Arena Wealth Mana­gement, sem ein­beitir sér að eign­ar­stýr­ingu fyrir ríka við­skipta­vini, til starfa í lok árs 2008. Að því stóðu fyrrum starfs­menn Lands­bank­ans og Kaup­þings í Lúx­em­borg. Í frétt Við­skipta­blaðs­ins er rætt við Þorstein, sem segir að Arena hafi fyrst og fremst verið að „aðstoða þann við­skipta­manna­hóp sem var fyrir í Lúx­em­borg og ein­stak­lingar í hópnum hafa byggt upp á síð­ustu 10 til 15 árum.“ Með öðrum orðum tóku nokkrir íslenskir eign­ar­stýr­ing­ar­menn úr föllnu íslensku bönk­unum í Lúx­em­borg nokkra stóra íslenska kúnna og stofn­uðu nýtt fyr­ir­tæki í utan­um­hald um eignir þeirra.

Á meðal þeirra eru Jón Ásgeir Jóhann­es­son og Ingi­björg Stefanía Pálma­dóttir.

OneOOne verður Moon Capital sem verður Guru Invest

Nafna­breyt­ingin á félag­inu var stað­fest af fyr­ir­tækja­skránni í Panama þann 16. mars 2010. Samkvæmt tölvu­póstum frá Þor­steini, full­trúa eig­enda Moon Capital í sam­skiptum þeirra við Mossack Fonseca, var mik­il­væg­asta úrlausn­ar­efni næstu mán­aða sem eftir fylgdu að gera sam­komu­lag við slita­stjórn Glitnis vegna skulda sem Fjár­fest­inga­fé­lagið Gaumur og 101 Chalet, félag í eigu Gaums, höfðu stofnað til við bank­ann og voru komnar fram yfir gjald­daga án þess að félögin ættu fyrir þeim. Sam­an­lögð skuld þeirra var tæp­lega þrír millj­arðar króna.

Líkt og lesa má nánar um hér greiddi Moon Capital hluta þeirrar upp­hæðar sem greidd var til að komið væri í veg fyrir að slita­stjórn Glitnis gengi á félögin og gæti þar með knúið þau í gjald­þrot. Sú greiðsla sem innt var af hendi sam­an­stóð af 200 millj­ónum krónum í reiðufé og 2,2 millj­örðum króna sem greiddar voru með skulda­bréfum útgefnum af Íbúða­lána­sjóði, svoköll­uðum HFF-bréfum.

Þegar gerð sam­komu­lags­ins var í höfn var ráð­ist í aðra nafna­breyt­ingu á félag­inu í Panama. Sem fyrr var það Þor­steinn Ólafsson hjá Arena sem óskaði eftir breyt­ing­unni og sendi hann tölvu­póst þess efnis 23. sept­em­ber 2010 til Mossack Fonseca. Moon Capital skyldi nú heita Guru Invest S.A.

Eftir þetta snú­ast flest tölvu­póst­sam­skipti Þor­steins við Mossack Fonseca vegna Guru Invest um að stjórn­ar­menn­irnir sem settir voru inn í félagið þurfi að skrifa undir allskyns lána­samn­inga sem Guru Invest var að gera við rekstr­ar­fé­lög í Evrópu eða til að opna banka­reikn­inga í nafni þess hjá alþjóð­legum bönkum. Flest félag­anna eiga það sam­eig­in­legt að hafa verið tengd Jóni Ásgeiri Jóhann­essyni í fjöl­miðlaum­fjöllun um þau. Svo virð­ist því sem umrædd félög hafi sótt sér rekstr­arfé til Guru Invest á Panama. Gögnin opin­bera líka að Guru Invest á hlut í félag­inu sem á rekstur íþrótta­vöru­versl­un­ar­innar Sports Direct á Íslandi. Lesa má nánar um það hér.

Lánað til MyM-e

Eitt félag­anna heitir MyM-e Limited. Það er með heim­il­is­festi í Bret­landi og sér­hæfir sig í fjöl­miðla­þjón­ustu fyrir ein­tak­linga og fyr­ir­tæki og grein­ingu á fjöl­miðlaum­fjöllun um smá­sölu­markað. Í frétt DV um fyr­ir­tækið frá árinu 2012 segir: „Um er að ræða eins konar fjöl­miðla­vakt þar sem fyr­ir­tækið velur og tekur saman fréttir um það helsta og mik­il­væg­asta sem er að ger­ast hverju sinni í heimi við­skipt­anna og sendir til við­skipta­vina sinna. Þessi þjón­usta fyr­ir­tæk­is­ins kall­ast My-retail media. Á heima­síðu félags­ins kemur fram að þessi þjón­usta sé hins vegar aðeins byrj­unin á „MyM-e-bylt­ing­unni“.

Fyr­ir­tækið hefur einnig reynt fyrir sér í hefð­bundn­ari fjöl­miðlum. Það kom meðal ann­ars að stofnun íþrótta­síð­unnar sportsdirectnews.com sem Óskar Hrafn Þor­valds­son, fyrrum frétta­stjóri Stöðvar 2, var síðar ráð­inn til að stýra. Síðan vann sér það til frægðar að bera á borð ævin­týra­lega óáreið­an­legar og oft á tíðum rangar fréttir úr heimi ensku knatt­spyrn­unnar. Frægasta dæmið var þegar hún hélt því fram að Newcastle United, félag í eigu Mike Ashley eig­anda Sports Direct og við­skipta­fé­laga Jóns Ásgeirs, væri að fara að kaupa stórstirnið Wayne Rooney frá Manchester United. Mið­ill­inn baðst síðar afsök­unar á frétt­inni, við­ur­kenndi að hún væri ósönn og fjar­lægði hana af síðu sinni. Sportsdirectnews.com náði ekki að festa sig í sessi í heimi knatt­spyrnu­frétta og er ekki til lengur.

Í fréttum á Íslandi á þessum tíma var ætið greint frá því að Mike Ashley væri eig­andi MyM-e Limited. Samkvæmt Panama­skjöl­unum er það ekki alls kostar rétt.

Í hlut­hafa­sam­komu­lagi sem þar er að finna kemur fram að Guru Invest og nýstofnað félag á Bresku Jóm­frú­areyj­unum, Gar­dienne Nominees No. 1 Ltd. væru stærstu eig­endur félags­ins. Sá sem kom fram fyrir hönd Guru Invest við und­ir­ritun sam­komu­lags­ins var Þor­steinn Ólafsson. Fyrir Gar­dienne skrif­aði Gunnar Sig­urðs­son, fyrrum for­stjóri Baugs og nán­asti sam­starfs­maður Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar, undir fyrir hönd félags­ins JMS Partners Ltd.. Það félag höfðu hann, Jón Ásgeir og Don McCharthy, þá stjórn­ar­for­maður House of Fraser, höfðu stofnað á árinu 2010. Auk þess var Sara Lind Þrúð­ar­dóttir á meðal eig­enda í gegnum félagið Biki ltd. Hún var á þessum tíma fram­kvæmda­stjóri MyM-e Ltd. en hafði áður starfað sem upp­lýs­inga­full­trúi Baugs Group.

Samkvæmt Panama­skjöl­unum lán­aði Guru Invest MyM-e ltd. tugi þús­unda punda að minnsta kosti tví­vegis á næstu árum. Fyrst í apríl 2012 og síðan í lok októ­ber 2013. Þá var lán sem hið breska Guru Capital Ltd. hafði veitt MyM-e Limited upp á 72 þús­und pund færð til Guru Invest í Panama á árinu 2013.

Töskur, herraklippingar og húðhreinsun

Guru Invest lán­aði ýmsum fleirum félögum, sem Jón Ásgeir og félagar hans komu að, fé á árunum sem eftir fylgdu. Eitt þeirra fyr­ir­tækja var Moncrief, sem fram­leiðir hágæða­töskur. Guru Invest keypti hlut í Moncrief og lán­aði félag­inu mörg hund­ruð þús­und pund á næstu árum. Eitt skjal­anna sem Þor­steinn Ólafsson sendi til Mossack Fonseca svo stjórn­ar­menn Guru Invest gætu und­ir­ritað það var merkt „Guru bridge loan agreement – JAJ“. Það má því ætla að Jón Ásgeir, sem skamm­stafar nafnið sitt með þeim hætti, hafi komið að lán­veit­ing­unni. Jón Skafta­son, sem starfar fyrir Jón Ásgeir, kemur einnig fram fyrir hönd Guru Invest vegna Moncrief, sam­kvæmt skjöl­unum.

Annað fyr­ir­tæki sem fékk lán frá Guru var Cutis Develop­ments, sem rekur ProSkin húð­hreins­un­ar­keðj­una í Bret­landi. Það fékk lán upp á 100 þús­und pund í maí 2012 til að fjár­magna rekstur sinn, kaupa tæki og opna tvær nýjar ProSkin stofur í júní sama ár. Enn eitt slíkt fyr­ir­tæki er Murdock, sem rekur dýrar hár­greiðslu­stofur fyrir karl­menn í London. Samkvæmt frétt breska dag­blaðs­ins Tel­egraph frá árinu 2013 sett­ist Jón Ásgeir í stjórn fyr­ir­tæk­is­ins það ár. Það gerði Jón Skafta­son einnig.

Guru átti líka beint í ýmsum félögum. Í jan­úar 2013 sendi Þor­steinn Ólafsson póst á Mossack Fonseca og sagði þar að í við­hengi væri skipu­lag félags sem heitir Richmond Group/Richmond Brands. Það félag er skráð til heim­ilis á Seychelles-eyjum, sem er þekkt skatta­skjól. Í póst­inum segir Þor­steinn enn fremur að í við­heng­inu sjá­ist að Guru Invest sé hlut­hafi í félag­inu. Skjalið sem er í við­hengi er við­skipta­á­ætlun fyrir verk­efni sem kall­að­ist „Hearts and Minds“. Verk­efnið snérist um að opna og reka litlar skart­gripa­versl­anir undir merkjum hins danska Pandora inni í versl­unum House of Fraser í Bret­landi. Guru Invest á, sam­kvæmt áætl­un­inni, sjö pró­sent hlut í Hearts and Minds. Aðrir eig­endur eru Marc Robbert Rasmus­sen, sem á 51 pró­sent hlut og félag sem kallað er HFS en er ekki skil­greint nánar í áætl­un­inni. Richmond fékk, sam­kvæmt skjölum, 776 þús­und punda lán frá JMS Partners í gegnum annað félag á Seychelles-eyju, Stratton Holdings Limited.

Þótt Jón Ásgeir hafi haft pró­kúru hjá Guru Invest, að minnsta kosti framan af, er Ingi­björg eig­in­kona hans skráður eini eig­andi félags­ins sam­kvæmt skjölum Mossack Fonseca. Í júní 2012 sendi Þor­steinn Ólafsson póst á Mossack Fonseca og bað um að gefin yrði út ný pró­kúra á Ingi­björgu Pálma­dóttur fyrir Guru Invest. Sú sem hann hafði var frá þeim tíma sem félagið var kallað OneOOne Enterta­in­ment.

Engin efnisleg svör

Kjarninn sendi fyr­ir­spurn á Jón Ásgeir og Ingi­björgu á þriðju­dag þar sem þau voru spurð út í aðkomu sína að félag­inu OneOOne Enterta­in­ment, sem breytt­ist síðar í Moon Capital S.A. og heitir síð­ast þegar af frétt­ist Guru Invest S.A. Á meðal þeirra svara sem óskað var eftir voru upp­lýs­ingar um hvaðan þeir fjár­munir sem vistaðir eru í Guru Invest í Panama hafi komið, hverjar eignir félags­ins eru og hvort að fé úr Guru Invest hafi runnið til félaga eða ein­stak­linga á Íslandi. Þar var einnig spurt hvort eignir Guru Invest hafi verið á meðal þeirra eigna sem til­greindar voru í umfangs­miklum skulda­upp­gjörum þeirra við kröfu­hafa á Íslandi sem fram hafa farið á und­an­förnum árum og beðið um upp­lýs­ingar um hvar Guru Invest greiðir skatta og gjöld. Þá var einnig spurt af hverju félagið væri skráð með heim­il­is­festi á Panama.

Ingi­björg svar­aði fyr­ir­spurn­inni á mið­viku­dag með eft­ir­far­andi hætti: „ef fengið fyr­ir­spurnir í dag frá fleirum miðlum en þínum og hef svarað. Ég hef engu við það að bæta, þú getur pikkað upp það sem þegar er haft eftir mér. Að öðru leyti eins og ég hef áður sagt, þá tjái ég mig ekki um ein­stök við­skipti, þar er trún­aður milli við­skipta­fé­laga.“

Rúmum klukku­tíma áður en svarið barst hafði birst stutt frétt um Ingi­björgu á frétta­vef DV sem eng­inn var skrif­aður fyrir. Þar sagði hún: „„Ég hef verið búsett erlendis til fjölda ára. Þar af leið­andi er ég skatt­greið­andi á Íslandi ein­ungis að því leyti sem tekur til minna per­sónu­legra eigna, fyr­ir­tækja og tekna inn­an­lands. Það hefur löngum verið ljóst að ég hef stundað við­skipti erlendis, og er það ekk­ert laun­ung­ar­mál, og í gegnum það tengst fjölda félaga erlendis, sem í ein­hverjum til­vikum kunna að flokk­ast sem aflands­fé­lög.“ Þá sagði hún einnig að ávallt hafi verið staðið skil á sköttum og gjöldum af þeim félögum sem henni tengj­ast.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár