Fjármunum ráðstafað frá Panama til Íslands

Rekstur íþrótta­vöru­versl­un­ar­innar Sports Direct á Íslandi er í eigu félags í Lúx­em­borg sem heitir Rhaps­hody Invest­ments (Europe) Lux­em­borg. Það félag er meðal ann­ars í eigu Guru Invest sem skráð er til heim­ilis í Panama og er í eigu Ingi­bjargar Pálma­dóttur. Það félag er í umsjón panamísku lög­fræði­stof­unnar Mossack Fonseca. Upp­lýs­ingar um stofnun móð­ur­fé­lags Sports Direct á Íslandi koma fram í gögnum frá Mossack Fonseca sem þýska blaðið Süddeutsche Zeitung komst yfir og deildi með alþjóð­legum sam­tökum rann­sókn­ar­blaða­manna, ICIJ, Reykja­vík Media og 109 öðrum fjöl­miðlum víðs­vegar um heim.

Þar má sömu­leiðis finna upp­lýs­ingar um félagið Jovita Inc. í eigu Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar. Það félag lán­aði íslensku félagi í eigu Jóns Ásgeirs, Þú Blásól, 1,1 milljón evra nokkrum vikum fyrir hrun.

Því sýna Panama­skjölin fram á ráð­stöfun fjár­muna sem geymdir hafa verið á banka­reikn­ingum félaga Ingi­bjargar og Jóns Ásgeirs í Panama til íslenskra félaga.

Á árinu 2012 opn­aði íþrótta­vöru­versl­unin Sports Direct verslun á Íslandi. Tilkynnt var form­lega um opn­un­ina í maí­mán­uði það sama ár. Sá sem stýrt hefur fyr­ir­tæk­inu og komið fram fyrir hönd þess á Íslandi er Sigurður Pálmi Sig­ur­björns­son, sonur Ingi­bjargar Pálma­dóttur.

Eign­ar­hald á félag­inu utan um rekstur Sports Direct á Íslandi, sem heitir NDS ehf., er í höndum félags skráð í Lúx­em­borg sem heitir Rhapsody Invest­ments (Europe) Lux­em­borg. Í Panama­skjöl­unum er að finna upp­lýs­ingar um hvernig stofnað var til félags­ins, hverjir eig­endur þess eru og hversu mikið fé var lagt til rekst­urs­ins.

Þar má meðal ann­ars finna lána­samn­ing frá því í maí 2012 milli Guru Invest, félags skráð í Panama í eigu Ingi­bjargar Pálma­dóttur, og Sigurður Pálma sonar hennar um lán­veit­ingu til hans upp á 115 þús­und pund til að fjár­magna hans hlut í stofnun Rhapsody. Guru Invest tekur hins vegar veð í hlut hans fyrir end­ur­greiðslu láns­ins.

Í ágúst sama ár er félagið svo sett á lagg­irnar. Í tölvu­póstum sem starfs­menn frá fjár­mála­þjón­ustu­fyr­ir­tæk­inu SGG Group sendu Jeff Blue, sam­starfs­manni Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar vegna stofn­unar félags­ins kemur skýrt fram að Mike Ashley eigi að koma að stofnun félags­ins. Í pósti frá þeim er um vega­bréfa­númer Ashley svo hægt sé að gera hann að eig­anda auk stað­fest­ingar á heim­il­is­fangi hans.Tölvu­póst­arnir eru hluti af Panama­skjöl­unum.

Þar er einnig að finna hlut­hafa­sam­komu­lag vegna Rhapsody sem gert var á milli allra vænt­an­legra eig­enda félags­ins. Þar segir að eigna­skipt­ing, eftir að hlutafé verði greitt inn, verði með þeim hætti að SportsDirect.com Retail Ltd. (fyr­ir­tæki Mike Ashley), muni eiga 25 pró­sent hlut, Guru Invest (félag Ingi­bjargar í Panama) eigi 27 pró­sent, Sigurður Pálmi eigi 33 pró­sent og Jeff Blue 15 pró­sent. Afrit af póstum vegna gerðar hlut­hafa­sam­komu­lags­ins voru send til Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar.

Jón Ásgeir er ekki alls ókunn­ungur Panama og við­skiptum við Mossack Fonseca. Árið 2007 stofn­aði hann félag þar sem hlaut nafn­við Jovita Inc. Í lok ágúst 2008, nokkrum vikum fyrir banka­hrun, lán­aði Jovita Inc. íslenska félag­inu Þú Blásól 1,1 milljón evra, rúm­lega 150 millj­ónir króna á núvirði. Í lána­samn­ingi milli félags­ins og Þú Blásólar kom fram að hann ætti að gilda frá 18. októ­ber 2007. Engar skýr­ingar voru gefnar á því af hverju Mossack Fonseca ætti að dag­setja hann næstum heilt ár aftur í tím­ann. Lánið var til þriggja ára og átti því að end­ur­greið­ast í októ­ber 2010. Jón Ásgeir var einnig eig­andi Þú Blásólar. Örfáum vikum eftir að lánið var veitt hrundi íslenska banka­kerfið.

Þú Blásól var úrskurðað gjald­þrota 20. maí í fyrra. Lýstar kröfur í búið námu rúmum 102 millj­ónum króna, en engar eignir fund­ust í því. Ljóst er að Jovita hefur því ekki lýst ofan­greiddu láni sem kröfu í búið.

Þú Blásól hefur verið nokkuð í fréttum á und­an­förnum árum. Það kom meðal ann­ars fyrir í ákæru­skjali í Aurum mál­inu svo­kall­aða, sem hefur verið til með­ferðar í dóms­kerf­inu frá því að ákært var í des­em­ber 2012. Til stóð að aðal­með­ferð í mál­inu færi fram að nýju fyrir hér­aðs­dómi í þessum mán­uði en það hefur frest­ast vegna mats­beiðni. Jón Ásgeir er einn þeirra sem ákærður er í mál­inu.

Í ákærunni í Aurum-mál­inu var greint frá því að Glitnir hefði lánað eign­ar­lausu félagi, FS38 ehf., sex millj­arða króna þann 21. júlí 2008. Tveir millj­arðar króna af láns­fjár­hæð­inni fóru beint inn á reikn­ing Fons, félags sem Pálmi Har­alds­son átti í og stýrði. Þaðan átti einn millj­arður króna að fara inn á reikn­ing Þú Blásólar og not­ast m.a. til að kaupa hlut í Formúlu 1 kappakst­urslið­inu Williams. Þegar Aurum-málið var fyrir hér­aðs­dómi í fyrra skiptið sagði Jón Ásgeir að pen­ing­arnir hafi fyrir mis­tök verið milli­færðir inn á einka­reikn­ing hans og nýtt­ust þannig fyrir slysni til að greiða niður rúm­lega 700 millj­óna króna yfir­drátt sem hann var með hjá bank­anum. Þú Blásól átti reyndar ekki banka­reikn­ing á þessum tíma, sam­kvæmt því sem fram kom í dóm­sal vegna máls­ins, og því erfitt að milli­færa inn á félagið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár