Bakkavararbræður áttu sex félög á Bresku Jómfrúareyjunum

Bræð­urnir Ágúst og Lýður Guð­munds­synir áttu að minnsta kosti sex félög á Tortóla. Eitt félag­anna lýsti kröfu í bú Kaup­þings. Erlent félag þeirra fékk greitt um níu millj­arða í arð á árunum 2005-2007.

Bræð­urnir Ágúst og Lýður Guð­munds­synir, sem oft­ast eru kenndir við Bakkavör, áttu að minnsta kosti sex félög sem skráð eru til heim­ilis á Bresku Jóm­frú­areyj­unum. Eitt þeirra félaga var á meðal kröfu­hafa í bú Kaup­þings. Félagið, New Ortland II Equities Ltd., gerði sam­tals kröfu upp á 2,9 millj­arða króna í búið. Um var að ræða skaða­bóta­kröfu. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Kaup­þingi ehf., sem stofnað er á grunni slita­bús Kaup­þings, var skaða­bóta­kröf­unni hafnað með end­an­legum hætti við slita­með­ferð Kaup­þings. Tals­maður félags­ins vildi að öðru leyti ekki tjá sig um inni­hald eða upp­runa kröf­unnar og bræð­urnir svör­uðu ekki fyr­ir­spurn Kjarnans um málið.

Bræð­urnir voru stærstu ein­stöku eig­endur Kaup­þings fyrir fall bank­ans í gegnum fjár­fest­ing­ar­fé­lagið Exista. Bjarn­freður Ólafsson, lög­maður þeirra, sat í stjórn bank­ans fyrir þeirra hönd og félög bræðr­anna voru á meðal stærstu skuld­ara Kaup­þings. Samkvæmt skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis skuld­aði Exista og tengd félög Kaup­þingi, sem breytt­ist í Arion banka við kenni­tölu­flakk í hrun­inu, 239 millj­arða króna. Eitthvað hefur feng­ist upp í þær kröfur vegna nauða­samn­inga Existu og Bakka­varar, og sölu á hlut í Bakkavör, en ljóst er að sú upp­hæð er fjarri þeirri fjár­hæð sem Kaupþing lán­aði sam­stæð­unni.

Upplýsingar um sex félög

Í Panama­skjöl­unum, sem Kjarninn flytur fréttir úr í sam­vinnu við Reykja­vík Media, eru upp­lýs­ingar um sex félög sem Ágúst og Lýður eiga og stofnuð voru í gegnum panömsku lög­fræði­stof­una Mossack Fonseca, sem sér­hæfir sig í stofnun og umsýslu skúffu­fé­laga með heim­il­is­festi á lág­skatt­ar­svæðum og aflandseyjum. Bræð­urnir eru skráðir eig­endur fimm félag­anna, annað hvort hvor um sig eða saman, en eig­in­kona Lýðs er skráð eig­andi eins félags­ins á móti honum. Félögin sex eru:

  • Barello Global S.A.
  • Jukebox Group Corp.
  • New Ortland II Equities Ltd.
  • Ortland Equities Corp
  • AI Pension Ltd.
  • SARN Invest­ment Ltd.

Eitt félag­anna, Ortland Equities Corp. var stofnað árið 2002. Það var afskráð í apríl 2010. Félagið var í jafnri eigu Ágústs og Lýðs. Ástæðan fyrir því að félagið var afskráð er, sam­kvæmt gagna­grunni ICIJ, van­skil. Hin félögin fimm eru öll stofnuð á árunum 2005 til 2007. Það síð­asta, AI Pension Ltd., var stofnað í lok maí 2007.

Litlar sem engar upp­lýs­ingar eru um hvers konar starf­semi er í félög­unum í Panama­skjöl­unum. Þar er ekki að vinna neina lána­samn­inga þeirra við önnur félög, yfir­lit yfir hverjar eignir félag­anna sex hafa verið né hver til­gangur þeirra er.

Ein ástæða þess er sú að strax á árinu 2009 skrif­uðu bræð­urnir undir beiðni um að umsjón með félög­unum sex yrði færð frá Mossack Fonseca til ann­ars fyr­ir­tækis sem sér­hæfir sig í sam­bæri­legri aflands­þjón­ustu, Ogier Fiduciary Services (BVI) Limited. Sá flutn­ingur gekk form­lega í gegn tveimur árum síðar, í maí 2011. Sá íslenski aðili sem sá um öll sam­skipti við Mossack Fonseca fyrir hönd bræðr­anna var íslenska lög­manns­stofan LOGOS. Samkvæmt tölvu­póst­sam­skiptum sem hægt er að finna í Panama­skjöl­unum var það aðal­leg Bjarn­freður Ólafsson sem sá um þau sam­skipti. Eftir að sá flutn­ingur var klár­aður, og umsýsla félag­anna fór frá Mossack Fonseca til Ogier, eru engar upp­lýs­ingar um starf­semi félag­anna í Panama­skjöl­unum, enda eru þau byggð á gagna­leka frá Mossack Fonseca.

Kaupþing veitti ábyrgðir vegna milljarða skuldbindinga

Líkt og áður sagði lýsti eitt félag­anna, New Ortland II Equities Ltd., kröfu í bú Kaup­þings upp á 2,9 millj­arða króna. Um var að ræða skaða­bóta­kröfu sem slita­stjórn Kaup­þings frestaði fyrst um sinn að taka afstöðu til en hafn­aði svo. Félagið fékk því ekki greitt út úr slita­búi Kaup­þings þegar það greiddi kröfu­höfum sínum fyrr á þessu ári.

Ljóst er að New Ortland II Equities var með starf­semi á Íslandi á árunum fyrir hrun. Félagið fékk úthlutað íslenskri kenni­tölu svo það gæti stofnað banka­reikn­ing hér­lendis. Sú kennitala var gefin út 17. des­em­ber 2007, tíu mán­uðum fyrir banka­hrun. Íslenskur umboðs­að­ili félags­ins var Kaupþing. New Ortland II Equities var í sam­eig­in­legri eigu Ágústs og Lýðs, sem áttu sinn helm­ing þess hvor.

Minnst er á félagið í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis, sem kom út í apríl 2010. Þar segir að Kaupþing hafi veitt ábyrgðir vegna skuld­bind­inga „New Ortland II Equity Limited en félagið var í eigu Ágústs og Lýðs Guð­munds­sona, Ábyrgð­irnar sveifl­uð­ust nokkuð en fóru hæst í rúmar 50 millj­ónir evra í febr­úar 2008.“ Þetta kom fram í lána­um­sókn til lána­nefndar sam­stæðu Kaup­þings frá 10. des­em­ber 2007.

Á gengi dags­ins í dag eru 50 millj­ónir evra um sjö millj­arðar króna.

Hlutu hagstæða sérmeðferð hjá bankanum

Fleiri félög sem stofnuð voru af Mossack Fonseca fyrir bræð­urna er að finna í skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar. Þar er meðal ann­ars fjalla sér­stak­lega um Barello Global S.A. sem dæmi um „að Bakka­bræður hafi hlotið hag­stæða sér­með­ferð hjá Kaup­þingi.“ Sú hag­stæða með­ferð fólst í því að hinn 24. júlí 2007 leysti bank­inn Lýð Guð­munds­son undan per­sónu­legri ábyrgð vegna skuld­bind­inga Barello Global. Á móti fékk bank­inn veð í hluta­bréfum í Barello Global. Bankinn gaf því frá sér hina end­an­legu trygg­ingu á lán­inu gegn ímynd­uðu veði.

Þau félög sem skráð eru í eigu bræðr­anna eru ekki einu félögin sem skráð eru á Bresku Jóm­frú­areyj­unum í eigu þeirra. Þar eiga þeir einnig félag sem heitir Alloa Finance Limited. DV og Morg­un­blaðið hafa greint frá því á und­an­förnum árum að það félag hafi fjár­magnað að hluta kaup Ágústs og Lýðs á hluta­bréfum í breska mat­væla­fyr­ir­tæk­inu Bakkavör, sem þeir stofn­uðu á sínum tíma og hafa nú náð yfir­ráðum yfir á ný eftir fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu. Kjarninn greindi ítar­lega frá bar­átt­unni um Bakkavör í frétta­skýr­ingu fyrr á þessu ári.

Alloa Finance á íslenskt félag sem heitir Korkur Invest ehf. og í árs­lok 2014 hafði Alloa Finance lánað Korki Invest tæp­lega 4,4 millj­arða króna til að kaupa bréf í Bakkavör.

Fjár­mun­irnir voru fluttir til lands­ins í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands, sem tryggði virð­is­aukn­ingu upp á að minnsta kosti 20 pró­sent þegar fjár­mun­unum var skipt í íslenskar krónur.

Það ætti ekki að koma mörgum á óvart að Ágúst og Lýður ættu mikla fjár­muni erlendis. Fyrir hrun var hol­lenskt félag í þeirra eigu, Bakka­bræður Holding B.V., aðal­eig­andi fjár­fest­inga­fé­lags­ins Existu sem hélt meðal ann­ars á eign­ar­hlut þeirra í Bakkavör auk þess að vera stærsti eig­andi Kaup­þings.

Í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis kom fram að það félag hefði verið á meðal þeirra aðila sem þáðu hæstar arð­greiðslur á upp­gangs­ár­unum fyrir hrun. Alls fékk félagið tæpa níu millj­arða króna í arð­greiðslur á árunum 2005 til 2007.

Svöruðu ekki spurningum um félögin

Kjarninn sendi Ágústi og Lýð, og Bjarn­freði Ólafs­syni, spurn­ingar um félögin sex í síð­ustu viku. Þar var meðal ann­ars spurst fyrir um hvaða eignir væru í umræddum félögum, hvort upp­ruin þeirra fjár­muna sem þar eru vistaðir hafi verið á Íslandi og hvort fé hafi farið úr þeim til félaga eða ein­stak­linga á Íslandi.

Þar var einnig spurt hvort eignir félag­anna sex hefðu verið á meðal þeirra eigna sem upp­gefnar voru í skuldupp­gjörum bræðr­anna og félaga í þeirra eigu við kröfu­hafa sem fram hafi farið á und­an­förnum árum. Spurt var af hverju félögin væru með heim­il­is­festi á Bresku Jóm­frú­areyj­unum, hvar þau hafi greitt skatta og gjöld og hvort allir skattar og gjöld hafi verið greiddir. Þá var einnig spurt sér­stak­lega út í kröfu New Ortland II Equities Corp. í bú Kaup­þings og hver grund­völlur þeirrar kröfu hafi verið.

Engin svör hafa borist við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár